Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Side 35
Leiguskip Skilgreining á erlendum leiguskipum Erlend leiguskip hafa alla tiö verið i siglingum til og frá landinu. Áætla má að yfir 80% af flutningum til og frá landinu og innanlands fari með skipum mönnuðum ís- lenskum áhöfnum, og hefur þetta hlutfall verið svipað undanfarin ár. Flokka má erlend leiguskip upp i þrjá aðalflokka. 1. Farmleiguskip. Skip tekin í eina eða fáar ferðir til að sinna ákveðnu verkefni. Flest leiguskip eru í þess- um flokki og eru tekin aðallega til að flytja stór- flutningavörur s.s. fiski- mjöl, byggingarvörur, salt, afurðir og hráefni til stór- iðju o.fl.. 2. Tímaleiguskip. Leiguskip tekin til ákveðins tima, aðallega nokkurra mán- aða. Þessi skip eru eink- um i áætlunarsiglingum eða í föstum verkefnum á sviði stórflutninga. 3. Þurrleiguskip. Þessi skip eru á sama hátt og tima- leiguskip tekin til ákveðins tima, yfirleitt til lengri tima en eins árs. Þessi skip hafa aðallega verið i áætl- unarsiglingum. Þau eru mönnuð íslenskum áhöfn- um og leigutakinn ber al- gjörlega ábyrgð á rekstri og viðhaldi skipsins eins og um eigiö skip væri aö ræða. Það er i sjálfu sér ekki eftir- sóknarvert að vera með er- lent leiguskip í rekstri með erlendri áhöfn, þar sem slíkt hefur ýmsa ókosti í för með sér. Ýmsar ástæður gera það þó í mörgum tilfellum óhjá- kvæmilegt og hagkvæmt. Markaðsverð erlendra leigu- skipa hefur veriö mjög lágt vegna kreppu í alþjóðasigl- ingum og skipaeigandi verður að sætta sig við markaðsverð án tillits til rekstrarkostnaðar. Enginn getur þannað erlend- um kaupanda fiskimjöls, frysts fisks eða annarra sjáv- arafurða eða stóriðjuvara, svo dæmi sé nefnt, að senda hingað skip til að lesta þá vöru sem hann kaupir. Sama gildir um innflutninginn. Enginn getur bannaö selj- anda vöru til Íslands að senda hignaö erlend leigu- skip. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra leiguskipa sem sigla til og frá landinu er timabundin leiguskip, tekin i eina eða fáar ferðir vegna flutninga á vörum sem m.a. var áður minnst á. Skipamiölarar eða skipafélög útvega þessi skip fyrir farmeiganda eða farm- kaupanda og ræður þar verð, framboð og eftirspurn mark- aðnum. 'lslenskar utgerðir hafa ekki tök á þvi að eiga skip af réttum stærðum og gerðum til að anna hinum margvíslegu flutningaþörfum hvernær sem er og hvert sem er. Til þess er markaðurinn allt of litill og margbreytilegur. Leiguskipanotkun eðlileg að vissu marki Skal nú gerð grein fyrir þvi hverjar eru helstu ástæður þess, að erlend leiguskip hafa verið i siglingum til og frá landinu þótt í litlum mæli sé. Mismunandi flutningaþarfir Skip islenskra útgerða henta ekki i öllum tilvikum við Eimskip er með tvö er- lend leiguskip með er- lendum áhöfnum, annað i strandsigling- um og hitt i Norður- Atlantshafssiglingum. Flutningsmagn á þess- um leiðum tekur mikl- um breytingum og skipti á skipum tíð. VÍKINGUR 35

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.