Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Side 34
Aldan
90 ára í haust
„FFSI hafi forgöngu um að
sameina sjúkrasjóði sjómanna”
— segir Ragnar Hermannsson nýkjörinn formaöur Öldunnar
„Ég mun einbeita mér að því, að efla starf félagsins, eftir því sem
frekast er unnt. Mér hefur fundist, og kannski sérs'taklega þeim
sem búa úti á landsbyggðinni, að starfið hafi ekki verið nógu öflugt
undanfarin ár og því mun ég á næstunni fara út um land, kynna starf
Öldunnar og kynnast viðhorfum heimamanna,“ sagði Ragnar G.
Hermannsson nýkjörinn formaður Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagsins Öldunnar, þegar Víkingur ræddi við hann.
Félagssvæði Öldunnar er æði
stórt. Það spannar yfir Reykja-
víkursvæðið, Snæfellsnes, Þor-
lákshöfn, Eyrarbakka, Höfn í
Homafirði, Djúpavog og Breið-
dalsvík. .
Það kom fram hjá Ragnari, að
honum finnst, að skipstjóra- og
stýrimannafélögin á suðvestur-
homi landsins mættu starfa af
meiri krafti og taka upp nánari
samvinnu til eflingar stéttarinnar í
heild. „Ef félögin öll starfa ekki
vel, veldur það sundrungu innan
okkar vébanda,“ sagði hann.
Nýbyrjað ár er merkisár í sögu
Öldunnar, því hinn 7. október
næstkomandi verður félagið 90
ára og er Aldan elsta starfandi
stéttarfélag landsins. I tilefni af-
mælisins er unnið að sögu Öld-
unnar og umsjón með útgáfu hef-
ur Bárður Jakobsson. Með honum
í ritnefnd eru Guðmundur Odds-
son, Hróbjartur Lúthersson og
Þorvaldur Árnason. Rit það sem
fyrirhugað er að komi út á haust-
mánuðum spannar stóran hluta af
sögu Öldunnar. Þess má og geta
að félagið á fundargerðabækur frá
upphafi til þessa dags og fleiri
heimildir hafa varðveist s.s.
reikningabók Styrktarsjóðs Öld-
unnar frá 1893 sem gerð er úr
fögru skinnbandi og er enn í
notkun.
„Aldan var stofnuð af 24
mönnum, flestum skipstjórum í
Reykjavík, en meðal stofnenda
voru ennfremur Markús F.
Bjamason, skólastjóri Stýri-
mannaskólans og Magnús
Magnússon kennari við sama
skóla. I upphafi var Aldan menn-
ingarfélag, frekar en stéttarfélag
og beitti félagið sér fyrir margs-
konar menningarmálum á
bemskuárunum.
í fundargerðarbókum má með-
al annars sjá, að Jóhannes Kjarval
sótti um námsstyrk til lands-
Ragnar G.D. Hcrmannsson formaður Öldunnar.
34
VÍKINGUR