Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Blaðsíða 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Blaðsíða 21
Segja má að heildarafli á Vest- fjörðum verði ámóta og var í fyrra, nema haustvertíðin sem hefur verið léleg. Þar hefur saman farið mjög erf- itt tíðarfar og lélegur afli. Róið hef- ur verið nokkuð stíft, en mikið hefur verið um svokallaða skælingsróðra og flótta undan veðri. Skuttogararnir hafa einnig fengið að kenna á þessu og hefur afli þeirra verið rýr síðustu mánuði, ís hefur og þvælst fyrir þeim undanfarið og legið yfir beztu svæðunum. Patreksfjörður: Þaðan hafa fimm skip stundað VÍKINGUR línuveiðar: Vestri, Jón Þórðarson, Gylfi, Þrymur og Örvar. Róðra- fjöldi í nóvember var 17—19 róðr- ar og skárstur afli 94 tonn á bát. Þann 20. des. var skást um 60 tonn á bát. Patreksfirðingar virðast vera einna bezt í stakk búnir með rekstur smærri skipa vegna legu staðarins að góðum fiskimiðum bæði hvað snert- ir línu og net. Enda þótt neta- og línuveiði hafi á seinni árum verið mun lakari en áður var, hversu lengi sem sá tregðukafli kann að standa. Þar er í smíðum stórt og glæsi- legt frystihús, er því fyrirsjáanlegt að þeir þurfi á skuttogara að halda til þess að jafna vinnsluna, enda staðurinn gamall togaraútgerðarbær. Allt tal um stöðvun á smíði skut- togara fyrir hin ýmsu byggðalög landsins er hreinasta firra. Annað hvort er það pólitískt þokumál eða menn sjá hvorki aftur né fram fyrir sig. Hins vegar hefur nú þegar verið bætt úr þörfum margra staða þannig að togarabyggingum fækkar af sjálfu sér. Mikið er um íbúðarhúsabygging- ar á Patreksfirði um þessar mund- ir. Svo það er greinilega bjartsýni í mönnum. Á sumarvertíð hefur afli snurvoða- (dragnóta) og handfæra- báta verið nokkuð góður. Bíldudalur: Þaðan réru 7 bátar á rækju eða helmingi færri en í fyrra. Var afli þeirra 45 lestir í nóvember en árið áður fengust 68 lestir á sama tíma- bili. Engin önnur útgerð hefur verið þar í haust, enda er það eini stað- urinn sem eitthvað hefur af at- vinnuleysi að segja. Er það slæmt að ekki skuli geta þrifist önnur útgerð en rækjuveiði, slíkt er of einhæft at- vinnulega séð. Trúlegt er að á því verði einhver breyting áður en langt um líður. Tálknafjörður: Tálknfirðingur og Tungufell réru með línu, voru þeir með milli 80-90 tonn hver í nóvember í 17-18 róðr- um. Á haustvertíðinni í fyrra var best á bátum 140 lestir í nóvember. Eru hlutföll í aflamagni eitthvað þessu lík á flestum stöðum á Vest- fjörðum miðað við fyrri vertíð. Þriðji báturinn, Sölvi Bjamason, stundaði síldveiðar í Norðursjó og við Suðurland og fiskaði allvel eða um 24 millj. kr. að aflaverðmæti. Atvinna hefur verið næg og tölu- vert hefur verið um íbúðarbygg- ingar. Látið er um smærri báta sem stunda veiðar að sumarlagi. Þingeyri: Þar gekk einn bátur með linu, Framnes, sem byrjaði nokkuð seint, 21

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.