Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Síða 11
Finnstgottaðvera...
■rai |
Á .
Erlendur á skrifstofu sinni um borð í Álafossi.
tíma á sjónum til að komast í
stýrimannaskólann, fór ég
þangað, 1946, og kláraði
1948. Á þeim tima var meira
framboð á stýrimannsefnum
heldur en eftirspurn. Þá var oft
helmingur, og jafnvel meira, af
hásetunum, sem voru með
stýrimannapróf. Þannig var
það mjög algengt aö menn
voru þrjú, fjögur eða jafnvel
fimm ár, sem hásetar og af-
leysinga stýrimenn, áöur en
þeir fengu stýrimannastöðu.
Þetta er verulega breytt núna
og það er undantekning ef
maður þarf að fara aftur niður
á dekkið eftir að hann er orð-
inn stýrimaður.
Snöggsoðnir stýri-
menn
Ég býst við að það stafi að
einhverju leyti af minni ásókn,
og svo líka að á árunum
1960—70 varð geypileg upp-
bygging i flotanum og þá þurfti
að nota alla þessa menn strax
i starfi. Stundum hefur maður
kannski hugsaö þannig að
það hafi ekki verið alltof gott
fyrir óreyndan mann að fara of
fljótt í þetta starf. Þvi að auð-
vitaö þarf sína reynslu í þetta
starf eins og önnur og að-
lögunartíma. Þannig hefur
manni stundum fundist að
menn komi ansi snöggsoðnir
inn í stýrimannsstarfið. Og
eins höfum við stundum þurft
að nota menn, sem sjaldan og
lítið hafa verið á þessum skip-
um. Það er svipað og ef fiski-
menn þyrftu að fara að nota
farskipsmenn og svo öfugt.
Þetta er auðvitað töluvert
ólikt. Þótt siglingin sem slik sé
sú sama, þá er vinnan allt
önnur. Að fiska og gera að og
koma fiskinum i góðu lagi i
land er allt annað en stúvning
og sjóbúningur farms og þess
háttar.
Nú vantar stjórnsemi
Eg veit ekki hvort þörf er á
breytingu á menntun stýri-
manna til að gera þá tilbúnari
þegar þeir koma til starfa,
heldur en þeir eru nú. Það er
mikil hjálp í þessum sjóvinnu-
námskeiðum, menn fá þar
betri undirstöðu, en aðal und-
irstaðan er auðvitað starfið
sjálft, að menn fái að kynnast
starfinu nægilega áður en þeir
verða yfirmenn. margir hafa
ágæta þekkingu, þegar þeir
Á þeim tíma var
meira framboö á
stýrimannsefnum
helduren
eftirspurn. Þá var
oft helmingur, og
jafnvel meira, af
hásetunum, sem
voru meö
stýrimannspróf.
Víkingur 11