Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1956, Blaðsíða 26
7/10. Ameríski Nóbelsverðlauna-
höfundurinn William Faulkner vænt-
anlegur hingað. Er á leið heim úr
ferðalagi umhverfis jörðina.
12/10. Mikið tjón varð, er eldur
kom upp í fiskverkunarstöð Guð-
mundar Þorsteinssonar í Ölafsfirði.
•
14/10. Mikill leki kom að skipinu
„Einar Ólafsson“, er það var statt|
út af Irlandi. Skipið var á leið til
Bilbao á Spáni með saltfiskfarm.
•
15/10. Afhjúpaður minnisvarði, sem
reistur hefur verið austan við Foss-
vogskapellu til minningar um þá Is-
lendinga, er farið hafa í flugslysum.
•
17/10. Lokið er smiði brúar yfir
Skjálfandafljót hjá Stóru-Völlum í
Bárðardal. Brúin er yfir 112 metra
og er lengsta hengibrú á Islandi.
•
19/10. Það slys varð um borð í
togaranum „Norðlendingi", að einn
hásetann, Helga Árnason frá Ólafs-
firði, tók út og drukknaði.
•
20/10. Mikil sprenging varð í
frystihúsinu á Þórshöfn, er amm-
oníakkútur sprakk í vélasal hússins.
Þrír menn brenndust allmikið, einn
hættulega og var hann fluttur til
Reykjavíkur.
22/10. Banaslys varð á Reykjanes-
braut, er tveir litlir drengir urðu
fyrir sendiferðabil, og Iézt annar
þeirra, Sigurður Thoroddsen, 7 ára
gamall.
•
24/10. Ungur maður, Steinar
Waage, hefur fyrstur íslenzkra skó-
iðnaðarmanna lokið prófi í skósmíði
fyrir bæklaða við Bæklunarsjúkdóms-
spítalann í Árósum.
•
26/10. Það slys varð á Súganda-
firði, að fimm ára drengur, Hilmar
Páll Jakobsson, féll út af bryggju í
sjóinn og drukknaði.
•
28/10. „Kyndill“, hið nýja olíu-
flutningaskip H.f. Shell á íslandi og
Olíuverzlunar íslands h.f. komið til
Reykjavíkur. — Halldór Kiljan Lax-
ness veitt bókmenntaverðlaun Nó-
bels fyrir þetta ár. ~
30/10. Banaslys varð við Reykja-
víkurhöfn, er skipverji á m.b. „Stein-
unni gömlu", kafnaði af völdum
reyks, er eldur kom upp í skipinu.
•
1/11. Brezkur togari, „Barry
Castle“, sökk út af Rifi, er verið
var að draga hann til hafnar á Isa-
firði; 4 af áhöfninni drukknuðu.
•
3/11. Undanfarið hefur dvalizt hér
á landi þýzkur blaðamaður að nafni
Alfred Fischer, ásamt konu sinni, og
liefur hann unnið að því að safna
efni í greinar um Island.
•
4/11. Ríkisstjórn fslands hefur
samið við sænsku stjórnina um að
aflétt verði vegabréfaskyldu fslend-
inga, sem til Svíþjóðar koma.
•
5/11. Bóndinn á Ytri-Másstöðum
í Skíðadal í Svarfaðardalshreppi
fórst í snjóflóði, er hann var að
Ieita kinda.
•
7/11. Undirritaður hefur verið í
Rómaborg viðskiptasamningur milli
íslands og Ítalíu, og gildir hann frá
1. nóv. 1955 til 31. okt. 1956.
•
9/11. Undanfarið hafa 11 togarar
stundað ísfiskveiðar fyrir Þýzka-
Iandsmarkað. Hafa sölur verið all-
góðar og nemur hæsta salan 149 þús.
mörkum, og er það metsala á þessu
ári og s.l. ári.
•
11/11. 50 ár eru nú liðin síðan
Fiskveiðasjóður fslands var stofnað-
ur. Alls hefur hann lánað yfir 112
millj. kr.
•
13/11. Eldur kom upp í vélbátnum
„Skaftfellingi“, þar sem hann Já við
verbúðarbryggju í Iíeykjavíkurhöfn.
Talsverðar skemmdir urðu á bátn-
um og einn skipverja hlaut nokkur
brunasár.
•
15/11. Nýlega komu hingað til
lands á vegum Iðnaðarmálastofnunar
íslands erlendir sérfræðingar í fram-
leiðslu. Munu þeir halda hér nokkra
fyrirlestra.
•
17/11. Stórkostlegur bruni varð á
Akureyri, er eldur kom upp í gamla
Hótel Akureyri, og brann það til
kaldra kola.
•
19/11. Enskur leikstjóri, Walter
Hudd, kominn hingað til Iands og
setur hér upp leikrit Shakespeares,
Draum á Jónsmessunótt, og er það
jólaleikrit Þjóðlcikhússins í ár.
•
22/11. Línuveiðarinn „Sigríður“
landaði 600 kössum af bátafiski frá
Ólafsvík í Newcastle on Tyne í
Bretlandi.
•
24/11. Bandarísk Dakotaflugvél
rakst á Akrafjall og fjórir menn,
sem í hcnni voru, fórust allir sam-
stundis.
•
26/11. Kominn er hingað lands á
vegum Þjóðleikhússins 60 manna
söngleikaflokkur frá Pekikng-óper-
unni, og mun halda hér fjórar sýn-
ingar.
•
28/11. Hin sameiginlega bókaút-
gáfa Þjóðvinafélagsins og Menning-
arsjóðs hefur nú starfað í 15 ár.
Hefur gefið út 78 félagsbækur.
•
30/11. Það sviplega slys vildi til
norður í Bárðardal, að Sigurður
Baldursson, bóndi að Lundarbrekku,
féll niður um ís á Brunnvatni og
drukknaði.