Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 57
Hér oé nú Fréttaskýring Gallar kvótakerfisins Kvótakerfiö hefur frá upp- hafi verið umdeilt sem stjórn- unarkerfi viö fiskveiöarnar. Menn hafa skipst i andstæö- ar fylkingar nokkuð eftir landshlutum. Þeim fer nú fjölgandi sem draga i efa ágæti þessa kerfis, sem stjórntækis við veiðarnar, eft- ir því sem fundnar eru upp fleiri leiöir til að komast fram hjá kerfinu. Þær leiöir eru orðnar margar eftir því sem sjómenn segja. Eftirlit með veiðunum er mjög takmarkað vegna manneklu hjá sjávar- útvegsráðuneytinu. Framhjá vigt Sjómenn viðurkenna að svo og svo miklu af afla sé landað framhjá vigt, þar sem litið eða ekkert eftirlit sé með þessu. í öörum tilfellum er það svo að margar fisk- vinnslustöðvar eiga báta sjálfar og aflinn er vigtaður hjá þeim. Þá hafa komið fram fullyrð- ingar i blöðum, um að löndun- arskýrslur þeira skipa sem sigla með aflann eða í gáma- útflutningi séu falsaðar. Það mál er nú i rannsókn. í vetur hefur það verið haft að gamanmáli hjá sjómönn- um hvort þeir hafi verið að landa þorski eða gulri ýsu, eins og þeir kalla þaö. Gula ýsan er auðvitað þorskur, sem gefinn er upp sem ýsa, þá daga sem bátar á sóknar- marki mega ekki veiða þorsk. Þáfullyrða sjómenn einnig að ýmsar aðrarfisktegundir, svo sem ufsi og langa, hafi fengið á sig gulan lit. Hér er auðvitað um alvarlegt mál að ræða, ef nota á kvótakerfið sem stjórnun við fiskveiðarnar til aflatakmörkunar. Það er litil hætta á að sjómenn séu að skrökva þessum sögum upp á sjálfa sig. Þeir hafa einfald- lega fundið út leiðir til að komast fram hjá kerfi sem þeir telja ósanngjarnt og gagnslaust. Fiski hent Sjómenn hafa einnig viður- kennt opinberlega að þeir hendi miskunnarlaust léleg- um fiski, til þess að skerða ekki kvóta sinn. Sjómenn á Snæfellsnesi sögðu að dauö- ur fiskur hefði flotið um allan sjó á vertíðinni i fyrra, eftir brælur. Menn hirtu einfald- lega ekki 3 nátta fisk. Reynd- ur skipstjóri i Ólafsvik sagö- ist aldrei hafa vitað til þess fyrr en i fyrra að minni afli bærist á land eftir að net höfðu legið 3 næstur i sjó en eftir eina nótt. Aftur á móti hefur ekki reynt á þetta fyrir vestan á þessari vertið vegna þess að gæftir hafa verið með eindæmum góðar. Kvótakerfið hreinlega býður uppá að þetta sé gert og ef til vill er þetta eitt mesta og stærsta gatiö í kvótakerfinu sem stjórntæki við fiskveiö- arnar til að takmarka afla. Gámaútflutningur Útflutningur á fiski i gámum fer mjög vaxandi. Þegar land- að er í gáma er fiskurinn ekki vigtaður hér á landi, heldur er vigtað uppúr gámunum er- lendis. Vitað er að fiskurinn rýrnar umtalsvert á leiðinni, því allir sem nálægt fisk- vinnslu hafa komið vita að fiskur rýrnar mjög mikiö á fyrsta sólarhring. Þeir sem fengist hafa við gámaútflutn- ing segja að rýrnunin sé á bil- inu 10% til 20% og fer nokk- uð eftir þvi hversu vel og skynsamlega er ísað í kass- ana. Ef tekið er meðaltal af þessu og sagt að rýrnunin sé 15%, þá getur bátur með 500 tonna kvóta tekið 575 tonn vegna rýrnunarinnar og þá nær kvótakerfið ekki lengur tilgangi sinum. Afli þeirra báta sem landa til fisk- vinnslustöðva hér er vigtaður um leiö og honum er landað, þannig að sá bátur tekur því 15% minni afla úr sjó en sá sem selur út i gámum. Hvaö er til ráöa? Sjálfsagt eru flestir á þeirri skoöun að nauðsyn beri til að takmarka veiöarnar, en þá vaknar sú spurning hvað sé til ráða fyrst kvótakerfið dug- ar ekki. Færa má að þvi rök að með stórauknu eftirliti sé hægt að láta kvótakerfið skila þeim árangri sem að er stefnt með því. Reyndir menn hafa bent á aörar leiðir og þykir mörgum sú leið að fækka úthaldsdögum togaranna i hverjum túr vænleg. Þeir hinir sömu hafa einnig bent á að fækka eigi netum hjá neta- bátunum og að skikka þá til að taka net sin upp á föstu- dögum og leggja þau ekki fyrr en aftur er róið að kvöldi sunnudags. Þeir sem benda á þessar leiðir benda jafn- framt á að þessi aðferð myndi einnig skila mun betra hráefni að landi en aðrar að- feröir. Hvort sem menn vilja taka þessa aðferð upp eða ein- hverja aðra er Ijóst að kvóta- kerfiö i núverandi mynd, og með þvi litla eftirliti sem nú er, nær ekki markmiði sínu og annað þarf að koma til. — S.dór. Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður ... hvort þeir hafi veriö að landa þorski eöa gulri ýsu. Gula ýsan er auövitaö þorskur sem gefinn er upp sem ýsa, þá daga, sem bátar á sóknar- marki mega ekki veiöa þorsk. VÍKINGUR 57

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.