Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Page 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1984, Page 33
Sú dökkbláa... Núna þegar ferðatíminn er að hefjast er rétt að rifja upp eina þrælgóða um ungt fólk, sem ferðaðist með hjólhýsi. Ekki vitum við hvar þetta gerðist, hvort það var á (slandi eða annars staðar, en það skiptir engu. Þetta voru tvö pör á fólksbíl með hjólhýsi í eftirdragi. Kvöld eitt var ekið um sveit- arhéruð í átt að hjólhýsastæði og annað parið lá aftur í hjól- hýsinu (sem er bannað), og var að aðhafast eitthvað (sem ekki er bannað nema í hjólhýsi á ferð). Á vegamótum stöðvaði ökumaðurinn bíl sinn og reyndi að átta sig á hvert halda skyldi. Það var á þessu augnabliki, sem óhappið gerðist. Hjúin í hjólhýsinu stigu út á veginn, í Adams og Evuklæðum einum saman og ætluðu að sinna kalli náttúrunnar úr því hlé hafði verið gert á för. Ökumaðurinn vissi hins- vegar ekki um farþega sína, en taldi sig vita hvaða leið hann ætti að fara og gaf allt í botn. Eftir stóðu þau Adam og Eva í sinni paradís. Hádegisverður á borðum, herra minn! ☆ Grátt mun eflaust gaman kárna. Nú gæti Olsen þarfnast vina, ef Sigmund hefur sett á Árna sjálfvirkni í útlimina. Hákon Aöalsteinsson á Húsavík. ☆ Þeir eru að berjast í Beirút, bræðralagshugsjónin deyr út. En til þess þeir hætti þá held ég að ætti aö hóta að senda þeimGeirút. ☆ Söguhetjan okkar bjó á eyju fyrir noröan land, þar sem fugl- ar verpa á vorin. Söguhetjan var oröin talsvert roskin aö árum, karlmaöur komin á átt- ræöis aldur. Vandamáliö hans var kyndeyfö og hann kvartaöi undan þvíviö góöan vin. — Góöi éttu bara egg, sagöi vinurinn. — Já, ég veit aö þaö á aö hjálpa, sagöí söguhetjan, og ég át tólf egg ígær. En þaö skiluðu sérekki nema sjö ígærkvöldi. Víkingur 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.