Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Qupperneq 22
Þórunni Green er það hugleikið hver
urðu örlög föður hennar. “U-300 skaut
fjórum skotum að Shirvan, tvö þeirra
hittu, en þá er það spurningin hvað varð
af hinum tveimur,” segir hún og lætur að
því liggja að bátur föður hennar kunni
að hafa orðið fyrir tundurskeyti án þess
að skipverjar á þýska kafbátnum hefðu
orðið þess varir.
Eftir stendur að enginn veit hvað kom
fyrir urn borð í Empire Wold.
Hittust aftur á miðilsfundi
“Ég lenti fyrir lilviljun á ntiðilsfundi hjá
Hafsteini miðli í risíbúð á Laugaveginum
mörgum árum eftir slysið. Ég fór nteð
Mörtu systur minni, Guðrúnu Halldórs-
dótlur ljósmóður og Kristínu systur sem
átti heima i Þýskalandi á stríðsárunum. Ég
þorði varla að fara, en lét mig hafa það.
Ég var forvitin, og við mæðgurnar héldum
alltaf í vonina að þetta væri bara misskiln-
ingur, Harry mundi birtast okkur aftur.
Hafsteinn sat á stól og kona við hliðina á
honum. Ljósin voru dempuð. Fyrst kom
lílil stelpa, síðan Rúnki sem sagði: “Það er
bara fullt af útlendingum í kvöld.” Miðill-
inn strýkur allt í einu á sér skeggið og
sagði Marta þá að þarna væri Frederiksen
gamli, pabbi eiginmanns míns, Gunnars
Frederiksen. Og það var greinilega hann,
það var ekki spuming. “Det er sgu meg!
Kysstu Margréti á kinnina þegar þú sérð
hana,” sagði hann. Margrét var konan
hans og var á Vífilsstöðum. Ekki gat Haf-
steinn miðill neitt vitað um það. Svo fer
Hafsteinn að tala þýsku endalaust, þar
kom maður sem reyndist vera kunningi
systur minnar. Ég man alltaf eitt orð úr
þessu samtali, Donnerwetter, sem þýðir
víst þrumuveður, en er líka þýskt blóts-
yrði,” segir María.
“Svo gerist það að allt í einu er farið
að tala ensku, það var þá pabbi hennar,”
segir María og bendir á Þórunni dóttur
sína. “Ég spurði Harry hvað hefði gerst.
Hann sagði að hlutirnir hefðu gerst svo
hratt að enginn tími hafi verið til að átta
sig á neinu. “Ég féll frarn yfir mig og svo
varð allt svart,” sagði hann. Allt í einu
var allt yfirstaðið um borð í Empire
Wold,” segir María Árnadóttir.
U-300 var sökkt og ungi
skipherrann lést
Um borð í kafbátnum U-300 var Fritz
Hein skipstjóri, hann var 25 ára eins og
hinn ungi Oswin Green. Af hans völdum
létu tugir manna lífið við Reykjanesið
þann 10. nóvember 1944. Kannski 58
manns, því möguleiki er á því að tundur-
skeyti frá kafbátnum hafi í raun grandað
Empire Wold. Fyrst sökkti hann þennan
morgunn 6 þúsund tonna olíuskipinu
Shirvan, - og upp úr hádeginu Goðafossi,
1500 tonna farþega- og vöruflutninga-
skipi sem landsmenn voru stoltir af.
Goðafoss hafði verið forystuskip í lltilli
María og Harty ásamt svarafólki sinu. María saumaði sjálf brúðarkjólinn sinn.
þá sem féllu í stríðinu, en hún er á
Tower Hill í London. Hafa þær mæðgur
oftar en einu sinni heimsótt staðinn.
Harry Green var fæddur í London 5.
janúar 1919, en hafði ungum verið kom-
ið í fóstur í Gravesend í Kent. Þegar fjöl-
skyldan flutti síðar til London strauk
hann úr vistinni og hafðist fyrst við hjá
vinum og kunningjum í Gravesend.
Barnungur fór hann í siglingar víða um
veröld, líklega 14 ára, en sagðist vera
sextán. Vinir hans frá Gravesend hafa
haft samband við Maríu og Þórunni El-
ísabetu dóttur þeirra Maríu og Harrys og
tveir félagar hans hafa heimsótt ísland.
Hvað grandaði
stóra dráttarbátnum?
María segir að hún hafi ævinlega haft á-
huga á að vita meira um afdrif eiginmanns
síns og félaga hans á Empire Wold. Alls-
konar skýringar hafi komið fram. Ein
þeirra var skiljanlega að þýski kafbáturinn
U-300 hefði grandað bátnum, þriðja skip-
inu þann daginn. Samkvæmt dagbókum
skipsins er ekki svo að sjá. Aðrir hafa talað
um slæmt veður þennan dag, að báturinn
hafi hreinlega farist í veðurhamnum. Það
þykir mörgum ótrúlegt, þetta skip var
sterkt og þoldi mikið álag og sigldi um út-
höfin. Veður var þar að auki ekki svo
slæmt, hann var austanstæður, fimm vind-
stig, þungbúið og skyggni fremur slæmt.
Þetta kemur fram í dagbók þýska kafbáts-
stjórans. Auk þess hefði brak átt að finn-
ast, en aldrei fannst neitt úr Empire Wold.
Þá hefur verið bent á að hugsanlega
hefði skipið siglt á tundurdufl, en þeim
hafði verið lagt í einskonar girðingu við
siglingaleiðina inn Flóann til Reykjavík-
ur. Þá hafa heyrst kenningar um að eitt
tundurskeyta U-300 hafi fyrir slysni lent
á dráttarbátnum og sökkt honum án þess
að kafbátsmenn yrðu þess varir.
22 - Sjómannablaðið Víkingur