Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 15
SKRAPIÐ Skipavogin „Það ánægjulegasta var rafeinda-skipavogin frá is- landi, og ég pantaði mér eina slika. Að öðru leyti freistaði min fátt...“ „Frá minum bæjardyrum séð, var islenska skipavogin ein þess virði að fara á sýn- inguna.“ Þessum tilvitnunum hér að ofan er stolið úr norska blað- inu NORSK FISKERINÆR- ING, og eru þær umsagnir tveggja útgerðarmanna og skipstjóra, norskra, sem eru að láta i Ijós álit sitt á stærstu sjávarútvegssýningu siðasta árs, sýningunni í VIGO á Spáni, þar sem yfir 400 fyrir- tæki frá 30 löndum sýndu vörur sinar. Sá sem á fyrri orðin er Roar Wolstad frá Ellingsöy, en hinn er Torodd HusefráÁlasundi. í eigin umsögn um sýning- una segir blaðið m.a.: „Eins og áður sagði, var fátt um nýjungar á sýningunni. En það sem við fundum vakti verðuga athygli. Það, sem margir hafa til þessa talið úti- lokað, hafa íslendingar nú gert, að smíða skipavog, sem vigtar nákvæmlega, án þess að ölduhæð eða titringur frá vél hafi þaráhrif á“. Síðasta tilvitnun okkar í þessum gripdeildum úr norska blaðinu er höfð eftir Torodd Huse: „Þrátt fyrir að vogin kostar 45.000 (n)krón- ur, er hún samt ódýr“. Og Huse pantaði þrjár vogir. Það er Póls-skipavogin frá ísafirði sem um er fjallað i þessum tilvitnunum, eins og flestum lesendum er sjálf- sagt Ijóst. Það er mjög ánægjulegt að lesa slikt um íslensk fyrirtæki, ekki sist þegar þaö kemur frá Norð- mönnum, sem við sækjum annars margt til. Og um leið hlýtur það að verða hvatning til enn frekari afreka. Hjá Jónasi Ágústssyni sölustjóra Pólsins fékk Vík- ingurinn upplýsingar um að salan í skipavogunum gangi mjög vel, þær væru auk sölu innanlands seldar til Noregs, Færeyja, Grænlands, Banda- rikjanna og nokkur sýnishorn Feröaveiki liðin tíð: — lítill plástur í stað töflu. Margir kannast við þá vanlíðan sem fylgir ferðalög- um, þ.e. flugveiki, þílveiki og sjóveiki. Ófáir eru þeir sjó- mennirnir sem stöðugt finna fyrir óþægindum sjóveikinnar þrátt fyrir áralanga sjó- mennsku. Menn hafa látið sig hafa óþægindin i stað þess aö liða þær hvimleiðu auka- verkanir sem fylgja töku hefðbundinna sjóveikilyfja, svo sem syfju og drunga. Nú er komið á markað hér á landi nýtt form á ferðaveiki- lyfi, sem er sérstaklega ætlað ferðalöngum, því er komið fyrir í plástri, sem settur er bak við eyra ferðamannsins. Plásturinn er skráður hér undir nafninu SCOPODERM. SCOPODERM inniheldur lyfið skópolamín. Lyfið fer úr plástrinum i gegnum húðina og hindrarferðaveiki. Lyfið sogast jafnt til jafn- vægisstöðva í heila, en jöfn losun þess og þaö hversu hafa verið send til ýmsra Evrópulanda, sem hafa sýnt þeim áhuga. Póllinn mun i sumar halda sókninni á er- lenda markaði áfram, m.a. með þátttöku i sjávarútvegs- sýningunum sem verða í Kaupmannahöfn í júni og Þrándheimi í ágúst. bein leið lyfsins er til verkun- arstaðar losar sjúklinginn við hinar alþekktu aukaverk- anir hefðbundinna ferðaveiki- lyfja. Ferðaveiki orsakast af því aö jafnvægisstöðin ruglast ef svo mætti að orði komast. SCOPODERM er ætlaö fullorðnum og börnum 10 ára og eldri. SCOPODERM plást- urinn er settur á þurrt og hár- laust svæði bak við eyrað 5—6 klst. áður en verkunar er óskað. Plásturinn er fjar- lægður þegar verkun er ekki lengurtalin nauðsynleg. Ef verkunar er óskað leng- ur en 3 sólarhringa, er plást- urinn fjarlægður að þeim tíma liðnum og nýr settur i staðinn bak við hitt eyrað. Plásturinn heftir á engan hátt athafnafrelsi manna og hægt er að fara í bað, og stunda hver kyns íþróttir svo sem sund með plásturinn á sér. Plásturinn fæst einungis i apótekum og heimilt er aö af- greiða 5 plástra án lyfseðils. Póls-skipavog í Græn- lenska togaranum Tasiilaq. VÍKINGUR 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.