Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Side 19
„Vela mörgum veitir ró” Siglt med norska leiguskipinu Velu til Ísaíjaröar Siglt úr Reykjavíkurhöfn í myrkri Það var spáð 10 vindstigum á öllu landinu. Á veðurkortinu í sjónvarpinu voru fimm strik og sums staðar fimm og hálft. En við Hilmar Snorrason, stýrimaður, annar tveggja íslendinga á Velu, vorum búnir að ákveða að ég kæmi með þennan túr svo ekki var eftir neinu að bíða. Vela siglir vestur um til Húsa- víkur og til baka aftur og er tæpa viku í ferðinni. Á þriðjudögum er lagt af stað frá Reykjavík og þriðjudaginn 26. október var undirrituð mætt um borð klukkan sjö að kvöldi því þá var áætlað að leggja af stað. Ekki stóðst áætl- unin alveg því tölva fyrirtækisins var ekki búin að afgreiða farm- skýrslurnar sem ekki er hægt að sigla án. Þeir notuðu því tækifær- Meðan unnið var að lestun í Revkjavík, stilltn þeir sér upp hjá Hrolli sem þeir kalla vaktrnann skipsins. F.v. Ragnar Eyjólfsson, stýrimaður og háseti, Johan Haugland skip- stjóri, Vidar Opdal 1. stýriinaður og Hilmar Snorrason stýrimaður og fulltrúi leigutaka um borð. Þeir Ragnar og Hilmar eru einu íslendingarnir um borð í Velu. Meðan skipið er i landi kemur Þórður M. Jóhannesson frá Kristilegu sjómannastarfi alltaf um borð og dreifir kristilegum bæklingum. Hér afbendir hann Nils Brattholm, kokki á Velu norskt rit sem nefnist Bud og hilsen. Þórður hefur sinnt þessu starfi í nær þrjá áratugi. ið. Haugland skipstjóri og við- gerðarmaður úr landi sem reynd- ar er norskur líka og heitir Herjolf Skogland, að lagfæra losunar- kranann á skipinu. Skipið slóst við bryggjuna í hvassviðrinu svo maður gat undirbúið sig undir komandi velting, æft sig í að stíga ölduna þó ekki væri búið að leysa landfestar. Klukkan hálf níu bárust farm- skýrslurnar í tölvuútskrift og fljótlega hættu þeir félagar við- gerðinni og landfestar voru leystar. Niðamyrkur var þegar siglt var út úr Reykjavíkurhöfn. Vitinn á hafnargarðinum lýsti okkur leið- ina út úr innri höfninni síðan tóku ljósabaujur og Engeyjarviti við. Smátt og smátt fjarlægðust ljósin í Reykjavík, þar sem vitinn á Sjó- mannaskólanum ber hæst, hann VÍKINGUR 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.