Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 28
í ísafjarðarhöfn lágu sex skuttogarar við bryggju svo Velu var siglt alveg að skut þess aftasta. pláss væri fyrir Velu en Kristján kvað algjöran óþarfa að efast um það, hún fengi nóg pláss ef henni yrði siglt alveg upp að skut öftustu togaranna. Það reyndist líka rétt og hafist var handa við losun. Á ísafirði kvaddi ég skipverjana og hélt í land. Þegar ég fór voru Petersen háseti og Opdal stýri- maður að bisa við að koma helj- armiklum sendiferðabíl sem búið var að innrétta sem lúxussvítu, á bretti svo hægt væri að hífa hann í land. Hilmar stóð í opinu og stjómaði losuninni og Haugland lék sér á lyftaranum í undirlest- inni. Svona gengur lífið í strandferð- unum, siglt er á milli staða með hinar ýmsu vörur sem eru kær- komnar fólkinu á staðnum. Á Húsavík lestar Vela kísilgúr sem síðan er losaður í stærri skip í Reykjavík og í bakaleiðinni í þessum túr var komið við á öllum Vestfjarðahöfnum nema Tálkna- firði að lesta skreið sem fara átti í skip í Njarðvík. Síðan er siglt aftur sömu leið en sjálfsagt eru engir tveir túrar eins þó utanaðkomandi sýnist lífið um borð í svona skipi ósköp einhæft. Ég þakka áhöfninni samveruna og vona að þeir kenni mér ekki um brjálaða veðrið. Þeir sögðu mér nefnilega að þetta hefði verið fyrsta brælan sem þeir hafa fengið í haust. E.Þ. — Bölvaður svindlarinn! Öskraði æstur fótboltaáhorfandi. — Bara ég hefði eitthvað til að kasta í þig! Hann þreif flöskuna, sem hendi var næst og kastaði henni. Og konan rak upp skelfingaróp. — Ó, fyrirgefið frú, sagði hann. — Ég tók ekkert eftir, að það hékk bam á hinum endanum á flösk- unni. Þegar síminn hringdi á prestssetr- inu, ansaði klerkur sálfur. — Halló — viltu senda mér tvær bokkur af skota, Finnegan? spurði rödd, sem prestur kannað- ist við að tilheyrði einu sóknar- bama hans. — Þetta er ekki Finnegan — þetta er presturinn þinn. — Nú, hvert í logandi, sagði hinn, — hvað ert þú að gera í krá Finnegans, prestur minn? VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.