Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 13
Gamli Gullfoss, kom til landsins 1915. skipafélag íslands væri stofnað. Á tilsettum tíma var húsið orðið troðfullt. Var talið, að um 300 manns hafi verið þar í sætum, en alls munu hafa verið í húsinu um 450 manns. Út að dyrum og langt fram á ganginn stóð fólkið og beið þess með eftirvæntingu, að fund- urinn væri settur. Alls höfðu verið afhentir um 740 aðgöntumiðar, og fylgdu þeim um 7200 atkvæði. Að vísu gátu eigi allir sótt fundinn, er aðgöngumiða höfðu, en þó reyndist fundarhúsið allt of lítið, þótt á stærra væri þá eigi völ í bænum. Á fundinum mætti Hannes Hafstein ráðherra í boði bráðabirgðastjómarinnar og Jón J. Bíldfell fyrir hönd Vestur-ís- lendinga.“ Með kaupunum á gamla GULLFOSSI, var brotið blað í samgöngum á sjó hér á landi. Gullfoss varð innlyksa í stríðinu og nýr og stærri Gullfoss kom til landsins eftir stríð. Með ferðum þessara skipa varð bylting í siglingasögunni. Far- þegaflutningar á sjó, milli landa og með ströndunum tók á sig nýja mynd. Strandferðaskip Skipaútgerðar ríkisins koma líka snemma til skjalanna og áttu seinast tvö vönduð farþegaskip, auk annars, eða HEKLU og ESJU. En svo fór að lokum, að nýjar stefnur og ferðamáti varð þessari útgerð of- viða. Gullfoss var seldur fyrir rúmum áratug og Skipaútgerðin seldi stóru farþegaskipin sín um líkt leyti og hófu blandað kerfi: farþegar / vörur / póstur, þar sem farþegaflutningar voru ekki leng- ur umtalsverð atvinnugrein fyrir skip. Menn flugu milli landshluta, eða fóru á bílum. Vegir bötnuðu og flugvöllum fjölgaði. Milli- landaflugið tók síðan að mestu Við farþegaflutningum milli landa. Er óþarfi að rekja þá sögu hér. Dagar ekjuskipanna og bílferjunnar En það var víðar en á íslandi, sem farþegaskip hurfu af frægum siglingaleiðum. Urðu að láta í minni pokann fyrir fluginu. Frægasta dæmið er Atlantshafs- rútan milli aðalhafna Evrópu og New York. F.n smám saman tók ný þróun í farþegaflutningum á sjó við. Þró- un, sem íslendingar illu heilli virtust ekki koma auga á, en það mál tengist almennri bílaeign manna á Vesturlöndum og aukn- um ferðalögum manna. Bílferjur voru notaðar fyrir stríð t.d. á leiðinni yfir Ermarsund, milli Frakklands og fleiri megin- landslanda og Bretlands. Bílar voru hífðir um borð, eins og gert hafði verið á Gullfossi og á Akra- borginni. Það var bæði seinlegt og óhentugt. Rétt fyrir fyrra stríð komu svo fyrstu ekjuskipin, þar sem menn gátu ekið um borð í skipin með bíla sína og eru þær siglingar nú mikil útgerð á vissum hafsvæðum, austanhafs og vestan. Þessar ferjur flytja milljónir ferðamanna milli hafna í Evrópu (jafnvel, og ekkert síður á leiðum sem unnt er að aka). Milljónir bíla eru einnig fluttir með þessum skipum. Eigin bílar ferðamanna og einnig vörubílar, því víða er ódýrara að fara með feiju, en að aka langtímum saman á þjóðveg- um, þótt það sé líka hægt. Ekki síst veldur bensínverðið þessu, heldur einnig annar kostnaður við ferða- lagið, svo ekki sé nú talað um þægindin og tímaspamaðinn. Sá sem þessar línur ritar, hefur undanfarin ár ritað fjölda greina Póstgufuskipið Arcurus. Nú fengu Islendingar 6 ferðir á ári í stað þriggja. Það sigldi þar til Sameinaða tók við 1866. VÍKINGUR 13

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.