Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Blaðsíða 39
Siglingar
■ ■ ■
Leiguskip
Skipadeild SÍS er nú
með tvö erlend leigu-
skip meö erlendum
áhöfnum í áætlunar-
siglingum milli íslands
og Evrópu. Gera má ráð
fyrir að um tímabundið
ástand sé að ræða.
vaxandi ásælni erlendra
skipafélaga er að tryggja
góða þjónustu og hagkvæmni
í rekstri. Hástemmdar yfirlýs-
ingar eða hótanir duga
skammt.
Hagsmunir útgerða
og sjómanna
fara saman
Það hefur sýnt sig marg oft
í gegnum árin, að sterk staða
islenskra kaupskipaútgerða
er nauðsynleg til að tryggja
hagkvæma flutninga til og frá
landinu. Við þurfum að koma
afurðum okkar á markað á
réttum tíma og i réttum
farmstærðum.
Gámaflutningar hafa opn-
að nýja markaði s.s. fyrir
sjávarafurðir okkar, frystan
fisk, ferskan fisk o.fl.. Án
hagkvæmrar og sveigjanlegr-
ar stórflutningaþjónustu
hefði ekki tekist að tryggja
uppbyggingu á þeirri stóriðju
sem er í landinu og athyglis-
vert er að svo til allur flutn-
ingur fyrir stóriðjuna hér á
landi er með islenskum skip-
um.
Mikilvægt er að okkur tak-
ist að halda stöðu islenskrar
kaupskipaútgerðar sem
bestri og manna skipin með
islenskum áhöfnum. Það er
engin spurning að islenskir
sjómenn bera af flestum sjó-
mönnum i nágrannalöndum
okkar. Reynsla og menntun
þeirra verður að teljast góð
þótt menntunina mætti
eflaust færa i nútimalegra
horf.
Spurningin verður ekki um
það hvort útgerðirnar séu
með leiguskip með erlendum
áhöfnum að einhverju marki,
heldur miklu frekar það hvort
okkur takist að viðhalda
hagkvæmri og nútimalegri
flutningaþjónustu til lengri
tima litið. Aðeins þannig get-
um við tryggt starfsmönnum
útgerðanna til sjós og lands
atvinnu. Að því leyti erum við
á sama báti. Við þurfum að
róa að því öllum árum að
tryggja stöðu útgerðarinnar,
gera hana samkeppnisfæra
við útgerð í nágrannalönd-
unum og sækja á ný mið. Þótt
við keppum hart innbyrðis frá
degi til dags, þá megun við
aldrei gleyma mikilvægi þess
að siglingarnar eru hluti af
sjálfstæði okkar og við þurf-
um að vinna saman að þvi að
halda flutningum að og frá
landinu í höndum Islendinga.
Þorkell Sigurlaugsson.
VÍKINGUR 39