Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Page 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1956, Page 9
ög tækið, sem er í bátnum, er mjög lítið og auð- velt í meðförum, svo að á því má halda í hend- inni. Þegar tæki þessu hefur verið komið fyrir í Grindavík er vonandi, að fiskibátum auðveldist Móttökutækið um borð mjög innsiglingin þar og slysahættan minnki. Tækið um borð í bátnum er tiltölulega ódýrt miðað við það gagn, sem það vonandi gerir. — Þess má geta, að Hraunprýði í Hafnarfirði og Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík lögðu fram fé til kaupa á tækjum þessum. — Smœlki — Óli litli 7 ára hafði brotið rúðu hjá nágrannanum. Móðir hans sagði við hann, að nú yrði hann að taka út alla peningana úr sparibauknum til þess að borga með rúðuna. Óli hugsaði sig um litla stund, en svarar svo: — Ég borga ekki nema gatið á rúðunni. * — Af hverju ertu svona áhyggjufullur á svipinn? — Konan mín er á leið í ferðalag. — Ekki þarftu að vera svona áhyggjufullur þess vegna. — Jú, annars fer hún ekki. * Er það ekki einkennilegt, að einn bíllykill skuli lika passa að hjöi-tum margra stúlkna? annan ársfjórðung 1956 (1. apríl til 30. júní): Selt í og frá Reykjavík .. .. kr. 21.849.667,00 Selt í og frá Seyðisfirði .... — 539.232,00 Selt í og frá Siglufirði .... — 1.194.089,00 Samtals kr. 23.682.988,00 Árið 1955 nam sala á sama tíma: Selt í og frá Reykjavík .. .. kr. 18.860.337,00 Selt í og frá Seyðisfirði .... — 434.920,00 Selt í og frá Siglufirði .... — 1.286.629,00 Samtals kr. 20.581.886,00 Áfengi til veitingahúsa selt frá aðalskrifstofu 2. ársfjórðung fyrir kr. 839.564,00 (1. ársfjórð- ung kr. 1.091.122,00). Allveruleg hækkun varð á áfengi 18. maí 1955. Sala áfengis frá Áfengisverzlun ríkisins nem- ur alls kr. 45.366.744,00 fyrra misseri ársins 1956, en í fyrra á sama tíma nam salan alls kr. 37.928.307,00. Heildarsalan allt árið 1955 nam alls krónum 89.268.887,00. Áfengisvamaráðunauturinn. Reykjavík, 12. júlí 1956. Brynleifur Tobiasson. & & & Dýrir skór i Port Said í sænska sjómannablaðinu „Sjömannen“ eru farmenn aðvaraðir við kaupmönnum í Port Said við Suez-skurðinn vestanverðan. Það kemur nefnilega oft fyrir, að reikningarnir, sem skip- stjórinn fær vegna úttektar skipverja hjá kaup- mönnunum, eru ekki í samræmi við verð það, sem keypt var fyrir. Til skýringar skal þess get- ið, að sá háttur er hafður á, að skipverjinn kaupir af kaupmanninum ýmsar vörur, undir- ritar reikninginn með árituðu verði vörunnar, en skipstjórinn greiðir síðan af kaupi viðkom- anda. Fyrir nokkru greiddi skipstjóri einn slík- an reikning fyrir einn af skipverjum sínum, er hafði keypt sér skó á £ 1-10-0, og hljóðaði reikningurinn upp á £ 11-10-0. Kaupmaðurinn hafði gert sér lítið fyrir og bætt einum fyrir framan hið umsamda verð. VÍKINGUR 169

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.