Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Side 22
VÍKINGUR
sér allt aðrar reglur en öðrum og hóta
mönnum viðskiptastríði í allar áttir.“
Islendingar jafnvitlausir
og Bandaríkjamenn?
„Ég hef reynt að fylgjast svolítið
með íslenska fiskveiðikerfinu. Helsti
munurinn á stjórnun fiskveiða hér og í
Bandaríkjunum er að íslenska þjóðin
hefur góðan skilning á veiðum en
ílestir Bandaríkjamenn vita sáralítið
eða ekkert unt sjómennsku. Ég hélt
því að það ætti aldrei eftir að koma
fyrir að ég kæmi hingað og frétti að
íslendingar væru farnir að henda fiski
í sjóinn. Ég hélt að þetta gæti ekki
gerst hér. Að íslendingar gætu orðið
eins vitlausir og Ameríkanar, það er
algjörlega botnlaust. En þetta er
nákvæmlega það sem er að gerast og
þegar menn eru farnir að henda
fiskinum í sjóinn er alveg öruggt mál
að það er óstjórn á fiskveiðum. Það
skiptir engu máli út af hverju það er
gert - það er einfaldlega til skammar
að haga veiðunum þannig að menn
hendi fiski í sjóinn. Það er rányrkja og
ekkert annað og allir þeir sent standa
að fiskveiðum á Islandi eiga að koma
sér saman um að hætta því. Ég get
ekki svarað því hvað á að gera.
Spurningin er hvað á ekki að gera og
það á ekki að henda verðmætum í
hafið. Það verður að finna lausn á því
máli. Ég fiskaði einu sinni með ágætis
manni, hann heitir Guðjón Arnar
Kristjánsson - Addi Kidda Gau. Hann
sagðist vonast til þess að hann ætti
aldrei eftir að fá það mikinn fisk að
hann þyrfti að henda honum í sjóinn.
Hann var mikill fiskimaður.“
Framtíðin
„Nú sný ég bara alveg dæminu við
og hætti að standa í þessu skuttogara-
basli, - fæ mér lítinn bát með tvær
rúllur. Það verður bara einn fiskur í
einu og ekkert basl með trygginga-
félög eða erlenda markaði. Ég ætla
ntér að finna nýja markaði þarna í
Kaliforníu. Vera á litlum bát og selja
efnameira fólki þarna gæðafisk. Þetta
hefur verið reynt, en ég ætla að gera
smátilraun á þessum markaði í haust.
Það er nóg til af rninni bátum þarna.
Það er til að mynda búið að stoppa
allar laxveiðar í Kaliforníu, Oregon
og Washington og því eru margir
smábátaeigendur farnir á hausinn. Það
verður töluverður rnunur á þessu og
að standa í hinni útgerðinni, að selja
tvo kassa af fiski í staðinn fyrir 200
tonn! Ég held að tekjurnar verði síst
lægri í þessu en að standa í hinu
baslinu. Ég á bandaríska konu og tvær
stelpur, ellefu og þrettán ára, og hef
búið lengi úli, þannig að ég býst ekki
við að snúa heirn í bráð. - Samt verð
ég að viðurkenna að ég fæ mikla
heimþrá þegar ég horfi á fjöllin!“
Viðtal og myndir.BB-Isafirði.
Krtnglunnl.
Útbúum lyfjakistur
fyrir skip og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfjaskríni
fyrir vinnustaöi, bifreiöar og
heimili.
Almennur sími 689970.
Beinar línur fyrir
lækna 689935.
Ný Islensk framleiðsla
[MlNl/7/7
LnjlkJ
Tryggir örugg afkös
AJSTURBUGT 5 101 REYKJAVÍK SÍMI: 91 - 11777 FA<: 91-11751
líX^
ÁLFIAFELL HF.
Saltarinn er úr ryðfríu stáli. Framleiddur hjá Vélsmiðju
Þorsteins hf. í Grindavík. Þróaður með fyilsta öryggi og afköst
í huga. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk ÁJftafells.
22
A