Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Qupperneq 40
1 kaffitímanum eru oft látnarflakka góðar sögur. Hluti af núverandi starfsliði Sandfells
h/f frá vinstri: Sigríður Rósa, Kristmundur Gíslason, Árni Jónsson, Geirþrúður Charl-
esdóttir, Jón Ólafur Sigurðsson, Þorsteinn Jóakimsson, Helga Ásgeirsdóttir, Steinun
Einarsdóttir og Kristín Þórisdóttir.
veiðum. Tókst fljótlega gott sam-
band við fyrirtæki í Hull, Indu-
strail & Maritime Riggers LTD.
Sama ár réðst félagið í inn-
flutning á matvöru, flutti f.yrst inn
hveiti frá Kanada en þau umsvif
hafa aukist smátt og smátt og
annast félagið nú umboðssölu
fyrir ýmsa matvælaframleiðendur
á íslandi ásamt innflutningnum.
Árið 1981 nama sala íslenskrar
matvöru t.d. 6.8 miljónum en inn-
fluttrar 5.2 miljónum. 1968 voru
líka tekin upp viðskipti við
Hampiðjuna og hafa þau reynst
giftusamleg.
Engel flotvarpan
Þegar blaðamaður Víkings var á
ísafirði nýlega spjallaði hann við
framkvæmdastjóra Sandfells, Ól-
af B. Halldórsson sem hefur
stjómað fyrirtækinu síðan 1969.
Ólafur kvaðst álíta að útgerðar-
menn á Vestfjörðum kynnu vel að
meta þá þjónustu sem Sandfell
veitir og vildu ekki hverfa aftur til
þess tíma er eingöngu þurfti að
treysta á veiðarfærainnflytjendur í
Reykjavík. Útgerðarmenn á norð-
anverðu landinu virðast einnig
kunna að meta þjónustuna því fé-
lagið selur til fjölmargra aðila á
Norðurlandi.
Að sögn Ólafs markaði koma
skuttogaranna til Vestfjarða
1972-74 tímamót. Félaginu var þá
falið að útvega allan veiðarfæra-
búnað á sex skuttogara sem
keyptir voru til Vestfjarða á þeim
árum. Þá hófust viðskipti við
framleiðanda flotvörpu sem lengi
hafði unnið að þróun þess veiðar-
færis. Það var þýska fyrirtækið
Hermann Engel & Co. en flestir
Vestfjarðatogaramir eru búnir
því veiðarfæri. Hafa Sandfell og
Asiaco í Reykjavík sem einnig
flytur inn flotvörpu frá Engel,
skipt landinu til helminga og sér
Sandfell um sölu til norðurhluta
landsins.
En fleira þarf að hugsa um en að
selja flotvörpuna. Það þarf að
halda henni við og hefur Sandfell
einbeitt sér að því að þjóna við-
skiptavinum sínum sem best í því
efni. 1978 stofnaði félagið, ásamt
tveim fyrrverandi skipstjórum,
þeim Einari Jóhannssyni og Leifi
Pálssyni, hlutafélagið Vír sem
annast alhliða víraþjónustu.
Sandfell sér um innflutning á vír-
unum en þeir Einar og Leifur
vinna úr honum það sem óskað er
eftir. Hafa þeir komið sér upp
ágætis verkstæðisaðstöðu og geta
t.d. framleitt um sex grandarpör á
dag. Vír til vinnslu á verkstæðinu
er fluttur inn frá Hollandi, tókust
um það mjög góðir samningar við
fyrirtækið Den Haan Stalkabel-
fabriek þar í landi. Togvírinn er
hins vegar fluttur inn frá Elkem
Stál og Tau AS í Noregi.
VÍKINGUR
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viögerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
40