Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Page 25
Skýjakljúfur verður til Enn fjölgar skýjakljúfunum á Manhattan i New York. Hinn nýjasti verður tilbúinn til íbúð- ar, þ. e. a. s. skrifstofuhalds, bráðlega, er það Socony Mobil félagið, sem lætur byggja hann. Stórhýsi þetta verður 45 hæða, og er kostnaður áætlaður 43 millj. dollara. Margt nýmæla verð- ur í byggingu þessari, svo sem það, að hinar 32 lyftur verða sjálfvirkar og verða þar engir lyftustjórar. Þar sem flest fólk safnast saman við lyftudyr, á leið upp eða niður, kemur lyftan sjálfkrafa miklu fyrr heldur en ef einn maður eða örfáir bíða. Þó er einstökum mönnum, sem þarfnast lyftu, ekki gleymt. Lyfta, sem er á upp- eða niðurleið, er fer framhjá dyrum, þar sem einn maður bíður, sendir aðra lyftu á staðinn, sé hún yfirfull, o. s. frv. Vinna við byggingu slíkra húsa er að sjálf- sögðu mjög erfið og áhættusöm, enda er gert ráð fyrir að svo og svo mörg mannslíf fari forgörð- um, jafnvel þótt allrar varúðar sé gætt. Venju- lega verða slysin vegna óaðgætni einstakra verkamanna, sem gleyma hvar þeir eru staddir, þótt reynt sé með öllum ráðum, sem þekkjast, að koma í veg fyrir slíkt. Skýjakljúfurinn „The Socony Mobil Building” nær yfir heila ,,blokk”, þ. e. a. s. milli 41. og 42. götu og geta vegfarendur um 42. götu um kl. 7.30 að morgni horft á 900 verkamenn, verk- fræðinga og verkstjóra klífa hina mörgu stiga upp eftir byggingunni, og er auðvitað að ekki þýðir lofthræddum að ætla sér þá ferð. Til þess að gjöra sér einhverja hugmynd um slíka byggingu, er gott að hafa nokkur atriði í huga. Hver stálbiti verður að falla nákvæmlega þar sem hann á að vera. Hver stytta einnig og svo er reyndar með hvern hlut. 1 byggingunni verða til dæmis yfir 1000 hreinlætisrúm, en að hverju slíku rúmi liggja að sjálfsögðu heitt og kalt vatn og frárennsli, öll rör, sem að þessu Hggja, þurfa að vera nákvæmlega tilskorin, er þau eru komin þangað, sem þau eiga að vera og í hendur þeirra manna, hvar sem er í bygging- unni, sem koma þeim fyrir. Þá eru það afköstin. Hver hópur manna, fagmanna, sem verka- manna, eru ætluð viss afköst, en það kemur af því, að verksmiðjum og verkstæðum er fyrir- fram lagt fyrir hve mikið af efni skuli vera komið á vinnustað á vissum tímum, eða að hvert það tæki, sem nota skal, verður komið fyrir á tilsettum tíma. Tækni nútímans sér fyrir, að þessir útreikningar standizt. Til dæmis má geta þess, í sambandi við þessar nákvæmu áætlanir, að fyrir 25 arum, þegar slagur var um hverja vinnustund og að meðaltali 7 verkamenn og iðn- aðarmenn fyrir 1 um hvert verkefni, komust harðduglegustu götusteinaleggjarar í New York upp í það að leggja 700 steina á dag, sem auð- vitað er ómennskur þrældómur, en nú er talið gott ef einn maður leggur 400 slíka steina á dag. Naglahnoðar við byggingu skýjakljúfs, er þá tekið tillit til aðstæðna, er gert að hnoða 250 nagla á dag, þykir þeim fagmönnum mjög mið- ur, ef slík afköst názt ekki. Við undirbúning byggingu skýjakljúfs þarf mikinn uppgröft og sprengingar í því sambandi. Það verk er ætíð mjög erfitt í stórborgum, þar sem margar lífæðar athafnalífsins eru neðan- jarðar, svo sem neðanjarðar járnbrautarlestirn- ar, vatnsleiðslur, sími, rafmagn og margt fleira. Þá eru sprengingar í miðju margra stórbygg- inga með fjölda glugga, ætíð hættulegar, en þar kemur tæknin einnig að haldi, því að viðburður þykir ef ein rúða í glugga brotnar, eða nokkurs- staðar verði skekkja á dyrakarmi í næstu bygg- ingum, þetta reikna hinir faglærðu með því að áætla hversu mikið högg jarðvegurinn í kring þolir. Margir hafa haldið til þessa að skýjakljúfar, þessar þungu byggingar yrðu brátt ofviða burð- armagni Manhattan, en svo er alls ekki. Socany Mobil byggingin vegur til dæmis 177.500 lestir, en jarðvegurinn, sem mokaður var upp niður á fast, vegur 250.000 lestir, þannig að heldur létt- ir á undirstöðunni heldur en hitt. Eins og áður er sagt, er bygging skýjakljúfs hættuleg vinna. Fyrir aðeins 20 árum reiknuðu tryggingarfélög að verkefni, sem kostaði 1 millj. dollara, hefði í för með sér eitt mannslíf, en eft- ir þessum útreikningi ættu 43 menn að missa lífið við „Socany Mobil Building”, en verkstjór- ar við þá byggingu eru mjög hreiknir, því að nú er verið að ljúka við verkið, og hefur aðeins einn maður misst lífið, en auk þess 115 meiðst, þannig að orðið hefur að leita til sjúkrahúss. Þykir þetta mikil framför í byggingu skýja- kljúfs. VÍKINGUR 53

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.