Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 69
að baki, enda er stöðin viðurkennd
fyrir fyrsta flokks vinnugæði.
Við smíði skipa, smærri sem
stærri er nú notuð nýjasta tækni
út í yztu æsar og eru farkostimir
útbúnir nýjustu siglingatækjum. —
Eru margar nýsmíðarnar útbúnar
pólskum siglingatækjum, en pólsk-
ar verksmiðjur hafa í seinni tíð
unnið sér álit fyrir vandaða fram-
leiðslu slíkra tækja.
Skipasmíðastöðin í Gdansk hefir
undanfarin ár smíðað Dieselvélar
eftir „patenti" frá hinum heims-
þekktu vélaverksmiðjum Sulzen og
Burmeister & Wain í Kaupmanna-
höfn. Til fróðleiks má geta þess,
að skipasmíðastöðin í Gdansk
byggði á síðastliðnu hálfu öðru ári
fleiri skip en öll árin á milli heims-
styrjaldanna tveggja. Gdansk-stöð-
in, ásamt Miðstöðinni fyrir skipa-
teikningar í Póllandi, hafa á henni
allar teikningar og tækniútbúnað í
215 smálesta fiskibátur, smíðaður í Póllandi til alhliða veiða,
fyrir franskan úgerðarmann I Boulogne.
Pólverjar flytja út skip og skipasmíðastöðvar
Hraður vöxtur virðist nú í skipa-
byggingum Pólverja og hefir sú
þróun vakið talsverða athygli víða
um heim. Þeir eru komnir í 10.
sætið í skipaframleiðslu heimsins
miðað við lestarúm og eru nú
orðnir aðrir í röðinni hvað viðkem-
ur smíði fiskiskipa og viðgerðum á
þeim. ■ •
Síðustu 15 árin hafa pólskar
skipasmíðastöðvar byggt samtals
650 skip með lestarúm 2,2 millj.
dw. lestir. Hafa þar af 1,5 millj.
lestir seldar til erlendra skipaeig-
enda í ellefu löndum.
Þá hafa Pólverjar annast við-
gerðir á 15.600 skipum, þar af
4.326 fyrir erlenda aðila.
Á árinu 1963 voru í Póllandi
byggð skip að rúmmáli 300 þús.
lestir og á árinu 1965 áætla þeir
að byggð verði skip sem nema að
rúmmáli um 450 þús. lestir.
Pólverjar virðast leggja mikið
upp úr þessari atvinnugrein og
leggja mikla áherzlu á að efla hana,
sérstaklega með því að þjálfa upp
hæfa starfskrafta, en þeir byggja
einnig á langri reynslu í þessum
efnum og hafa unnið sér álit á
heimsmarkaðinum fyrir hæfni og
vandaðan og traustan frágang í
skipasmíði. — Þá hafa þeir einnig
eins og áður er sagt, tekið að sér
viðgerðir skipa í stórum stil og
hafa reynst samkeppnisfærir á því
Skipasmíðastöðin í Gdansk er hin
elzta sinnar tegundar í Póllandi, og
hefir þar af leiðandi lengsta reynslu
sviði.
Skipasmíðaslöðin í Gdansk.
VÍKINGUR
283