Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 25
Utan úr hcimi Söm urðu örlög keppinautanna, og á svipuðum tíma Á árinu 1974 urðu þau nöt- urlegu örlög að M/S Patra, áður Kronprins Fredrik, keppinautur Gullfoss í Is- landssiglingunum um áraPil, Prann i Rauðahafinu. Á annaö þúsund manns, „pílagrímar“, voru um borð, og rúmlega 100 fórust. M.S. „Mecca“ (áður Gullfoss) var nýfarinn frá Jeddah, er eldsvoöi braust út; áður en skipið rak að landi tókst að bjarga áhöfn og 1200 farþegum („pilagrimum"). Það er und- arleg tilviljun, að þessi skip, er um árabil voru keppinautar i islandssiglingunum, skildu siðar takast á við sömu verk- efni undir suðrænni sól, og örlögin verða þau sömu með nokkra vikna millibili. Að sjálfsögðu var farþegafjöld- inn 5—6 faldur miðað við þann fjölda farþega, er skipin fluttu á vorum norðlægu slóð- um. Gömlu keppinautarnir Kronprins Fredrik og Gullfoss, áður en þeir hlutu nöfn m/s Patra og m/s Mecca. Danir stöðvuðu 56 kaupskip Sl. ár stöðvaði danska sigl- ingamálastofnunin 56 kaup- skip, vegna lélegs ástands. Danska siglingamálastofn- unin er eitt af 14 Evrópurikj- um í Port State Control- ordning. Fulltrúar siglinga- málastofnunar athuguöu 380 erlend kaupskip, frá 41 landi. Um borð í 56 kaupskipum var ástandiö svo slæmt, að þau voru stöðvuð uns bætt hafði verið ur hlutunum. Það vakti athygli, aö ekkert af skipum frá Liberiu var stöðvað. Enn fækkar skipum undir norska fánanum Fyrstu 11 mánuði ársins 1985 fóru 228 skip undan norska fánanum. 49 kaup- skipanna veröa áfram í eigu Norðmanna, en undir erlend- um fánum. 119 skip voru seld öðrum, og 60 skip voru seld i brotajárn. Á árinu 1985 pönt- uðu norskir útgerðarmenn 30 skip að verðmæti 5 millj. n.kr.. „Systurnar sjö“ draga saman seglin Olíufélögin sjö B.P. Chev- ron, Exxon, Gulf, Mobil, Shell og Texaco hafa selt í brota- járn 386 tankskip, 31,1 millj. tonn dw., á sl. 10 árum. Með- alaldur skipanna var 14,5 ár, og meðalstærðin 80.500 tonn dw.. 40% af þýska kaupskipaflotanum undir „þæginda- fánum“ 40% af þýska kaupskipa- flotanum, siglir i dag undir „þægindafánum". Yfirmenn, eru þýskir, en undirmenn yfir- leitt frá Filippseyjum. Sanko Line stokkar upp spilin Að afloknum gjaldþrota- skiftum, tókst Sanko Line að halda 130 skipum. Flest eru skipin lausafarmskip (bulk- carriers), en nokkur áætlun- arskip og tanskip eru einnig eftiríflota Sanko. Hvaða fáni er ódýrastur? Kyrrahafseyjan Vanuatu hefur lækkað skráningar- gjöldin um 30%, í samkeppni við Panama og Líberiu. Norðursjórinn styður danskt efnahagslíf Norðursjórinn lét Dönum i té 2,9 millj. tonna af oliu s.l. ár. 1986 er áætluninn að fá um 4 milljónir tonna. 1987 er áætluninn 4,4 millj. tonna. Við þetta bætist svo gasvinnslan, og verða Danir trúlega með ca. 65% af eigin neyslu á þessum vörum á eigin hendi. Þá reikna þeir með að geta sótt 10—15% af orku i vind- inn, en Danir flytja út mikið af vindmyllum, aðallega til U.S.A.. Sigurbjörn Guðmundsson stýrimaður VÍKINGUR 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.