Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Síða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Síða 10
Birgir Holm Björgvinsson, gjaldkeri Sjómannafélags Reykjavíkur: Fáum ekki aðstoð hér Birgir Hólm Björgvinsson: „Umræöan innan ASÍ er mest um hvernig eigi að stjórna landinu, en það kemur þeim ekkert við.“ Sjómannafélag Reykjavíkur hefur náð samkomulagi við útgerð Daníels B. um að um borð séu nú íslenskir hásetar. „Við vorum búnir að óska eftir viðræðum við útgerðina, en árangurslaust. Þegar allt benti til þess að ekki yrði við okkur rætt leituðum við til Norræna flutningaverkamannasam- bandsins um aðstoð. Eins boðuðum við verkfall og send- um boðunina til útgerðarinnar og ríkissáttasemjara Eftir það áttum við fund með útgerðinni þar sem gengið var frá þessu og okkar menn eru komnir um borð,“ sagði Birgir Hólm Björg- vinsson, gjaldkeri Sjómanna- félags Reykjavíkur. Birgir segir að nú séu ís- lenskir hásetar og íslenskur skiþstjóri um borð í Daníel B. „Með aðstoð erlendis er hægt að berjast í þessum mál- um, ekki fáum við aðstoð hérna heima, það kemur ekk- ert frá ASÍ. Það tekur allt meiri tíma hér heima og úti gerist allt hraðar. Þar vita menn líka um hvað þetta allt snýst. Sam- staðan er það takmörkuð hér heima." 7/7 að fá ykkar menn um borð íDaníel B. beittuð þið skyndiverkfalli. Er ekki hætta á að sá möguieiki hverfi ef frum- varp félagsmálaráðherra verður samþykkt á Alþingi? „Það er eitt af því sem mun gerast, það virðist stefnt að því að dreþa litlu stéttarfélögin. Ég hef heyrt því fleygt að þegar verið var að semja frumvarþið höfum við hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur verið notaðir sem dæmi um hvað lítið verkalýðs- félag getur haft mikil áhrif, getur stoþpað sjóflutningana. Frumvarpið er samið fyrir VSÍ. Það leikur enginn vafi á því í mínum huga. Þessir menn sem vilja hafa frelsið í hávegum ættu að líta sér nær. Þar á ég meðal ann- ars við Davíð Oddsson. Þeir segjast vilja færa valdið til hins almenna félagsmanns í stéttar- félögunum. Davíð Oddsson var kosinn formaður Sjálfstæð- isflokksins með rúmum 600 atkvæðum en ég veit ekki betur en félagar í Sjálfstæðis- flokknum séu yfir 14 þúsund. Hann ætti að byrja á sjálfum sér áður en hann fer að hafa áhyggjur af lýðræði í öðrum félögum. Tilgangurinn var sá að miðstýra öllum samningum inn í ASÍ. Þetta frumvarp er út í hött.“ Þú talar ekki vel um ASl. „Ég vil að Sjómannasam- bandið og Verkamannasam- bandið gangi út úr ASÍ, við höfum ekkert að gera með að vera innan félagsins. Ég get ekki séð að unnið sé fyrir laun- þega. Umræðan innan ASÍ er mest um hvernig eigi að stjórna landinu, en það kemur þeim ekkert við. Það eina sem þeir eiga að gera er að tryggja að fólk fái sem mest borgað fyrir sína vinnu. Fiskimenn eiga til að mynda enga samleið með ASÍ. Ég veit ekki hvort það er rétt sem ég hef heyrt, að í stað þess að aðildarfélög ASÍ greiði fast gjald af hverjum félags- manni sé vilji til að félögin greiði af innkomu. Það yrði til þess að Sjómannafélag Reykjavíkur þyrfti að greiða mun meira en við gerum í dag. ASÍ er orðið mikil stofnun. Við höfum beðið þá að styðja okkur en það kemur aldrei neitt frá þeim. Ég vil að nú þegar verði settar fram kröfur um 100 pró- sent launahækkun og ef ekki takast samningar verði verkfall boðað um næstu áramót. Það hafa þá allir háift ár til að ganga frá samningum. Það er siður að samningar dragist í marga mánuði, hvað ætli at- heima vinnurekendur hafi grætt á þessu? Það er annað sem ég hef heyrt, en það er að útgerðir ætli sér að hafa frystiskipin á sjó á sjómannadaginn. Það verður að kæfa þetta í fæð- ingu. Til að geta gert það verð- ur að fara fram leynileg at- kvæðagreiðsla þar sem allir í áhöfninni verða að samþykkja. Eins er möguleiki að menn sigli undir fölsku flaggi, segist ætla að landa í erlendri höfn. Sjó- mannadagurinn er heilagur og það ber að halda hann hátíð- legan. Þetta sýnir bara hvernig atvinnurekendur reyna að valta yfir okkur á öllum sviðum. Atvinnuleysið er óskastaða atvinnurekenda og ríkisstjórn- arinnar. Eftir því sem atvinnu- leysið varir lengur verður meira og meira afgerandi hvað fram- koma atvinnurekenda versnar. Við verðum ekki mikið varir við þetta í Reykjavík, þar sem hér eru góð fyrirtæki, en við heyr- um daglega frá mönnum úti á landi, sérstaklega er þetta áberandi með Vestfirðinga. Það eru dæmi um að menn fái ekki laun í veikindum og fleira og fleira. Eina sögu heyrði ég af manni sem handleggsbrotn- aði úti á sjó og þegar hann kom með vottorðið til útgerð- arinnar var hann spurður hvort hann væri að hætta! Þetta er hótun og þessi saga er Ijót ef hún er sönn.“ Birgir segir dæmi um sam- stöðuleysi verkalýðsfélaga vera mörg. Hann tók sem dæmi rækjustríðið í Stykkis- hólmi þar sem áhafnir þriggja báta stóðu í baráttu við út- gerðina. Birgir segir að þar hafi ASÍ átt að beita sér og hóta að engin rækja yrði unnin hjá Sigurði Ágústssyni ef þvinga ætti sjómenn til að róa á öðru verði en úrskurðarnefndin ákvarðaði. ■ 10 SjÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.