Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 42
Bobbinga hefur Sandfell keypt frá Odda h/f á Akureyri en bobb- ingar frá þeim eru notaðir í flest- um íslenskum skipum. Trollkúlur koma frá sama fyrirtæki og flot- varpan, Hermanni Engel og að einhverju leyti frá Plasteinangrun á Akureyri. Notkun keðja hefur farið vaxandi undanfarið á togur- um, t.d. er farið að nota keðjur að hluta í grandara og hefur Sandfell flutt inn keðjur og lása frá norska fyrirtækinu Kættingfabriken AS í Kragerö. Verða að standast gæðakröfur sjómanna — Góð samvinna hefur alla tíð verið milli Sandfells og Netagerð- ar Vestfjarða sem staðsett er á ísafirði, segir Ólafur. „Við gerðum samning við þá um allar viðgerðir á flotvörpunni frá okkur og þeir festa fyrir okkur poka frá Hamp- iðjunni á öll flottrollin frá Engel því sjómenn vilja frekar þá poka en þá þýsku. Netagerðin er hins vegar sjálf umboðsaðili fyrir net frá Hampiðjunni en við umboðs- menn fyrir línu, gam o.fl. sem framleitt er þar. Til skamms tíma flutti Sandfell inn toghlera frá Noregi en sala frá þeim hefur dregist mjög saman vegna vinsælda innlendu hleranna frá J. Hinrikssyni. Að sögn Ólafs finnst beim hjá Sandfelli óþarfi að keppa við Jósafat um sölu á hler- um. „Við getum vel unnt honum þess, að selja þá,“ sagði hann. Húðir eru fluttar inn frá Bret- landi, eitt af því fáa sem félagið flytur inn dl veiðarfæra frá því landi en á tímabili voru viðskiptin mest við Bretland. Ólafur lagði áherslu á að þó fé- lagið sé umboðsaðili fyrir eitthvert vörumerki nú, stæði það ekki til eilífðar því hagsmunir viðskipta- vinanna sitja i fyrirrúmi. „íslensk- ir sjómenn eru kröfuharðir um veiðarfæri. Við verðum fyrst og fremst að standast gæðakröfur þeirra. Ef gæði þess sem við flytj- um inn standast ekki þær kröfur, verðum við að reyna eitthvað betra." Vonandi framtíð í línuveiðum á Vestfjörðum Sandfell selur allt sem þarf til línuveiða, uppsettar lóðir, ábót, belgi og baujuluktir. Línan er öll frá Hampiðjunni en tveir menn vinna í ígripum við uppsetningu lóðanna. Ölafur kvaðst telja framtíð á Vestfjörðum ef tekst að þróa beitningavél við íslenskar aðstæður. Frekar fáir bátar stunda línuveiðar í fjórðungnum og enn sem komið er hafa tilraunir með beitningavélar mistekist. Skosk vél var prófuð á bát frá Flateyri í fyrra en nú er verið að lagfæra hana og laga að íslenskum aðstæðum, í Bolungarvík. Sagði Ólafur að nauðsynlegt væri fyrir fyrirtæki eins og Sandfell að líta til fram- tíðar og vera viðbúnir breytingum í atvinnugreininni því þeirra hag- ur er að útgerðin gangi vel. „Við reynum að líta í kringum okkur og ná samningum sem koma útgerð- inni vel. Ef t.d. verður að laga lín- una að vélinni, verðum við að vera viðbúnir því. Ég tel jákvætt ef tekst að fækka skuttogurum og þróa línuveiðarn- ar í staðinn. Á litlum stöðum eru línu, neta- og handfæraveiðar mun hagkvæmari. Ég tel litlum stað sem ekki hefur gert út togara áður, enginn greiði gerður með því að skaffa þeim togara. I plássinu eru e.t.v. ekki til mannskapur sem kann til slíkra veiða. Það verður því að fá menn að og slíkt gegnur aldrei til lengdar. Togarar þurfa líka ýmsa þjónustu t.d. góða raf- virkja, jámsmiði og menn sem kunna til vélaviðgerða og jafnvel viðgerða á fiskileitartækjum." Nyrsta gróðurhús heims ísfirðingshúsið, eins og stóra húsið sem Togarafélagið átti er oftast kallað, stendur á höfninni. Það er þægilegt fyrir fyrirtæki eins og Sandfell sem fær öll sín aðföng með skipum. Skipasamgöngur við ísafjörð eru góðar, aðra vikuna er ein ferð á vegum Ríkis- skip og ein á vegum Eimskip en V • / ' Einar og Leifur á víraverkstæðinu voru ekki við í augnablikinu en Ólafur B. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sandfells, kvað þá hafa komið sér upp góðri aðstöðu, sérstaklega hefur spilið í forgrunninum létt verkið en það var smíðað í Englandi. 42 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.