Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Blaðsíða 10
hennar aflað með álagningu sér- staks gjalds af útflutningsverðmæti. Nam hlutur útflutningsgjalda af út- flutningsverðmæti 6-7% árin á eftir. í þriðja lagi má svo nefna það, að í júní 1973 var útflutningsgjald aukið vegna erfiðrar stöðu Fisk- veiðasjóðs. Aukin umsvif og upp- bygging í sjávarútvegi og ör verð- bólguþróun höfðu leitt til mikillar rýrnunar sjóðsins og sívaxandi lán- töku hans. Þótt áhrif þessa nýja gjalds kæmu fyrst fram að fullu ár- ið 1974, hækkaði hlutur útflutn- ingsgjalda í 7,2% þegar á árinu 1973. — Það væri fróðlegt að skýra nánar frá tilgangi Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs, en þessir tveir elztu sjóðir og hlutverk þeirra eru það þekkt, að ég tel óþarfa að lengja við- talið með því. Þá er það í fjórða lagi Stofnfjár- sjóður fiskiskipa, sem stofnaður var með lögum í maí 1968, og er deild úr Fiskveiðasjóði, til þess að aðstoða eigendur fiskiskipa við skil á greiðsl- um alborgana og vaxta á lánum veittum úr Fiskveiðasjóði til kaupa á fiskiskipum, Um tekjur sjóðsins skyldi ákveðið með lögum hverju sinni. Gjaldið nemur ákveðnum hundraðshluta af fiskverði og greið- ist inn á reikning hvers fiskiskips í sjóðnum, í hlutfalli við afla skips- ins. Hlutfall greiðslna í Stofnfjár- sjóð miðað við skiptaverðmæti hef- ur verið nokkuð breytilegt, allt frá 15,5% árið 1970 niður í tæp 12% árið 1972. Fyrir árið 1975 nemui áætlað hlutfall gjaldsins réttum 15% að skiptaverðmæti aflans. Þá skal í fimmta lagi nefnt, að í nóvember 1968 var aukinni fjár- þörf útgerðar vegna kostnaðarauka af völdum .35% gengisfellingar í þeim mánuði mætt með því að setja sérstaka kvöð á fiskkaupendur. Skyldu fiskkaupendur inna af hendi beina greiðslu til útgerðarfyrirtækja, scm næmi 17% af fiskverði eins og það \töí ákveðið að Verðlagsráði sjávarútvegsins sem hlutdeild af rekstrarkostn aði. Útgerðarkostnaðar- SkÍDtaver',í>mæti Cm.kr1.) 20 Vf»0 -60 80 ' 100 120 140 160 hlutdeildin kom hvorki til hluta- skipta né aflaverðlauna. Hún var lækkuð niður í 11 % í ársbyrjun 1970 og síðan endanlega felld niður í júlílok 1971. Mig langar til að nefna það, að árið 1968, þegar þess- ar miklu breytingar urðu á verð- lagningu sjávarafurða, tekið af ó- skiptu til viðbótar því, sem áður hafði verið og mismunandi eftir tegundum, þá samþykkti stjóm Farmanna- og fiskimannasambands Islands mjög harðorð mótmæli og taldi, að þama væri illilega gengið á hlut sjómanna og með lögum tek- ið það sem sjómönnum bar sam- kvæmt samningum. Leit stjómin á þessar fjárfúlgur sem lán til út- gerðarinnar og áskildi sér rétt til þess að endurheimta þetta fé fyrir hönd sjómanna, eins fljótt og kostur væri. 10 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.