Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 30
Ein af þeim ríkisstjórnum sem Matthías sat í. Lengst frá vinstri er Albert Guðmundsson fjármálaráðherra, þá Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra, Jón Helgason dóms-, kirkjumála- og landbúnaðarráðherra, Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra, Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra. í viðtalinu lætur Matthías mjög vel af samstarfinu við Geir og er allt annað en sáttur með þá útreið sem Geir fékk hjá sínum eigin flokki. Við hlið Geirs situr Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra, síðan Matthías Bjarnason sem þarna var samgöngu-, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, þá Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra og loks Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra. Það var annað þegar Geir Hallgrímsson var formaður flokksins, en ég átti mjög gott samstarf við hann. Geir hefur elcki fengið þá umfjöllun sem hann á skilið. Það var til skammar hvernig farið var með Geir, til dæmis í frægu prófkjöri í Reykjavík. Geir er einn heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst, en hann var íhaldssamari en ég og hann sagði einu sinni við mig; ég skil ekkert í því Matthías minn að þú hafir ekki lent hjá kommunum. Ég svaraði honum að ég treysti því að geta haft góð áhrif á suma.“ Lítill munur á flokkunum „Ég kaus Þorstein Pálsson þegar hann var fyrst kjörinn formaður og gerði það líka þeg- ar hann féll. Það var ekki gert vegna andúðar á Davíð Oddssyni, heldur vegna þess að mér finnst ekki rétt að kasta manni sem er í fullu starfi og kemur heiðarlega og vel fram. Hvað það varðar er ég ákaflega íhaldssamur. Auðvitað hefur Sjálfstæðisflokkurinn breyst og að mörgu leyti til góðs. Til dæmis er einkavæðing af hinu góða, en hún má ekki verða trúaratriði. „Þegar stjórnmálasagan er skoðuð, allt aftur til endurreisnar Alþingis, þá eru það alltaf einstaklingarir sem standa upp úr, en ekki hjörð sem hefur verið sópað saman." Á ísafirði vorum við á undan öðrum þegar við stofnuðum hlutafélag um togaraútgerð á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn stofnaði bæjarútgerð í Reykjavík. Þetta var átakamál á ísafirði og við fórnuðum meirihlutasamstarfi til að stofna hlutafélagið. Alþýðuflokkurinn, sem er alveg búinn að gleyma því að hann var höfuðstuðningsaðili bæjarútgerða ætlar sér framúr Sjálfstæðisflokknum í einkavæðingu og sama má jafnvel segja um Alþýðubanda- lagið, það er ekkert bil að verða á milli þess- ara flokka.“ ÓSÁTTUR VIÐ MARGT SEM STJÓRNAR- FLOKKARNIR ERU AÐ GERA Það er að verða komið að lokum þessa við- tals. Matthías og frú eru að undirbúa ferð til Spánar, þar sem þau ætla að vera í tvo mán- uði. I viðtalinu hefur komið fram að Matthí- as saknar þess ekki að vera ekki lengur í eld- línu stjórnmálanna. „Ég er guðs lifandi feginn að vera kominn út úr stjórnmálunum. Það er enn haft sam- band við mig, þó það sé ekki mikið um að þingmenn geri það, en þeir sem gera það eru allt eins þingmenn annarra flokka. Ég hefverið harður Sjálfstæðismaður en ég 30 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.