Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1960, Blaðsíða 24
LAX- OG SILUNGSUPPELDI
U.S.S.R.
Rússar liafa ákveðiú að tvö-
falda tölu þeirra lax- og sil-
ungsiippehlisstöð’va sem þeir
eiga nú, á næstu sjö ámin, til
þe8S að vinna fullkomlega upp
þá afturför sem átt hefur sér
stað í þessari framleiðslugrein.
Akveðið hefur verið að hyggja
38 slíkar uppeldisstöðvar, þann-
ig að ársframleiðslan komist
upp í 1.4 billión laxfiska. í
Rússlandi eru nú 32 slíkar
stöðvar, er gefa af sér 600 millj.
laxfiska.
Stöðugur samdráttur hefur
verið í laxveiðum Rússa frá
1955 til 1958. Árið 1955 var
heildarveiðin 172.400 metrie
tons, 1956 var hún 160.000 tonn,
1957 var hún 150.000 tonn og
1958 náði hún aðeins 73.000
tonnum. Engar tölur eru komn-
ar fyrir árið 1959, en vísinda-
menn telja veiðina minni held-
ur en 1958.
NÝ QUEEN MARY
Hagkvæmasta skipsstærð til
þess að koma í staðinn fyrir
hina gömlu Queen Mary (sem
fór íreynsluferð 1936 og nú er
orðin úrelt) til þess að sigla um
öldur Atlantshafsins með far-
þega, er talin vera 75.000 smál.
skip. Áætlað kostnaðarverð á
slíku skipi er 25 til 28 milljónir
steriingspunda.
Ákvörðunin um það hvort
fnmkvæma eigi þessa áætlun,
liggur nú sem stendur til yfir-
vegunar hjá brezku ríkisstjórn-
inni, sem að öllum likindum
leggur fram 18 millj. stpd. til
Cunard-línu félagsins, sem legg-
ur sjálft fram 12 millj. slpd. og
og á í gegnum dótturfélag að
vera hinn lögfræðilegi eigandi
skipsins. Hinu nýja skipi er
ætlað að geta flutt 2.270 far-
þega og ganghraði þess á að
vira 29,5 míla.
NÝJAR UPPFINNINGAR
General Electric Ltd. í Lon-
don hefur smíð'að kæliskáp, sein
gtngur fyrir rafhlöðu. Frysting-
in hyggist á algjörlega nýjum
lögmáluin og fer fram með raf
magnsstraumi í stað notkunar
frvstivökva. Fleiri fyrirtæki
vjpna nú að því að fullgera
þessa nýju uppgötvun, sem tal-
in er valda muni byltingu í
kæliskápaframleiðslu .... Win-
chester skotvopnaverksmiðjan í
Randaríkjunum er farin að nota
nýja gerð af hörðu plasti í
hlaup á haglabyssum í stað
stáls. Plastið er sagt sterkara,
léttara og ódýrara en stálið.
(Internotional Managemcnt
Digest, jún, 1960).
450.000 GRÁSLEPPUM
FLEYGT f ÁR
Grásleppuveiði eykst með
hverju árinu. Grásleppan er
eingöng-u veidd vegna hrogn-
anna, sem eru mjög verð-
mæt. Þetta vor er búizt við,
að aldrei verði saltað í minna
en 3.000 tunnur, en í hverja
tunnu fara um 110 kg. af
hrognum. Gizkað er á, að
hrogn þurfi úr um 150 slepp-
um til að fylla tunnuna. Til
að fylla þessar 3.000 tunnur
verða því veiddar um 450.000
grásleppur. Þegar hrognun-
um sleppir, er aðeins örlítill
hluti af sjálfum fiskinum
hirtur. Eitthvað mun vera
hengt upp af grásleppu og
smávegis saltað, en markaður
er lítill fyrir þá vöru. Erfið-
leikar eru líka á hagnýtingu
rauðmagans. Sýnishorn af
honum hafa verið send úr
landi og verið er að athuga
með sölumöguleika. Hvað við-
víkur grásleppuhrognunum,
þá er mestur hluti þeirra
fluttur út saltaður í tunnum
og er markaður mjög góður.
Útflutningsdeild SÍS lætur
fullverka nokkurn hluta
þeirra hrogna, sem lögð eru
inn hjá kaupfélögunum. Eru
þau flutt út, aðallega til
Frakklands, sem grásleppu-
kavíar, í mjög smekklegum
glösum. Hefur kavíar þessi
einnig verið seldur innanlands
og nýtur vaxandi vinsælda.
Ekki þarf að taka það fram,
að verðmæti hrognanna eykst
mjög mikið, ef hægt er að
fullvinna þau hér heima. Að-
stæður eru þó enn ekki það
góðar, að hægt sé að fullvinna
hrognin hér í stórum stíl.
Áætlað er, að saltendur
hrognanna muni fá a. m. k.
1800 krónur fyrir tunnuna nú
í sumar. Lætur því nærri, að
vtrðmæti grásleppuhrogn-
anna verði um 5,5 milljónir
króna.
í ársyfirliti fyrir 1959, sem nýkoniið er út á veguni U.S. Depart-
ment of Agriculture, segir að vaxandi hluti matvælaneyzlu í
Bandaríkjunum fari fram utan hcimilanna. En það sé á kaffi-
húsuni, liótelum, verksmiðju-matstofum, unglingaskólum og æðri
skólum, og margs konar öðrum matsölustöðum. 1 skýrslunni er
talið að hinn almenni neytandi fari þannig með % hluta úr
hverjum dollar er fer til fæðis, til neyzlu utan við heimilið.
Matsala í skólum er vel liðin af þeim sem fást við kennslu,
sem ríkur þáttur í samheldni innan skólanna. Um 60.000 af þeim
106.000 ahnennu skólum sem nú starfa í Bandaríkjunum, liafa
þannig að meira eða minna leyti komið á hjá sér slíkri matsölu.
Um 54.000 af þessum skólum starfrækja matsölu sína á grund-
velli National School Lunch Program, en það er hyggt á því
að afla skólunum þess sem þeir þurfa til starfseminnar á hag-
kvæinasta verði, og bundið því skilyrði að starfsemi sé ekki rekin
á ágóðagrundvelli. Einnig geta þessir skólar notið nokkurs stuðn-
ings fjárhagslega, gegn því skilyrði, að afhenda ókeypis eða gegn
lægra verði mat til barna, sem ekki liafa fjárráð lil að greiða
inatinn.
232
VÍKINGUR