Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Blaðsíða 27
Lystisnekkjur á borð við Song of America eru stunduð kölluð skip ástarinnar en kjör áhafnanna
bera ekki vott um ástarhug eigendanna í þeirra garð.
Norömennirnir
skárstir
Á ráðstefnunni í Miami var
sérstaklega nefnt að Norð-
menn skeri sig nokkuð úr, þeir
eigi þakkir skildar fyrir að hafa
sinnt aðbúnaði áhafnanna
betur en aðrar þjóðir, jafnvel á
þeim skipum sinum, sem sigla
undirþægindaflaggi.
Undir norsku flaggi sigla 14
skemmtiferðaskip, þar af niu á
Karabiska hafinu. Áhafnirnar
á þessum skipum eru vissu-
lega litskrúðugar. Til dæmis
eru fulltrúar þrjátíu og tveggja
þjóða meðal áhafnarinnar á
skipinu Norway. Þótt Norð-
menn óski frekar eftir „hrein-
ræktuðum" mönnum í skips-
rúm hjá sér, fylgja þeir ITF
reglunum, og önnur launakjör
eru þau sömu fyrir alla.
Norsku skipaeigendurnir
eru þeirrar skoðunar — sam-
kvæmt alþjóðlegu áliti — að
skip sem hefur gott starfslið,
gefi um leið góðan arð. Það er
þó alls ekki svo að Norðmenn
séu lausirviðöll starfsmanna-
vandamál á skipum sinum, en
allur aðbúnaður starfsfólks er
miklu betri þar, heldur en á
skipum annarra þjóða. Þýðing
þessarar atvinnugreinar fyrir
Norðmenn sést best af því að
norska sjómannasambandið
hefur skrifstofu i Miami.
Þáttur kirkjunnar
Ráðstefnan í Miami var
skipulögð af rannsóknamið-
stöð sem vinnur i nánu sam-
starfi við sjómannakirkjuna.
Forstöðumaður ráðstefnunn-
ar, dr. Paul Chapman, lagði
áherslu á að allir forustumenn
útgerða skemmtiferðaskip-
anna ættu að sameinast.
Hann sagði að margir þeirra
starfi á heiöarlegan og virð-
ingarverðan hátt, en á hinn
bóginn væru mannréttinda-
brotin um borð i mörgum skip-
anna svo alvarleg, að útilokað
væri aö horfa á það afskipta-
laust.
Ýmsa kann að undra þátt
kirkjurinar að þessu máli, en
þá má upplýsa um að trúfélög í
Bandarikjunum hafa iðulega
beitt sér á róttækan hátt gegn
mannréttindabrotum.
Stoliö og stælt úr finnska
blaðinu „Sjömannen", þar sem
Paunu skrifaði um efnið.
Á hafnirnará
þessum skipum
eru vissulega
litskrúðugar. Til
dæmis eru fulltrúar
þrjátíu og tveggja
þjóöa meðal
áhafnarinnar á
skipinu „Norway“.
Víkingur 27