Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Qupperneq 58
Málning
meiri m
I upphafi hóf Slippfélagið að framleiða málningu til
eigin nota, það er til málunar þeirra skipa sem þar voru
til viðgerða og viðhalds. Síðan hefur margt breyst, í dag
er málning seld um allt land, líka erlendis.
Það var á árinu 1951 sem fyrirtækið hóf framleiðslu á
málningu. Fyrst í stað var eingöngu framleidd skipa- oQ
iðnaðarmálning en nú býður fyrirtækið upp á allar gerðit
málningar, einnig húsamálningu og viðgerðarefni.
Með vaxandi fyrirtæki hefur margt breyst. 1968 var
flutt í núverandi húsnæði við Dugguvog. Starfsmenn eru ^
á fimmta tuginn. Eins og fyrr sagði er framleiðslan fjöl-
breytt og vöruflokkarnir skipta hundrðum.
Málningaverksmiðja Slippfélagsins er í samstarfi við
fyrirtæki víða, til dæmis í Dahmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi, Englandi og víðar.
Forráðamenn fyrirtækisins líta björtum auga til
framtíðarinnar. ■
Þorgeir Björnsson sölustjóri og Hilmir Hilmisson framkvæmdastjóri.
Að baki þeirra er hluti merkrar og mikillar sögu fyrirtækisins, en á myndunum
eru allir stjórnarformenn Slippfélagsins frá upphafi.
Fyrsti stjórnarformaðurinn varTryggvi Gunnarsson, þá Jes Zimsen, síðan kom
Thorvald Krabbe, Hjalti Jónsson, það er Eldeyjar—Hjalti, síðan Geir Zoéga,
Kristján Siggeirsson, Tryggvi Ófeigsson, Gunnar Bjarnason og Ásgeir Pálsson
er núverandi stjórnarformaður.
58
Sjómannablaðið Víkingur