Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 30
FRÍVAKTiri 30 VÍKINGUR Af gulnuðum blöðum Frá einum ... Salomon Einarsson í Kópavogi sendi Frívaktinni bréf nýlega og er tilefnið nokkrar gamlir og góðir hús- gangar, sem birtust í dökk- bláa kassanum í 1. tbl. þessa árs. Fyrsta vísan, sem Salomon sendir, er eftir Sím- on Dalaskáld. Ingibjörg er ágæti, allar raunir léttir, sefur fyrsthjá Simoni og sínum manni á eftir. Svo segir orörétt í bréfinu: Þá eru tvær fyndnar vísur gamlar, en ekki veit ég um höfund þeirra. Kveðnar í elli og gætir þar eftirsjár og trega: Ungum var mér ekki rótt, eldurbjó íholdi. Átta hopp á einni nótt ég ágætlega þoldi. Út er runniö æsku skeiö, illa svefn ég festi, efégfæ mér eina reiö á átta nátta fresti. Loks er smá frásögn. Það var á þeim gömlu, góðu sild- arárum aö saga þessi gerðist i norðlenskum síldarbæ. Pilt- ur og stúlka gengu saman út úr bænum og fram i dal, þar sem þau fóru í ástarleik. En ekki vildi til betur en svo að þau gátu ekki aðskilist. Varð að flytja þau þannig ásigkom- in til læknis. Læknirinn var gamansamur maður og hag- yrðingur i besta iagi. Um þetta orti hann: Brátt sig drógu afbrautinni, beggja hlógu sinni. Náralóan lokaöi iærakjóann inni. Lá á hnjánum hraunfastur hann á sáningsgrunni. Stórt var lán aö Steingrímur stinga upp skrána kunni. .. .og öðrum Annar vinur Frívaktar- innar, Óskar Einarsson, sendi langt bréf, sem birtist nú aö hluta, en meira seinna. Eldri maður var starfsmað- ur RARIK. Hann sat eitt sinn að morgunverði, þegar ung stúlka settist við hlið hans, á brjóstahaldara einum fata að ofan. Félagar þess roskna spurðu hann hvort þetta hefði ekki áhrif á hann. Sá gamli svaraði: Hold er mér hætt aö rísa, horfnar þær náöargjafir. Nakin þó nátgist skvísa niöur hörmungin lafir. Ekkert fær þar um þokaö, þaö get ég mælt meö sanni, lifsdyrum öllum tokaö og læst fyrir gömlum manni. Maður heyrði á tal kvenna, þar sem þær voru að vand- ræðast yfir þarnafötum, sem mætti henda, þar sem ekkert væri þarnið. Hann sagði: Glögg á sliku geri ég skil, geymiö þiö fatadótiö. Ég skal búa barniö til bara efþiö skaffiö mótiö. Hermann Stefánsson (frá Kleifum) þingfréttaritari út- varpsins orti eftirfarandi limru: Aö hreykja sérhátt, þaö ersiöur sem hérmá sjá oft, þviermiöur. Þaö er glæsilegt oft, er menn gnæfa viö loft, hitt er slæmt ef þeir ná ekki niöur. — Hversvegna hættir þú i síðasta skipsrúmi? — Vegna veikinda. — Veikinda? hvaða veik- inda? — Kallinn hafði ofnæmi fyrir mér. Hann skilur vist ekki spænsku. Tviburar fæddust og Pési litli í næsta húsi kom að lita á þá, þar sem þeir lágu hvor i sínum enda í vöggunni. — Ja hvur skollinn, þeir eru eins og spaðakóngurinn, með haus á báðum endum. — Þú röflar og rífst um aö ég drekki of mikiö. En þú sagöir ekkert þegar þú keyptir pels fyrir tómu fiöskurnar. Gvendur var geldkall — virkilega staðfastur pipar- sveinn. Honum leið ágætlega með það, en þær aðstæður sköpuðust stöku sinnum að hann óskaði sér kvenlegrar hjálpar svo mikið að við lá að hann öfundaði kvænta vini sína. Eitt allra versta verk sem hann varð að vinna var að troða tvinna í gegnum nál- arauga. Eftir mikið umstang tókst honum um daginn að þræða nálina — hann þurfti að festa i sig tölu — og að því loknu dæsti hann: Þar sparaði ég mér konu einu sinni enn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.