Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Side 11
sem hér eru nefndar er stefnt að jafn-
launakerfi með svipuðu sniði og byggt var
á í kjarasamningi farmanna.
Hvað varðar fundarhöld milli LÍÚ og
okkar, jrá er óhætt að segja að það hafi
verið heilmikil lífsreynsla að upplifa
þennan feril allan. 40 fundir þar sem
manni finnst hvorki ganga né reka reyna
á þolrifin. í framhaldinu þegar eitthvað
fór að þokast var einnig lærdómsríkt að
verða vitni að þeirri aðferðafræði sem
ríkissáttasemjari beitti til að þoka málum
áfram. Alls telst mér til að
fundirnir hafi verið upp
undir 60 þegar allt er talið.
Sólbaksmálið vakti óskipta
athygli þjóðarinnar og beindi
óneitanlega athöfnum og
kröftum manna frá kjara-
samningum yfir í annarskon-
ar kjarabarátlu þar sem raun-
verulega var tekist á um þær
grundvallarforsendur sem
framtíðarstarfsemi stéttarfé-
laga byggist á. Þessu rnáli er
að rnínu mati alls ekki lokið
enn. Mál Vélstjórafélags Is-
lands gegn Brimi HF verður
tekið fyrir snemma í desember og standa
vonir til þess að þar verði stofnun útgerð-
arfélagsins Sólbaks e.h.f. dæmd sem mála-
myndagjömingur til að komast hjá gild-
andi kjarasamningum.
Fimm fundir sambandssljórnar hafa
verið haldnir á árinu en auk þeirra hafa
forsvarsmenn sambandsins setið fjölmarga
fundi og ráðstefnur fyrir hönd sambands-
ins. Nú nýverið sat ég ásamt Guðjóni Ár-
manni Einarssyni þing fiskimannadeildar
ITF sem haldið var í Kaupmannahöfn
dagana 2.-4. nóv. í ljósi þess sem frarn
kom á þeirn fundi um kjör og aðbúnað
fiskimanna víðsvegar um heiminn þá held
ég að mér sé fullkomlega óhætt að segja
að okkar sjómenn megi þakka Guði fyrir
að vera íslendingar. Ég tel engum vafa
undir orpið að íslenskir sjómenn búa við
kjör sem erfitt er að finna samjöfnuð við
annarstaðar í heiminum.
Ég er viss um að við komum til með
að eiga hér góða samveru og segi for-
mannaráðstefnu FFSÍ setta.
Þór Jakobsson veðurfrœðingur
Formenn funda
á Siglufirði
Formannaráðstefna Fannanna- og fiski-
mannasambands íslands var haldin í Síld-
anninjasafninu á Siglufirði 25. og 26. nóv-
ember 2004. Fundarmönnum varð vel úr
verki og samþykktar voru skeleggar álykt-
anir um málefni sjómanna. Að kvöldi fyrri
fundardags var ráðstefnugestum sýnt hið
merka Síldarminjasafn og bæjarstjóm Siglu-
fjarðar bauð til veglegrar veislu í safninu.
Eins og búast má við i góðum hópi
mörlanda voru á formannaráðstefnunni
hagyrðingar senr héldu við hefð aldanna,
skutu að sessunautum fyrri helmingum
og skoruðu á tnenn að botna vísuna.
Hélst sú skemmtan í langferðabíl fundar-
manna um Skagafjörð til Akureyrar
seinni daginn, enda líka sönggleði ríkj-
andi þegar á leið. Kláruðust ölbirgðir og
annar vökvi. Reyndar rann hann frá
mönnum viðstöðulítið áfram á snævi
þaktar lendur Blönduhlíðar og Öxnadals
er hrópað var öðru hverju á bílstjórann,
hann beðinn að leggja hið snarasta og
leyfa ferðalöngum að bregða sér út og
stilla sér upp í dýrlegu mánaskininu.
Birgir Sigurjónsson frá Norðfirði gerði
mér þann grikk að lauma að mér fyrra vísu-
orði á fundinum og átti ég auðvitað að
botna að bragði. Hélt hann að ég kynni eitt-
hvað íyrir ntér í þeim efnum. Svo er ekki og
allra síst er mér ekki áskapað að hugsa inn-
an um aðra. Með herkjum hef ég nú botn-
að vísuna sem Bragi byrjaði og bæti fjómrn
við til gamans um leið og ég þakka stjóm
FFSÍ fyrir boðið norður og fundarfélögunt
öllum fróðlega og ánægjulega santvem.
Formenn funda á Sigló
Santbandið á Sigló
sátu fundi góða,
stigu tungu tangó,
laktur gerði móða.
Ræddu niargt og ntikið,
málin fram á kvöld.
Hrista brolt skal hikið
höfðingja við völd.
Einarðar ályktanir
orðaðar voru snjallt.
Lítt eru leiðitanrir
láta hlut sinn vart.
Vel var í rausnar veislu
vinafundi fagnað,
notið niatar neyslu
nætur við tunglið magnað.
Heim á leið var haldið
himni und stjörnu björtum.
Kæst var og veigum valdið,
vísur yljuðu hjörtum.
Með góðri kveðju,
Þór Jakobsson
Ábending til
skipstjórnarmanna
Að gefnu tilefni er rétt að vekja at-
hygli á því, að nokkur brögð virðast
vera að því að gjöldunt lagmanna
(skipstjóra / stýrimanna) sé skilað til
verkalýðsfélags á viðkotnandi svæði,
sem í engu tilfelli er aðili að samning-
um aðildarfélaga FFSÍ.
Þetta gerist sennilega oftast ef menn
hafa áður starfað á sama stað sem
undinnenn. Þeir sem þannig er ástatt
um eru hvattir til að kanna hvort
gengið hafi verið frá fullri félagsaðild.
Verum allir vel á verði og eflum okkar
eigið félag, því með því móti einu
tryggjum við afl og samstöðu skip-
stjórnarmanna.
Sjómannablaðið Víkingur - 11