Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 27
Utan úr hcimit^ Norsku skemmtiferðaskipin gera það gott I harðri samkeppni er nýt- ing norsku skemmtiferða- skipanna 5 — 10% hærri en keppinautanna. Norsku skemmtiferðaskipin eru yfir- leitt með 85 — 90% nýtingu. Danski kaupskipaflotinn dregur björg í bú Brúttótekjur danska kaupskipaflotans urðu hærri á árinu 1985 en áður hefur þekkst. Alls urðu brúttótekj- urnar 23 milljarðar d.kr. á árinu 1985. Áætlunarskipin (liners) skiluðu 14 milljörðum d.kr. og öll önnur skip 9 millj- örðum d.kr.. Þess má og geta að Danir eiga sjöunda stærsta gámaflutningaflota veraldar, þar af á Mærsk ca. Velta þeirra sl. ár var um 5,3 milljarðar n.kr. og markaðs- hlutdeild ca. 25% af mark- aðnum. Royal Caribbean Crusie Line er nú með glæst- an farkost i byggingu i Frakk- landi, stærðin verður 74000 brúttólestir. Myndirnar sýna módelin, er gerö hafa verið fyrir þennan nýja farkost. 75%. Floti Mærsk er nú 150 skip, undirýmsum fánum. Enn minnkar sænski kaupskipaflotinn Sl. áramót taldist sænski kaupskiptaflotinn vera 444 skip, 3,3 millj. tonn dw. Árið 1984 var skipaflotinn 476 skip 4,3 millj. tonn dw. Talið er að Svíar geri út allt að 200 kaupskipum, undir „þæg- indafánum". Yfirmenn eru þá gjarnan sænskir, en undir- menn frá Austurlöndum. Olían, gullnáma Ola Nordmann Olíuframleiðsla Norð- manna á árinu 1985 var 38,5 millj. tonna, aukning um 10% frá fyrra ári. Stór vinnuprammi McDermott hefur tekið á móti stærsta „kranapramma" í heimi. Tamano skipasmíða- stöðin i Japan smiðaði prammann. Lengdin er 200 metrar, breiddin 100 metrar (20 000 m2). Tveir kranar eru á prammanum og er lyftigeta hvors krana 6600 tonn. 'lbúöir eru fyrir 750 manns á prammanum. Skráningarheiti prammanns er „DB-102". Prammanum er hægt að sökkva að vissu marki (Semi-submersible). Zim spjarar sig israelska útgerðarfélagiö Zim velti $ 702 millj. sl. ár. Hagnaður varð $ 8,2 millj. eftir aö félagið hafði borgað niöur $ 80 millj. af skuldum sinum. Zim á nú 60 kaupskip, og er það um % af kaup- skipaflota ísraels. Floti Zim er 1,9 millj. tonn dw.. Starfs- mannafjöldinn er 2500 manns. Fækkar í baujunum 1170 kaupskip 49,1 millj. tonn dw. liggja nú aðgerðar- laus viðsvegar um heiminn. Talan er fyrir árið 1985. Er þetta umtalsverð fækkun frá 1984, en þá voru sambæri- legar tölur 1302 kaupskip og 62,3 millj. tonn dw.. VÍKINGUR 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.