Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Page 12
= HÉÐINN =
SMIÐJA
STÓRÁSI 6 « GARDABÆ • SÍMI 565 2921 » FAX 565 2927
Hönnun • smíöi • viðgerðir • þjónusta
II IIII
MIPIP
HRAÐASTÝRINGAR
0,37-315 kW
DÆLUR
• JOHAN
RÖNNING HF
SUNDABORG 15
104 REYKJAVÍK
SÍAAI: 548 4000
FAX: 548 8221
Erfitt að fá
sjómenn
til þátttöku
Sigurður Ólafsson, formaður
Sjómannafélags ísafjarðar, segir
að á síðustu árum hafi helst skort
á þátttöku sjómanna í hátíðahöld-
um sjómannadagsins. Hann seg-
ist hafa kynnt sér hvernig staðið
sé að framkvæmd hátíðahald-
anna á Akureyri og vilji sinn sé að
taka þá til fyrirmyndar.
„Það er Ijóst að Guðbjörgin
verður ekki heima á sjómanna-
daginn þar sem hún er á Flæmska
hattirium og áhöfnin á Júlíusi
Geirmundssyni verður á Kanarí.
Það þýðir ekkert fyrir menn að
berjast gegn því að vera á veiðum
á sjómannadaginn. Ef menn rífa
kjaft þá halda þeir ekki plássinu.
Ef útgerðin ætlar ekki að koma
heim þá kemur skipið ekki heim.
Þetta er því miður orðið þannig.
Þær kærur sem hafa borist vegna
kvótabrasksins eru allar frá
mönnum sem hafa hætt á við-
komandi skipum," sagði Sigurður.
Hann sagði það skýrast fljót-
lega hvernig sjómannadagurinn
verður. „Það sem hæst hefur bor-
ið á síðustu árum er siglingar með
börnin út á Djúpið. í kappróðrin-
um hafa verið tvær til þrjár sveitir
sjómanna, aðrar sveitir eru skip-
aðar landfólki. Það eru allt aðrir
tímar. Þegar það voru hefð-
bundnar þrjár vertíðir á ári voru
sjómenn virkari. Sjómannadagur-
inn er meiri hátíð á hinum stöð-
unum í þessu sameinaða sveitar-
félagi.
Auðvitað er aumt að halda ekk
almennilega upp-á sjómannadað'
inn hér á ísafirði. [ lögum um sjó-
mannadag eru ákvæði um að
skip skuli vera í landi og eins
ákvæði um undanþágu frá því.“
O
o
Atriði sem shipítt tnihtu
í mutvælaiðnaðL
KVÆRNER
Metnaöur Kværner Eureka á íslandi
felst í aö tryggja öryggi í við-
haldi og eftirliti á öllum
tegundum kælikerfa.
Starfsfólk sölu- og
þjónustudeildar Kværner
Eureka á íslandi er tilbúið til
þjónustu hvar og hvenær sem er.
Kværner Fisktækni
Stangartiyl 6 • 110 Reykjavík • Sími 587 1300