Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 26
M/s Esja.
Ekki er hægt að segja, að
mikið hafi farið fyrir því, að í
septembermánuði s.l. var m.s.
Esja búin að veita þjóðinni
þjónustu sem strandferðaskip í
aldarfjórðung, og ekki er kunn-
ugt, að nokkuð skip hafi jafn-
langan tíma annast strand-
ferðaþjónustu hér á landi.
Kjölurinn af m.s. Esju var
lagður 4. marz 1939, fór í
reynsluför 15. sept. og var afhent
eiganda sínum, Skipaútgerð rík-
isins 17. sept., og til Reykjavík-
ur kom m.s. Esja 22. sept. 1939.
Var skipið byggt í skipasmíða-
stöðinni Aalborg verft a.s. í
Álaborg í Danmörku. Hafði sú
skipasmíðastöð áður byggt fyrir
íslendinga eitt skip, m.s. Lax-
foss, sem var um skeið í Borgar-
nes- og Akranesferðum, en síðar
hefur þessi sama skipasmíðastöð
byggt fyrir Islendinga fimm
skip, og nú eru tvö skip í smíð-
um.
M.s. Esja er að stærð 1347
br. tonn, knúin tveim 1250 hest-
afla dieselvélum. Á skipinu eru
tvö farrými, með hvílum fyrir
148 farþega.
Sá er línur þessar ritar, hef-
ur ekki skrár yfir tölu hring-
ferða eða hluta af hringferðum,
sem Esja hefur farið á þessum-
aldarfjórðungi, né fjölda við-
komu á hinum einstöku höfnum,
þær skipta að sjálfsögðu mörg-
um þúsundum. Hið sama verður
upp á teningnum varðandi far-
þegafjölda á nefndu tímabili.
Strandferðir við Island eru
oft erfiðar, gegnum brim og
boðaföll hinnar skerjóttu strand-
ar. Þegar litið er yfir sögu m.s.
Esjunnar sem strandferðaskips í
aldarfjórðung, verður ekki hægt
að segja annað, en gifta hafi
fylgt henni. Hún hefur ekki á
þessum aldarfjórðungi komist
hjá óhöppum, frekar en svo
mörg skip, sem sjaldnar hafa
farið meðfram íslenzku strönd-
inni. Við þessi tímamót var m.s.
Guðjón Teitsson, forstjóri.
Pálmi Loftsson
Esja í flokkunarferð í Álaborg,
hjá þeirri skipasmíðastöð, sem
byggði hana.
Fyrsti skipstjóri á m.s. Esju
var Ásgeir Sigurðsson, 1948-
1952 var Ingvar Kjaran skip-
stjóri, síðan Guðmundur Guð-
jónsson núverandi skipstjóri á
m.s. Heklu. — Frá 1961 hefur
Tryggvi Blöndal verið skipstjóri
á m.s. Esju.
Fyrsti yfirvélstjóri á m.s.
Esju var Aðalsteinn Björnsson,
frá 1948—1956 var Magnús
Jónsson yfirvélstjóri, — síðar
Bergsveinn Bergsveinsson nú-
verandi yfirvélstjóri á m.s.
Heklu, og frá 1961 hefur Guð-
mundur Erlendsson verið yfir-
vélstjóri.
Fyrsti bryti á m.s. Esju var
Sigurður Guðbjartsson, síðar
þeir Elías Dagfinnsson, Aðal-
steinn Guðjónsson og frá 1959
hefur Böðvar Steindórsson verið
bryti á m.s. Esju.
Loftskeytamenn hafa verið
þeir Friðrik Halldórsson, Lýður
Guðmundsson, Sverre Smith og
núverandi loftskeytamaður, Að-
alsteinn Guðnason.
Stýrimenn á m.s. Esju eru nú
Friðrik Jónsson 1. stýrimaður,
Garðar Þorsteinsson 2. stýri-
maður og Haukur Sigurðsson 3.
stýrimaður.
)
r
240
VÍKINGUR