Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Blaðsíða 14
Sveinn Sæmundsson stýrimaður hefur ekki haft fasta vinnu síðan 1991 Ovissa „Ég er að fara að vinna hjá Sjómælingum, en það verður bara í sumar,“ sagði Sveinn Sæmundsson stýrimaður, en hann hefur ekki haft fasta atvinnu síðan hann var hjá Ríkisskip 1991. „Ég skil ekki hvernig mér hefur tekist að lifa þetta af. Það er slæmt að horfa til þess að ekkert sé að gert. Það hefur verið tekið á þessu á hinum Norðurlöndunum og því er sárt að horfa upp á aðgerðarleysið hér á landi. Ég er hættur að búast við að ástandið batni. Ég hef hugsað mikið til þess að fara út og leita mér að vinnu, en af því hefur ekki orðið. Það er auk þess meira en að segja það. Ég er fjöl- skyldumaður og það þarf átak til að flytja á milli landa. Þótt ég fái vinnu hjá Sjómælingum í sumar tekur óvissan aftur við í haust.“ ■ Margir farmenn eru atvinnulausir. Það er ekki vegna þess að flutn- ingurtil landsins hefur minnkað, heldur meðal annars vegna þess að færri íslendingar starfa við þessa grein en áður var. Löggan má líta sér nær „Þar fauk fyrirmyndin!" „Ölvun stúlknanna hefur ver- ið áberandi og þær hafa jafn- vel hagað sér eins og grófustu sjóarar hér áður fyrr.“ Karl Her- mannsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Reykjanesbæ, lætur hafa þetta eftir sér í blað- inu Víkurfréttum. Karl var að myndast við að lýsa því að unglingsstúlkur, 14 til 15 ára, hefðu vakið athygli lögreglu fyrir athæfi sitt, en í heimabæ Karls hafa stúlkur á þessum aldri verið áberandi sökum ölvunar. Það vekur athygli mína að Karl finnur ekki betri samlík- ingu, til að lýsa slæmri fram- komu, en bera hegðun ungra stúlkna saman við sjómenn, - hér áður fyrr bætir hann við. Það má benda Karli á dæmi um forkastanlega hegðun með víni, dæmi úr nútímanum. Það var í vetur sem starfsfélagar Karls komust í fréttir sökum þess hvernig þeir urðu sér og stétt sinni til skammar þegar þeir þóttust ætla að skemmta sér. Ég er þess fullviss að þjóðin man eftir uppákomunni á Nesjavöllum þegar ölvaðar löggur réðust á skáta og ekki bara börðu þá, heldur bitu þá líka. Það er leiðigjarnt að heyra í sífellu að sjómenn séu verri en aðrir hvað varðar umgengni um vín. Það vita allir að Bakk- us fer ekki í manngreinarálit. Ég hef unnið bæði til sjós og lands og ég verð að segja að fólki, sem fer það illa að drekka vín, hef ég kynnst víða. Það er fjarri því að sjómenn séu eða hafi verið öðruvísi fólk en til að mynda þeir sem stunda sama starf og Karl Her- mannsson. Kannski má skilja orð að- stoðaryfirlögregluþjónsins svo að stúlkur séu ekki eins erfiðar með víni og stéttarfélagar Karls. Hann hefði þá átt að taka það fram, fyrst hann á annað borð vill draga eina stétt manna inn í þessa umræðu, - umræðu um unglingavanda- mál heima fyrir. Nei, Karl Hermannsson, líttu þér nær. Þú tilheyrir þeirri stétt manna sem síðast vakti á sér athygli fyrir fáránlega og óaf- sakanlega framkomu undir áhrifum áfengis. Að lokum vil ég vitna í orð sem félagi minn, sem á og rek- ur sjoppu, sagði mér eftir upp- ákomu lögreglunnar á Nesja- völlum. í sjoppunni var hópur unglinga að ræða slagsmál löggunnar og skátanna. Einn unglingurinn sagði eftirfarandi: „Þar fauk fyrirmyndin." Sigurjón Magnús Egilsson 14 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.