Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1956, Qupperneq 4
Elías Halldórssoii
forstjóri Fiskveiöasjóðs
fra íiisl.
útfluttum sjávarafurðum, lögfest. Jafnframt
var hinum nýstofnaða Útvegsbanka íslands
h.f. falin stjórn sjóðsins og starfræksla.
í ársbyi*jun 1931 tók ríkissjóður lán til 15
ára með 5!/2% vöxtum, að upphæð d. kr.
1.250.000,00, til þess að auka starfsfé sjóðs-
ins, en hið lögákveðna einnar millj. króna
framlag ríkissjóðs var greitt sjóðnum í þrennu
lagi á árunum 1939—1941.
Árið 1943 veitti ríkissjóður 2 millj. kr. til
styrktar fiskiskipabyggingum, og er sú upp-
hæð talin framlag til Fiskveiðasjóðs í reikn-
ingum hans, enda þótt öll upphæðin væri út-
borguð úr sjóðnum á sama ári og því næsta,
sem óafturkræfir styrkir til útvegsmanna, er
létu byggja ný fiskiskip.
Auk þess, sem hér hefur verið talið, veitti
Alþingi 1954 Fiskveiðasjóði 8 milljónir króna
af tekjuafgangi ríkissjóðs 1954 og ákvað
sjóðnum 2ja millj. kr. ríkissjóðsframlag ár-
lega frá ársbyrjun 1956. Loks má að sjálf-
sögðu telja, að tekjur sjóðsins af hinum fyrri
Skuldaskilasjóði, um 1,7 millj., sé ríkisfram-
lag.
Aðaltekjur Fiskveiðasjóðs hafa verið út-
flutningsgjald af sjávarafurðum, en af því
hefur hann fengið % frá 1941—1943 og síð-
an allt gjaldið (flutningsmaður þess á Alþingi
1942 var Sigurður Kristjánsson alþm.), en
breyttist síðar í 12/14 hluta. Hefur þessi tekju-
liður orðið samtals kr. 65.236.608,53 til 31.
október 1955.
Kostnaður við rekstur sjóðsins frá upphafi
hefur orðið kr. 2.032.443,60 og töp á útlán-
um kr. 217.388,86.
Alls hefur sjóðurinn veitt lán að aupphæð
samtals kr. 112.086.360,00 og er lengsti láns-
tími 20 ár. Vextir eru 4% af lánum til skipa
og 5af fasteignalánum.
Reglur sjóðsins um lánveitingar hafa að
sjálfsögðu tekið miklum breytingum frá því,
sem var fyrir 50 árum. Má nú lána allt að
lJ/4 millj. kr. gegn fyrsta veðrétti í fiskiskipi
og allt að 600 þús. kr. gegn fyrsta veðrétti í
fasteign.
Á árinu 1954 veitti sjóðurinn ný lán að upp-
hæð samtals 20,9 millj. kr. og á sl. ári, til 31.
október, 20,8 millj. kr.
Þrátt fyrir þetta voru óafgreiddar lánbeiðn-
ir hjá sjóðnum sem hér segir:
Til byggingar nýrra fiski-
skipa um ............... kr. 40.000.000,00
4
VIKINBUR