Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 29
„Mikilvægt fyrir menn að sjá hvernig veiðarfærin vinna” — segja Bjarni Gíslason og Bragi Björnsson hjá SkagQörð um ferðir skipstjórnarmanna í tilraunatankinn í Hull í Englandi Enn sem komið er er enginn veiðarfæratilraunatankur til á fs- landi og ekki eru líkur á að slíkur tankur verði reistur á næstunni. í Hull í Englandi er einn slíkur tankur og ennfremur var slíkur tankur tekinn í notkun í Hirtshals í Danmörku í fyrra. íslenskir skipstjómarmenn hafa nokkrum sinnum farið á námskeið í tankinn í Hull og eru menn almennt mjög ánægðir með námsdvölina þar. Það er fyrirtækið Kristján Ó. Skagfjörð h.f. sem hefur skipulagt þessar ferðir í flestum tilfellum og í samtali við Víking sögðu þeir Bjami Gíslason og Bragi Bjömsson, að alls hefðu þeir farið með þrjá hópa, en í hverjum hóp hafa verið 14 til 16 manns. „í fyrstu tveimur ferðunum voru eingöngu togaramenn, en seinni hópurinn var blandaður, en hann var frekar ætlaður þeim sem vildu kynna sér tveggja báta troll- ið. Við höfum haft tankinn til af- nota tvo daga í senn. Fyrri daginn er mönnum sýnd þau troll, sem eru til staðar og seinni daginn skoða menn þau troll sem þeir hafa fyrst og fremst áhuga á og gera ýmsar breytingar og tilraunir aþeim.“ „í þessum ferðum okkar hefur megináherslan verið lögð á hið Á þessari mynd sést hvemig hið svokallaða Concord 55—57 troll, en það er ætlað fyrir minni báta. Eftirtalin atriði eru uppgefin af framleiðanda, sem er Cosalt Ltd. um gerð og drátt á því. svokallaða kassatroll og það troll sem menn kalla Jumbó. Enn- fremur skoða menn ávallt hið hefðbundna Grantontroll, sem til er í mörgum útfærslum. Þá hefur hinn svokallaði Vestfirðingur ver- ið reyndur í tanknum,“ sögðu Bjarni og Bragi. í síðustu ferðinni, sem farin var í tilraunatankinn í Hull á vegum Skagfjörð var mest áhersla lögð á að kynna mönnum tveggja báta trollið. Það hefur ótvírætt reynst vel erlendis og því er eðlilegt að menn athugi hvort það henti ekki vel hér við land. Reyndar voru Bylgja VE og Þórunn Sveinsdóttir VE með tveggja báta troll sl. sumar og gaf það góða raun. Þeir Bjami og Bragi sögðu, að þótt menn hefðu áhuga á að kynna sér trollin sjálf, þá færi líka alltaf nokkur tími í að kynna sér hegðun hlera í sjónum, en skip- stjórar væru sjaldnast sammála um hvernig þeir létu undir yfir- borði sjávar. „Það er mikil gagnsemi fyrir alla sem stunda togveiðar að kynna sér hvernig veiðarfærið lætur í sjó í tilraunatönkum. Þarna sjá menn hvernig það vinnur. Menn sjá, að aukinn toghraði gefur ekki alltaf aukinn afla, því með auknum toghraða lækkar höfuðlínan og skverinn verður Nauðsynlegur togkraftur 100—200 hestöfl Toghraði (mílur) 2% mílur Hæð á höfuðlínu, niiðja 11.9 fet Höfuðlínuhæð, vængendar 8,9 fet Höfuðlínulengd 27.0 fet Lengd á fótreipi 28.0 fet Bil milli hlera 63.0 fet Átak í togi, hvor vír 0.82 tonn VÍKINGUR 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.