Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Blaðsíða 22
um; opnir bátar öfluðu 248 lestir
í 361 sjóferð. Aflahæsti báturinn
var Stígandi VE 77 — skipstjóri
Helgi Bergvinsson — með 854.3
lestir í 95 sjóferðum. 27 bátar
voru nær eingöngu með færi.
I fyrra var aflinn 42.366 lestir
í 6.591 sjóferð.
Stolckseyri. Þaðan voru 3 bát-
ar gerðir út og er það sami fjöldi
og árið áður. — Heildaraflinn
var 1.191 lest í 242 sjóferðum
(756 lestir í 125 sjóferðum í
fyrra). — Aflahæsti báturinn
var Hólmsteinn II ÁR 193 með
514 lestir í 89 sjóferðum. Skip-
stjóri er Óskar Sigurðsson.
Eyrarbakki. Þaðan reri ein-
ungis einn bátur að þessu sinni
— Jóhann Þorkelsson ÁR 24,
skipstjóri Bjarni Jóhannsson —
og aflaði 180.2 lestir í 44 spó-
ferðum. í fyrra öfluðu tveir bát-
ar 186 lestir.
Þorlákshöfn. Þaðan var útgerð
hin sama og undanfarin ár eða
8 bátar. — Heildaraflinn var
4395.5 lestir í 652 sjóferðum
(3125 lestir í 555 sjóferðum í
fyrra). Aflahæsti báturinn var
Friðrik Sigurðsson ÁR 7 með
837.3 lestir í 99 sjóferðum. Skip-
stjóri er Guðmundur Friðriks-
son.
Grindavík. Þaðan reru 24 bát-
ar, en í fyrra voru gerðir það-
an út 21 bátur auk opinna vél-
báta. Heildaraflinn var 12.253.3
lestir í 1665 róðrum, en var í
fyrra 10.766 lestir í 1445 róðr-
um. Aflahæsti báturinn að þessu
sinni var Arnfirðingur RE 212
með 911,5 lestir í 95 róðrum. —
Skipstjóri á Arnfirðingi er Gunn-
ar Magnússon.
Hafnir. Þar var afli nokkurra
smábáta alls 193 lestir í 300
róðrum.
Sandgerbi. Þaðan stunduðu
veiðar 17 bátar (20)* auk opinna
vélbáta, og öfluðu alls 9581 lest
í 1395 sjóferðuni (varð 9397 lest-
ir í 1296 róðrum árið áður), en
heildaraflinn var 9949 lestir.
* Allar svigatölur miðast við fyrra
ár. —
230
Aflahæsti báturinn að þessu
sinni var Helga ÞH 7 — skip-
stjóri Maríus Héðinsson með 850
lestir í 93 róðrum. — Aðeihs einn
bátur hélt út með línu alla ver-
tíðina — Jón Gunnlaugsson GK
— sem fékk 617 lestir í 91 róðri.
Keflavík. Þaðan stunduðu veið-
ar að mestu leyti 53 stærri bát-
ar (60), en auk þeirra allmargir
opnir bátar. — Heildaraflinn
varð 21.918 lestir (20.813). —
Stærri bátarnir öfluðu alls 21.689
lestir í 3425 sjóferðum (20.126
í um 3380 sjóferðum).
Aflahæsti báturinn að þessu
sinni var Askur KE 11 — skip-
stjóri Angantýr Guðmundsson —
með 857 lestir í 91 róðri.
Vogar. Þaðan stunduðu 4
stærri bátar auk allmargra op-
inna vélbáta.
Heildaraflinn varð 1993 lestir
í 457 sjóferðum (1666 lestir).
Afli stærri bátanna var 1609
lestir í 254 sjóferðum (1396 lest-
ir). — Aflahæsti báturinn var
Heiðrún ÍS 4 — skipstjóri Bene-
dikt Ágústsson — með 511 lestir
í 63 sjóferðum. Báturinn fór
nokkrar sjóferðir í útilegu.
Hafnarf föröur. Þar lönduðu
afla sínum 36 stærri bátar (28)
auk opinna vélbáta. — Heildar-
afli var 13.183 lestir (9.185). —
Stærri bátarnir öfluðu 13.028
lestir í 1805 sjóferðum (8.979).
— Aflahæsti báturinn var Haf-
örn GK 321 með 929 lestir í 62
sjóferðum, sem sumar hverjar
voru útilega — skipstjóri er Sæ-
mundur Þórðarson.
Reykjavík. Þaðan stunduðu
veiðar 49 stærri bátar (43) auk
ýmissa smærri þilfarsbáta og op-
inna vélbáta. Heildaraflinn varð
16.986 lestir (13.121). — Stærri
bátarnir öfluðu 16.074 lestir í
2.253 sjóferðum (12.225). Afla-
hæsti báturinn var Helga RE 49
með 894 lestir í 36 sjóferðum.
Sikpstjóri er Ármann Friðriks-
son.
Akranes. Þaðan stunduðu veið-
ar 23 stærri bátar (21) auk op-
inna vélbáta. Heildaraflinn var
11.737 lestir (9336), en afli
stærri bátanna nam 11.487 lest-
um í 1457 sjóferðum (8680 lest-
ir í 1141 sjóferð).
Aflahæsti báturinn var Sigrún
AK 71 með 895 lestir í 87 sjó-
ferðum. Skipstjóri Helgi Ibsen.
Hellissandur og Rif. Þaðan
stunduðu veiðar 66 stærri bátar,
auk opinna vélbáta, og öfluðu
3.544 lestir í 502 sjóferðum.
Heildaraflinn var 3.695 lestir í
615 sjóferðum (2.768 lestir, þar
af afli opinna vélbáta 151 lest).
Að þessu sinni var Stígandi
ÓF 25 aflahæstur með 943 lestir
í 104 sjóferðum. Skipstjóri er
Sigurður Kristjánsson.
Ólafsvík. Þaðan stunduðu veið-
ar fleiri stærri bátar en áður eða
17 auk opinna vélbáta (15).
Heildaraflinn var 8.478 lestir
(6.358). Stærri bátarnir öfluðu
alls 8.334 lestir í 1.204 róðrum
(6.204).
Aflahæsti báturinn var Stapa-
fell SH 15 — skipstjóri Tryggvi
Jónsson — með 1.002 lestir í 103
sjóferðum.
Grundarfjörður. Þaðan stund-
uðu 8 stærri bátar veiðar. Afli
þeirra nam samtals 3.217 lest-
um í 497 sjóferðum (3.872).
Aflahæsti báturinn var Grund-
firðingur II SH 124 með 561 lest
í 87 sjóferðum. Skipstjóri Sóff-
anías Cecilsson.
Stykkishólmur. Þaðan voru
gerðir út 6 bátar, auk opinna
vélbáta og er það svipuð útgerð
og árið áður. Heildaraflinn nam
2.615 lestum í 466 sjóferðum.
(2.364). Afli stærri bátanna var
2.559 lestir í 414 sjóferðum
(2.293).
Aflahæsti báturinn var Svan-
ur SH 111 — skipstjóri Eyjólf-
ur Ólafsson — með 544 lestir í
81 sjóferð.
Patreksfjörður. Þaðan stund-
uðu veiðar 6 stærri bátar auk
opinna vélbáta, og er það svipuð
útgerð og í fyrra. Heildaraflinn
var 2.393 lestir í 557 róðrum
(1.405). Afli stærri bátanna var
2.174 lestir í 208 sjóferðum.
Aflahæsti báturinn var Sæ-
borg BA 25 — skipstjóri Finn-
bogi Magnússon — með 928 lest-
ir í 76 sjóferðum.
Vf KINGUR