Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Side 33
Gissur Ó. Erlingsson, sem var ritstjóri
Sjómannablaðsins Víkings árið 1945, sendi blaðinu eftirfarandi grein
Sjómælingar
á Húnafióa é
sumariðl930
Þegar konan mín var í haust er leið að taka
til í skúffum sýndi hún mér tær myndir sem
komu upp úr umslagi með gömlu dóti. Var
önnur af línuveiðara eins og þeim sem voru
algeng sjón á öðrum og þriðja tug þessarar
aldar, hin af sex mönnum í árabát, tveimur
undir árum, einum standandi í stefni, einum
sitjandi í skut með hönd á stýrisár og loks
tveimur sitjandi í afturrúmi. Ekki hafði ég
lengi rýnt í þessar myndir áður en upp fýrir
mér rifjaðist að skip þetta og bátur höfðu
verið starfsvettvangur minn lungann úr
sumrinu 1930. Reyndar hefði þriðja myndin
átt að fýlgja þessum tveimur, af skipshöfn-
inni þar sem hún hafði raðað sér á brúar-
handriðið framan við stýrishúsið, en þrátt
fýrir mikla leit hefur hún enn ekki fúndist og
er því miður sennilega geymd til frambúðar í
glatkistunni gaflalausu. Þessi línuveiðari,
Haförninn VE 290, hafði af vitamálaskrif-
stofunni verið fenginn til mælinga á Húna-
flóa frá miðjum júní ti| .10. september þetta
ár, og var leigan 4.400 krónur fýrir tímabilið.
Segir í bréfi Th. Krabbe vitamálastjóra til
atvinnu- og samgönguráðuneydsins, dags.
16. júní 1930, að skipið hafi verið tekið á
leigu þar sem það þótti „miklu hentugra í alla
staði, en hinsvegar lítið dýrara heldur en þeir
hreyfilbátar sem til mála gátu komið... enda
var það eindregin ósk þeirra Friðriks Ólafs-
sonar og Kapt. lautn. Madsen , sem
ráðnir höfðu verið til þessa starfs.
Aðdragandi ráðningar minnar á es. Haf-
örninn var sá, að Jón bróðir minn, sem var
nemandi í Vélstjóraskólanum, hafði ráðist
sem annar vélstjóri á skipið, og með hans
fúlltingi fékk ég þar hásetapláss og var skráð-
ur í skiprúm 30. júní, en skipshöfnin að öðru
leyti hálfúm mánuði fýrr. Skipstjóri var ráð-
inn Gunnar Gíslason frá Papey, áður stýri-
maður á varðskipum íslenska ríkisins og síðar
skipherra, stýrimaður var Stefán Ó.
STOFNAÐ
7. okt. 1893
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
íZldan
tíVENFÉLActgþ
STOFNAÐ
11. feb. I9S9
Sendir félagsmönnum síiium og fjölskyldum þeirra
kveðjur á sjómannadaginn og
árnar þeim allra heilla.
Skipstjóra og stýrimannafélagið ALDAN er elsta
stéttafélag landsins.
Sjómannablaðið Víkingur
33