Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Blaðsíða 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Blaðsíða 51
MIKILVÆGAR MARKAÐSFRÉTTIR ÚR PACIFIC FISHING LÚÐA. Árið 1986 mætti kalla ár haukalóðar ef spár um lúðuafla rætast. Áætlað er að stofninn sé nægilega sterkur til að veiða megi 32000 tonn árið 1986, sem er all miklu meira en árið 1985, en þá var leyfð veiði i British Colombia og Alaska 25000 tonn. Yfirstjórn veiðanna er í höndum lúðunefndar sem telur að hæfilegt sé að veiða allt að 32000 tonnum árlega. Lúðu- stofninn hefur verið vaxandi á undanförnum árum sem hvað mega þakka góðri stjórnun, og góöum aðstæðum i sjónum á svæöinu. Nefnd- in mun sennilega leyfa veiöar siðast i april eða i byrjun mai þótt sumar vinnslustöðvar vilji helst byrja í fyrri hluta apríl, vegna skorts á lúðu. Birgöir af frystri lúðu voru i lok nóvember s.l. aðeins 3600 tonn, en í nóvember 1984 um helmingi meiri eða 6300 tonn. Reiknað er meö að verð uppúr skipi verði i byrjun vertíðar að minnsta kosti 84 kr/kg sem er verulega betra en siðasta ár þegar 50 kr. fengust fyrir kg i ver- tiöarbyrjun. Liklegt er að verðiö nú muni lækka eitthvað þegar liður á vertiðina vegna þess hve kvótinn er hár. En þar sem lúöubirgðir eru engar er jafnvel líklegt að svo fari ekki. SÍLDARHROGN. Verð á síld upp úr sjó er nú í San Francisco flóa 42 til 63 kr/kg. Hrogna- magn er 11,2% til 12,8% af þunga síldarinnar. Þetta verð sýnir að þúist er viö minnkandi framboði á síldarhrognum á vesturströnd Ameríku á þessu ári. suða 3,2 miljónir kassa á móti 4,1 miljón árið 1984. Heildsöluverð á niðursoðnum laxi er hækkandi. Litil hreyfing hefur veirð á markaði fyrir frystan lax. Sumir kanadiskir laxa útflytj- endur hafa lækkað veröið til að reyna að selja eitthvað. Birgðir af frystum laxi í Bandaríkjun- um voru 29300 tonn 30. nóvember 1985,litil- lega minni en i október sama ár, en þá voru þær 30200 tonn. ’l nóvember 1984 voru birgöir af frystum laxi 28000 tonn. TÚNFISKUR. i desember 1985 var innflutning- ur til Bandaríkjanna á niðursoðnum túnfiski i vatni orðinn meiri en 91900 tonn og er það aukning um 29% frá árinu 1984. ALASKAUFSI. Kynningarherferð sú sem út- gerðarmenn verksmiðjutogara i Alaska ákváðu á siðasta ári að hefja i Bandarikjunum er nú hafin. Fyrirtækiö Highliners í Seattle hef- ur tekið að sér að gera heppilega rétti úr ufs- anum. Fyrirtækiö vinnur úr Alaskaufsanum ýmsa hakkaða rétti sem starfsfólk i verksmiðjum er siðan fengið til að bragða á. T.d. hefur verið búin til þykk súpa (chowders) og ofnbakaður réttur sem búinn er til á sama hátt og ítalski kjötrétturinn lasagnas. Highliners er að reyna að vekja áhuga matvælaframleiðenda á þessu hráefni. Heildsöluverð á hökkuðum Alaska- ufsa er nú 30—34 kr/kg. LAX. Birgðir verða liklega minni á þessu ári þar sem búist er við minni veiði nú en á árinu 1985. Gert er ráö fyrir að 14 milljón fiskar end- urheimtist við Fraser River (B.C.) og af þeim verði 9,5 miljónum slátrað, en 1985 var 13,3 miljónum fiska slátrað viö Fraser River. Talið er að viö Alaska verði samsvarandi minnkun. Á miðri vertíðinni er gert ráð fyrir að 138 miljón fiskum hafi verið slátrað samanborið við 145 miljónir 1985. ’l Bristolflóa i Alaska er gert ráö fyrir að slátrun minnki mest eða verði á þessu ári 12,1 miljón fiskar á móti 24 miljónum 1985. Framboð frá laxeldisstöðvum eykst stööugt og einn minniháttar seljandi eyddi nýlega 1 miljón króna í athugun sem gaf til kynna að eyða þyrfti 126 miljónum króna áður en hagnaður yrði. Nokkrir laxabændur frá Skandinavíu réðu nýlega ráðgjafa i mið-vestur rikjunum til að athuga markaðinn. Niðursoðinn lax varð 21% minni áriö 1985 en 1984. Áriö 1985 varð niður- SARDÍNUR. Sardinuveiðar voru leyfðar i Kali- forníu 1. janúar 1986 og hámarksframleiðsla má vera allt að 1000 tonnum. Þetta gefur til kynna að sardínuveiöar séu aftur að hefjast við Kaliforniu, en þær voru i eina tiö uppistað- an í fiskveiðum rikisins. Hvaða þýðingu sard- ínuveiðar hafa nú fyrir Kaliforniu er ekki Ijóst því niðursuöuiðnaðurinn virðist alls ekki hafa áhuga á sardinum, þó er einhver markaður fyrir hinar heföbundnu ávölu eins punds dósir. KÓNGAKRABBI. Visindamenn frá Alaskahá- skóla hafa lokið rannsókn sinni á snikjuhrúð- urkarli sem sýkir flestar tegundir af Alaska kóngakrabba. Hrúðurkarlinn veldur þvi að bæði karl- og kvenkrabbar verða ófrjóir. Vis- indamennirnir leggja til aö engum sýktum krabba verði sleppt i sjóinn aftur. Með þvi móti mætti draga úr því að snýkjudýrið bærist á milli krabba, en snýkjudýr þetta er hættulaust mönnum. VÍKINGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.