Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1978, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1978, Side 11
Mun setja lífeyrismál sjómanna á oddinn — rætt viö Ingólf Ingólfsson, forseta Far- og fískimannasambandsins Á nýafstaðinni formannaráð- stefnu Far- og fiskimannasam- bandsins bar mörg athyglisverð mál á góma, og ræddi VÍKING- URINN nokkur þeirra við Ingólf Ingólfsson, forseta sambandsins, og þá fyrst þá samþykkt ráðstefn- unnar að beita sér fyrir því, að eftirlaunaaldur sjómanna verði lækkaður niður i 55 ár, og hver sá, sem starfað hefur á sjó í 30 ár eigi rétt á fullum lífeyrisgreiðslum. — Þetta hlýtur að verða stórt baráttumál sjómanna þegar líf- eyrismál landsmanna verða tekin til endurskoðunar með heildar- lausn í huga, sagði Ingólfur. — Lífeyrisaldur sjómanna er nú hinn sami og almennt gerist, eða 70 ár, en ég trúi ekki öðru en tekið verði tillit til sérstöðu sjó- manna hér eins og í nágranna- löndunum, þegar þessum málum verður skipað í varanlegt horf. Á hinum Norðurlöndunum, Þýska- landi og Bretlandi hljóta sjómenn Ingólfur Ingólfsson, forseti F.F.S.Í. VlKINGUR fullar lífeyrisgreiðslur eftir 25 til 30 ár á sjó. Sá hópur sjómanna, sem búinn er að vera 30 ár á sjó er allstór hér á landi, en þó er ekki lengra síðan en 1969 að bátasjó- menn gerðust aðilar að lífeyris- sjóði sjómanna, og undirmenn á farskipum hlutu ekki lífeyris- sjóðsréttindi fyrr en 1962, fjórum árum á eftir togarasjómönnum. Ég hef ekki trú á, að andstaða verði mikil gegn þessu, þótt um nokkrar peningaupphæðir sé að ræða, því þetta er eitt brýnasta hagsmunamál sjómanna. Ég hef haldið því fram, og til þessa ekki heyrt því andmælt, að framleiðni á einstakling sé meiri í fiskveiðum en í öðrum atvinnugreinum þjóð- arinnar, og því er ofur eðlilegt, að tekið verði tillit til þess, þegar að skuldadögum kemur. — Nú fól fundurinn stjórn sambandsins að vinna að því að loðnusjómenn fengju löndunarfrí, eins og þeir sjálfir ályktuðu um á fundi sínum á Akureyri í byrjun þessa árs. Hvernig hyggst stjórnin standa að þessu máli? — Það er tímabært að taka þetta atriði upp í kjarasamning- um, og við munum gera það í samráði við Sjómannasambandið. Löndunartækni hefur fleygt svo fram á síðari árum, að ekki er óeðlilegt, að verksmiðjurnar komi sér upp þurrdælingarbúnaði sjálf- ar. Kostnaðurinn við það yrði hverfandi lítill, en kostirnir marg- ir: grútarmengun í höfnum hyrfi, hráefni yrði betra, nýttist betur, og minna yrði í því af vatni eða sjó. — Öryggismál sjómanna hafa mjög verið í fréttum að undan- förnu, og ber þar mest á deilum milli Siglingamálastofnunar og rekanefndar og Rannsóknar- nefndar sjóslysa. Hvað vilt þú um þetta mál segja? — Ég tel æskilegt, að aðilar málsins næðu sem fyrst saman um að uppræta ágreining sinn um framsetningu þess, því enginn ef- ast um að báðir vinna að sömu markmiðum, — og stefndu að því, að halda áfram þeim rannsókn- um, sem augljóst er, að enn þarf að framkvæma. Ég hygg, að hér sem annarsstaðar náist betri árangur með vinsamlegum mál- efnalegum umræðum manna á milli en með blaðaskrifum, sem gera lítið annað en valda sundr- ungu þar sem samstaða ætti að ríkja, sagði Ingólfur Ingólfsson að lokum. 11 Dieselvélar í báta og skip frá 100-1320 hestöflum. Mjög hagstætt verð. XCO h.f. Vesturgötu 53b símar 27979, 27999

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.