Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Blaðsíða 15
Finnstgottaðvera Eðlileg og heilbrigð pólitík. Nei, ég er ekki mikið póli- tiskur, ég hef mina pólitik fyrir sjálfan mig, en ég er ekki gef- inn fyrir aö blása hana út. Eg vil að hver maður geti haft sína skoðun á stjórnmálum, án allt of mikilla áhrifa frá öðrum. Ég held að Islendingar séu það greindir menn að þeir geti verið einfærir um að velja sína pólitísku skoðun og flokka. Ég á dálítið erfitt með að segja hvort pólitísk stjórn landsins geti haft nokkur veruleg áhrif á daglegt lif sjó- mannsins eða störf hans, ég er ekki svo pólitiskur að ég geti séö fram á þann tima. En eins og pólitíkin hefur verið að undanförnu á íslandi, held ég að hún sé mjög eðlileg og heil- brigð. Við fáum að berjast fyrir okkar málum og það er tekið tillit til okkar mála, að svo mikli leyti sem kostur er. Við erum jú fátæk þjóð og okkar uþp- bygging er svo geigvænlega mikil að maður skilur ekki að á 50—60 árum skuli þessi þjóð vera búin að byggja 50—60 hafnir, háskóla, skólakerfið, flugkerfið, vegakerfið. Mér finnst þetta alveg hreint und- ur. Gott aö vera einn með hugsanirnar Það er auðvitað svo geysi- lega margt sem maður hefur tima til að hugsa um, á meðan maöur er einfari á hafinu. Það er heimilið, hvað maður hefði getað gert betur fyrir heimilið, það eru ýmis áhugamál, að maður tali nú ekki um ef mað- ur hefur verið að lesa einhverj- ar greinar sem hafa vakið áhuga manns, það er yfirdrifið margt að hugsa um. Erlendur og flotaforinginn, Asta Margrét Jensdóttir. Já, stundum finnst mér gott að vera einfari. Mér finnst mjög gott að vera aleinn með mínar hugsanir, geta alveg myndað mér skoðanir án þess að verða fyrir áhrifum annara. Mér finnst lika ágætt að leita álits annara og heyra það, en mér finnst gott að vera með minar hugsanir, skoðanir, framkvæmdaáætlanir og vinnuáætlanir í einrúmi. Lesturog dútl Önnur áhugamál min er heimiliö og skipið eru að mestu bundin við land. Um borð í skipinu er helsta tóm- stundaáhugamálið lestur bóka. En i landi hef ég mest gaman af svona dútlvinnu, smiðum og þess háttar. Eg á nokkur verkfæri, sem ég reyni að nota, þegar timi er til og mér finnst mjög gaman aö dunda við smíðar. í höndum konunnar. Það er nú ósköp fátæklegt sem ég hef smíðað af hús- gögnum eða hlutum til dag- legra nota, en við hjónin höfum verið að koma okkur upp sum- arhúsi, þótt maður sé gamall, og höfum hugsað okkur að eiga ánægjustundir í þvi i ell- inni og þar hef ég notað mikinn tima. Nú svo eru ýmsar við- gerðir við bilinn, heimilið og svona eins og gengur, allt krefst þetta tima og verkfæra. Nei, ég er afar ónýtur við heimilisstörfin og því miðurfer ég ekki heldur með konunni í búðir. Hún hefur fjármálin og alla stjórn á okkar heimili al- gerlega á sinni könnu.“ Rabbið fór fram um borð i Álafossi, en siðan var farið heim til Erlendar til að taka myndir. Þar voru völd kon- unnar staöfest, þegar hún dró fram skilti meö enskri áletrun, sem i lauslegri þýðingu gæti verið svona: Maðurinn minn er skipstjórinn, en ég hef verið útnefnd flotaforingi. S.V. Stundum finnst mérgottaö vera einfari. Mér finnst mjög gott aö vera aleinn meö mínar hugsanir, geta myndaö mér skoöanirán þess aö veraö fyrir áhrifum annarra. Víkingur 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.