Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 39

Skinfaxi - 01.08.2008, Qupperneq 39
SPRON-skóIamót Fjölnis í Grafarvogi: Met- þátttaka í SPRON- skólamóti Fjölnis í handbolta Hið árlega skólamót Fjölnis í hand- bolta fór fram í þriðja sinn laugar- daginn 6. september sl. Að þessu sinni tóku allir grunnskólarnir átta í Grafarvoginum þátt í mótinu og var met slegið með þátttöku 57 liða. Víkurskóli var eini skólinn sem skráði lið í öllum aldursflokkum og átti skólinn 18 lið af þessum 57. Geri aðrir betur! Mótið tókst framúrskarandi vel. Leikn- ir voru yfir 80 leikir í Dalhúsum þennan dag, á tveimur völlum. Yngstu krakk- arnir byrjuðu að spila kl. 8:45 um morg- uninn og svo tóku sífellt eldri krakkar við og endaði mótið á úrslitaleikjum krakka úr 9. og 10. bekk. Húsaskóli vann Keppnin var óvenju hörð þetta árið og voru þrír skólar í fararbroddi, en það voru Húsaskóli, Víkurskóli og Rimaskóli. Svo fór að Húsaskóli vann, en Víkur- skóli fylgdi fast á eftir. Var fyrst tekið til- lit til fjölda unninna flokka og síðan til fjölda stiga. Húsaskóli vann því farand- bikarinn þetta árið en víst má telja að Víkurskóli muni reyna að endurheimta bikarinn að ári, enda hefur skólinn unn- ið stórsigur undanfarin tvö ár og var þetta árið eins og undanfarin ár með mestan stigafjölda. Sturla landsliðsmaður kom í heimsókn 1.-2. bekkur, drengir og stúlkur, kepptu saman og vann Víkurskóli þá keppni. f drengjaflokki 3.-4. bekk vann Rimaskóli og í stúlknaflokki 3.-4. bekk vann Hamraskóli. Sturla Ásgeirsson Á efstu myndinni eru drengir úr Víkurskóla sem unnu í flokki 9.-10. bekkja. Á myndinni í miðju eru steipur úr 6. bekk Foldaskóla með bikara og verðlaun. Á neðstu myndinni eru krakkar úr yngstu aldursflokkunum. landsliðsmaður kom í heimsókn á mót- ið og afhenti 5.-6. bekkingum verðlaun í 1.-3. sæti. Þar voru úrslitin í drengja- flokki þau að Rimaskóli lenti í 1. sæti, Korpuskóli í 2. sæti og Engjaskóli í 3. sæti. f stúlknaflokki 5.-6. bekkjar var í 1. sæti Húsaskóli, 2. sæti Víkurskóli og 3. sæti Rimaskóli. f 7.-8. bekk vann Húsaskóli bæði í stúlknaflokki og drengjaflokki. f 9.-10. bekk vann Folda- skóli i stúlknaflokki og Víkurskóli í drengjaflokki. Víkurskóli með bestu umgjörðina Rétt er að taka fram að Víkurskóli var eins og undanfarin ár með albestu umgjörð um sín lið, undir stjórn íþrótta- kennara skólans, Hólmars Sigþórssonar. Stjórn handknattleiksdeildar Fjölnis ákvað að heiðra Hólmar sérstaklega fyrir framúrskarandi undirbúning, umgjörð og þátttöku á mótinu. Erum í sjöunda himni „Við í stjórn handknattleiksdeildar Fjöinis erum í sjöunda himni með þátt- tökuna í mótinu sem hefur aldrei verið meiri. Umgjörð mótsins var sérlega flott og leikgleðin skein úr hverju andliti. Við fengum Sturlu Ásgeirsson, landsliðs- mann, til að koma og veita verðlaun og setti heimsókn hans skemmtilegan svip á verðlaunaafhendinguna. Það er tví- mælalaust mikil vakning í handboltan- um um þessar mundir og það á sér stað aukning iðkenda í ákveðnum flokkum," sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, for- maður handknattleiksdeildar Fjölnis, í spjalli við Skinfaxa. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 39

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.