Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 39
Stofnuðu félag tíl að
flytja inn veiðarfæri
Litið inn hjá Sandfelli hf. á ísafirði
Árið 1962 tóku nokkrir skreiðaframleiðendur á Vestfjörð-
um sig saman og stofnuðu Félag vestfirskra skreiðarfram-
leiðenda, Féves. Stofnun félagsin auðveldaði mönnum
skreiðarútflutning, nú þurftu þeir ekki lengur að vera háðir
söluaðilum í Reykjavík.
Fyrst svo vel gekk að flytja út, hugsuðu stofnendur félags-
ins með sér að þeir hlytu eins að geta flutt inn. Tveimur árum
síðar var svo stofnað félagið Sandfell til að sjá um innflutning
á veiðarfærum fyrir vestfirska útgerðarmenn. Stofnendur
Sandfells h/f voru þeir Bogi Þórðarson, Patreksfirði, Albert
Guðmundsson, Tálknafirði, Rögnvaldur Sigurðsson, Þing-
eyri, Jónas Ásmundsson, Bíldudal og Jón Páll Halldórsson,
ísafirði. Skömmu síðar var útgerðarfélögum og skipstjórum á
stærri skipum í fjórðungnum boðin aðild að félaginu og var
þátttaka þeirra mjög almenn. í dag eru hlutafar um fjörutíu.
Rekstur þessara tveggja félaga hefur mest allan tímann
verið sameiginlegur, framkvæmdastjóri, skrifstofur og
starfsmenn og hefur það reynst mjög vel.
Þama sést hluti húss Togarafélagsins ísfirðings sem nú er í eigu Vestra h.f. Húsið
stendur á hafnarbakkanum og kemur það sér vel fyrir fyrirtæki eins og Sandfell sem
keyrir vöruna á eigin lyfturum frá skipshlið, inn á lager.
Aðstaða í gamla
ísfirðingshúsinu
Á ísafirði er myndarleg bygging
sem Togarafélagið ísfirðingur lét
reisa fyrir skrifstofur sínar og fisk-
vinnslu. Árið 1967 stofnuðu hrað-
frystihúsin á ísafirði; Norðurtangi
og Ishúsfélagið ásamt Févesk og
Sandfelli, hlutafélagið Vestra til
að festa kaup á húsnæði Togara-
félagsins sem þá hafði hætt starf-
semi. í þessu húsi eru nú frysti-
geymslur frystihúsanna, skrifstof-
ur og lager Sandfells og Févesk og
verkstæði Vírs h/f en þaðfyrirtæki
er í eigu Sandfells að hálfu. Vestri
h/f hefur síðan leigt hluta hússins
til Hafrannsóknastofnunar,
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins, Iðnskóla ísafjarðar sem rekur
bæði Stýrimanna- og Vélskóla-
deildir, Reiknistofu Vestfjarða
sem sér m.a. um tölvuúrvinnslu
fyrir frystihúsin, Bifreiðareftirlits
Ríkisins, Hjólbarðarverkstæðis
ísafjarðar, Baader þjónustunnar
o.fl. Má segja að eignaraðild að
þessu húsi hafi auðveldað mjög
vöxt og viðgang Sandfells h/f.
I fyrstunni flutti Sandfell h/f
inn þorskanet og síldarnætur frá
Japan, sá um sölu á línu og búnaði
til handfæraveiða. Þegar síldin
brást tók við erfitt tímabil hjá fé-
laginu eins og öðrum aðilum
tengdum útgerð en með samstöðu
og harðfylgi stofnenda tókst að
komast upp úr öldudalnum.
1968 áttu sér stað viss tímamót
hjá fyrirtækinu. Þá hefja síld-
veiðiskipin á Vestfjörðum tog-
veiðar og leitaði félagið því við-
skipta til að geta þjónað þeim
VÍKINGUR
39