Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 34
Þorkell Sigurlaugsson. Leiguskip á ís- lenska flutnínga- markaðnum hafa verið talsvert í sviðsljósinu að undanförnu, enda ekki ástæðulaust. Leiguskip eru nú mörg í siglingum fyrir íslendinga og flest mönnuö út- lendingum. íslensk- ir sjómenn vilja fá þessi störf, og hafa til þess gild rök, en útgerðarmenn hafa líka rök. Hér á eftir fara greinar um máliö frá báðum hliðum. Þorkell Sig- urlaugsson for- stööumaður áætl- unardeildar Eim- skips og varafor- maður Sambands íslenskra kaup- skipaútgeröa segir frá rökum útgerð- anna, en Ari Leifs- son formaður Stýri- mannafélags ísl. heldur uppi merki sjómanna. 34 VÍKINGUR Siglingar leiguskipa á íslenska flutingamarkaönum Undanfarin ár hefur alltaf öðru hverju vaknað umræða um erlend leiguskip hér á landi, og réttmæti þeirra. Hafa mismunandi ástæður legið að baki þessari umræðu svo sem verkefnaleysi íslenskra skipa, atvinnuleysi sjómanna eöa jafnvel að um gjaldeyrissóun sé að ræða. Umræða þessi hefur yfirleitt farið fram í fjölmiðlum, á samningafundum eða í tengslum við einhverjar uppákomur eða aðstæður í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Um þessi mál hefur oft verið fjallað af takmarkaðri þekkingu og málið ekki verið skoðað í heild sinn. Mun ég hér gera nokkra grein fyrir þessu máli til að útskýra hverjar ástæður eru til þess að íslenskum kaupskpitaútgerðum er nauðsynlegt að reka að vissu marki erlend leiguskip. Siglingar eru frjálsar Islensk kaupskipaútgerð býr við þá sérstöðu umfram margar aðrar atvinnugreinar hér á landi, að hún lifir i al- þjóðlegu umhverfi og býr ekki við innflutningsvernd, kvóta- kerfi, niðurgreiðslur eða ýmis konar höft. Kaupskipaútgerð býr ekki við leyfisveitingar, enda gildir sú grundvallar- regla í alþjóðasiglingum, að þæreru frjálsar. Eitt riki getur tæplega tak- markað eða sett einhver skil- yrði um siglingar skipa. Við búum við þá ánægjulegu staðreynd að islenskar út- gerðir annast flutninga á yfir 90% af okkar inn- og útflutn- ingi að frátalinni oliu og súráli til Álverksmiðjunnar. Telja verður að þrátt fyrir erfiðleika í útgerð undanfarin ár hafi tekist að byggja upp hagkvæmt flutningakerfi og beita nútimaflutningatækni i siglingum til og frá landinu og hér innanlands. Þótt það sé ekki öllum Ijóst, þá er ein megin skýringin sú, að undanfarin ár hafa veriö tekin upp ný vinnubrögö við uppbyggingu flutningakerfis- ins. Horfið hefur verið frá því að kaupa alla hluti, bæði gáma, tæki og skip. Afkoman hefur einfaldlega ekki leyft slikt, en til að framþróunin gæti haldið áfram hefur í vax- andi mæli verið aflað nýrra tækja með leigusamningum af ýmsu tagi. Á áttunda áratugnum kepptust menn við að fá leyfi til að kaupa skip. Þá tak- mörkuðu stjórnvöld oftlega möguleika útgerða á að kaupa skip og rikisforsjá var alls ráðandi. Verðlagseftirlit boðaði núll stefnu þar sem ekki mátti sjást hagnaöur og á sama hátt skömmtuðu verðlagsyfirvöld tekjuhækk- anir þegar taprekstur var. Þá var það oft fremur stjórn- málaástand og velvild stjórn- valda sem réði þvi hvort mikiö eða lítiö var keypt af skipum, eða hvort afkoma útgerða var góð eða slæm. Þróunin var hægari, og þegar skip var keypt voru allar likur á því að það yrði rekið a.m.k. i 10—15 ár. í dag er þróunin miklu örari og sú stærð eða gerð af skipi sem hentar í dag getur þess vegna verið óhagkvæm eftir eitt eða tvö ár. Útgerðir sem hafa farið verst út úr ástandinu undan- farin ár eru þær sem hafa fjárfest mikið i skipum og ekki aðlagað sig að mark- aðsaðstæðum hverju sinni. Skipastóll í siglingum hér á landi Fjöldi skipa í íslenska kaupskipaflotanum hefur lítið breyst á undanförnum 10 árum. Skipin voru flest árið 1979, 52 aö tölu. Nú eru tæplega 50 skip í kaupskipa- flotanum. Fjöldi áætlunarskipa hefur einnig vaxið á tímabilinu úr 7 skipum árið 1974 i um það bil 15 skip i dag. Lestarrými flotans hefur aukist jafnt og þétt á timabil- inu eða um u.þ.b. 30% á 10 ára timabili. Burðargetan í gámum talið hefur aftur á móti aukist talsvert meira. Verðmæti skipastólsins er líklega um 40 milljónir Bandarikjadollara eða um 1.600 milljónir króna. Verðfall skipa hefur verið talsvert mikið, en væri stórum meira ef útgerðir hefðu fjár- fest mikið í skipum undnafar- in ár. Telja verður að varfærn- isleg fjárfesting flestra út- gerða hafi komið i veg fyrir meiriháttar áföll i útgerö hér á landi þótt á því séu vissulega undantekningar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.