Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1976, Page 22
HÆSTUR YFIR LANDIÐ
Þessi skemmtilega mynd til vinstri er af Asgeiri Guð-
bjartssyni skipstjóra á Guðbjórgu IS 46. og er myndin
tekin, þegar kappinn var að koma heim af sildveiðum.
Guðbjörg IS 46 aflaði árið 1975 3798 tonn og er þvi
aflahæsti togarinn yfir landið, það er við bezt vitum.
Að ofan er svo aflask.ipið Guðbjörg IS 46.
var með 30 tonn í nóvember, en
hafði fengið um 86 tonn í des. fram
að jólum.
Skuttogarinn Framnes I hafði
landað sem af er árinu til nóvember-
loka 2344 lestum. Allt árið í fyrra
kom út með 3045 lestir. Þess ber að
geta að skipið fór í viðgerð til Nor-
egs seinni hluta sumars og tafðist
frá veiðum í 2 l/i mánuð. Skemmdir
þessar hlaut það við bryggju á Þing-
eyri. Lítið hefur verið um íbúðar-
byggingar fram að þessu.
Nokkuð er þar af smærri bátum
sem aðallega stunda handfæri á
sumrin og er afli þeirra oft ágætur.
Flateyri:
Þar voru 4 bátar á línu: Sóley,
Vísir, Ásgeir Torfason og Kristján
í nóvember var beztur afli á bát 86
tonn. Það sem af er des. er bezt um
70 tonn. í marzmánuði eiga Flat-
eyringar von á skuttogara, byggðan
í Flekkefjord í Noregi. Reikna má
með að þeir þurfi þá heldur betur
að láta hendur standa fram úr erm-
um, þar sem þar er ekki margmenni
frekar en á flestum öðrum stöðum
á Vestfjörðum. Á sumrin er nokkuð
sótt á handfæri og þá mest á opn-
um trillum. Einnig virðist grá-
sleppuveiði sækja nokkuð á.
Flutt var inn i 12 nýjar íbúðir
á sl. ári og 6 einbýlishús eru í smíð-
um.
Súgandafjörður:
Ólafur Friðbertsson, Sigurvon og
Kristján Guðmundsson réru með
línu í haust. Beztur afli í nóvember
var um 60 tonn. Heldur varð afli
skárri í des., en þá náðist best um
70 tonn til jóla. 1 nóvemberlok
hafði skuttogarinn Trausti landað
1958 lestum. Oft hefur atvinna ver-
ið meiri en gerst hefur í haust. Súg-
firðingar eiga nú annan skuttogara
í smíðum hjá Stálvík hf. Ætla má
því að þar gefist lítill tími til menn-
ingameyzslu þegar fram líða stund-
ir. Lítið er nú byggt í bili.
22
VÍKINGUR