Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1956, Síða 26
Samþykktir 17. þings F.F.S.L
Radíóskóli á íslandi.
í Reykjavík skal setja á stofn og starfrækja
fyrir ríkisfé sérstakan skóla í radíófræði og
fjarskiptum. Skólinn nefnist Radíóskóli ís-
lands og skal hann hafa aðsetur í Sjómanna-
skóla íslands, ásamt þeim tækjum, er nauð-
synleg verða talin til kennslunnar.
Takmark skólans er að kenna radíófræði
og fjarskipti með það fyrir augum að veita
firðriturum fullnaðarnám samkvæmt íslenzk-
um kröfum og alþjóðalögum, er ísland er að-
ili að.
Til að kenna við skólann skal fá þá færustu
starfskrafta, sem völ er á. Við skólann skal
ráða að minnsta kosti einn yfirkennara og
hafi hann með höndum stjórn skólans í um-
boði ríkisstjórnarinnar.
Námstímann skal miða við það að tveggja
vetra nám þurfi til að standast próf sem 2. fl.
firðritari, en þriggja vetra nám til að útskrif-
ast sem 1. fl. firðritari.
Til að fá inngöngu í skólann skulu væntan-
legir nemendur hafa lokið hinu almenna gagn-
fræðaprófi eða hliðstæðri menntun eða upp-
fylla önnur þau skilyrði, sem krafist er við
íslenzka framhaldsskóla.
Ýmsar ályktanir.
17. þing F.F.S.Í. skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að fella niður tolla og skatt á efni, vél-
um og varahlutum í íslenzk skip frá n.k. ára-
mótum, og að verði á varahlutum verði stillt
í hóf og að umboðsmönnum mótorvéla verði
gert að skyldu að hafa nauðsynlega varahluti
á lager, þar sem ástand í þessum efnum er nú
óþolandi, og að stjórn F.F.S.l. verði falið að
fylgja þessu máli fast eftir.
17. þing F.F.S.Í. skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að ganga svo frá málum að því er við-
víkur hafnarmannvirkjum, að hægt sé að ljúka
við þau hafnarmannvirki víðsvegar um land-
ið, sem eigi eru fullgerð og af þeim sökum
liggja undir skemmdum og eru ekki örugg
skipum, og bendir sérstaklega á Patrekshöfn
í því sambandi.
17. þing F.F.S.Í. samþykkir að beina þeirri
áskorun til Vitamálastjórnarinnar, að hún
beiti sér fyrir því við hafnarstjórn og bæjar-
stjórn Akureyrar, að nú þegar verði gerðar
ráðstafanir til þess, að fullkomnum vita verði
komið fyrir á Oddeyrartanga við Eyjafjörð.
17. þing F.F.S.I. samþykkir að kjósa 3ja
manna nefnd til að athuga möguleika á því,
að stofnaður verði verðtryggingarsjóður sjáv-
arafurða, eða annarra leiðar til bjargar sjáv-
arútveginum, og skal nefndin skila tillögu til
stjórnar F.F.S.I. eigi síðar en 1. febr. 1956,
sem síðar vinnur úr málinu.
I sambandi við landhelgismál komu fram
tillögur um verndun netjasvæðisins við Vest-
mannaeyjar og ennfremur kom fram tillaga
um að ýmsar uppeldisstöðvar og hrygningar-
svæði, t. d. Hraunmið, verði friðuð.
17. þing F.F.S.Í. skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að standa fast á rétti íslendinga í land-
helgismálinu og hika hvergi í viðskiptum við
Breta í því sambandi.
Jafnframt lýsir þingið því sem skoðun sinni,
að landgrunnið við ísland sé eign landsmanna,
en ekki alþjóðahaf.
Ennfremur bendir þingið á nauðsyn þess,
að ráðstafanir verði gerðar til að friðhelga
íslenzkum vélbátaútvegi hin sérstöku veiði-
svæði vertíða, eins og t. d. við Vestmanna-
eyjar (netjasvæði) og fyrir Vestfjörðum og
víðar. Ennfremur hvort tiltækilegt sé að fá
Hraunið á Selvogsbanka viðurkennt friðhelg-
að fyrir botnvörpuveiðum og netjaveiðum um
hrygningartímann.
Eftirfarandi tillaga var samþ. samhlj.:
17. þing F.F S.í. samþykkir að skora á Al-
þingi og ríkisstjórn, að hún setji lög um bann
við smáufsaveiði í höfnum inni með herpinót
eða dráttarnótum.
17. þing F.F.S.Í. telur að miðunarstöðvar í
landi geri yfirleitt meira gagn en slíkar stöðv-
ar um borð í skipum.
26
VÍKINEUR