Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Síða 37
rifjaði upp margar minninga frá liðnum
árum í siglingasögu þjóðarinnar.
Þeir sem eru að sigla um heimsins höf
hvort heldur er vegna atvinnu eða
skemmtunar geta fundið nytsamlegar
upplýsingar unt hafnir heimsins á síð-
unni www.portfocus.com og þaðan eru
síðan tenglar á heimasiður viðkomandi
hafna. Mjög gaman að ferðast þar um og
skoða framandi hafnir.
Ef við viljum bara fara siglandi til
þessa hafna sem farþegar þá eru nokkur
skip sem hægt er að fara með (þó tak-
markað hvaða hafna) sem við getum
fundið á slóðinni www.faergejournalen.
dk en þetta er síða sem er með upplýs-
ingum og myndum af dönskum ferjum
og reyndar líka skipum Austur Asiufé-
lagsins eða 0K eins og það er kallað.
En nú er komið að lokum að þessu
sinni og verður lokasíðan ein af þessum
þar sem hægt er að fara í leiki. Þessi slóð
er www.onthewater.nl sem er skemmtileg
skipasíða með myndum. Reyndar ætlaði
ég að benda ykkur á að fara á krækjuna
Other og þá opnast síða sem bíður upp á
að hlaða niður leikjum sem hægt er að
fara í á jólunum. Þar er meðal annars
hægt að taka niður leik frá Stena skipafé-
laginu sem er að lesta ferju og sigla
henni milli hafna við mismunandi skil-
yrði. Einfaldari gerast leikirnir ekki. Ef
þið viljið aftur á rnóti fara í flóknari leiki
er tengla á þá einnig að finna á þessari
siðu og bendi ég á leikinn Ports of Call
sem ég hef reyndar áður skrifað urn hér á
þessum síðum.
Nú ætti efni jólanna að vera komið í
höfn en jafnframt beini ég því til ykkar
lesendur góðir að senda okkur upplýs-
ingar urn góðar síður ef þið dettið niður
á slíkar en aðeins 59 milljón síðna er
talið að hægt sé að finna á Netinu. Góðar
heimasíðuábendingar sendist á ice-
ship@hn.is.
íslensk hrefna
í hitabdtinu
Eins og kunnugt er hófust viðamikl-
ar rannsóknir á hrefnu við ísland á
síðasta ári. Einn liluti rannsóknanna
felst í tilraunum til að fylgjast með
ferðum hrefna með aðstoð gervi-
hnattakerfisins ARGOS. Alls voru sett
merki á 7 hrefnur í Faxaflóa á límabil-
inu 27. ágúst til 23. september.
Nothæfar sendingar bárust frá þrent
dýranna fram til 8. október og tókst að
fylgjast nteð ferðum einnar hrefnunnar
suðvestur eftir Reykjaneshrygg, allt suð-
ur fyrir 50°N. Þann 17. nóvember bárust
merki um gervitungl frá hrefnu sem
merkt hafði verið í Faxaflóa 27. ágúst og
voru það fyrstu upplýsingarnar sem bár-
ust frá því dýri. Hrefnan var þá stödd yfir
Mið-Atlantshafshryggnum djúpt (um
500sm) vestur af N-Spáni. Merkið er
einungis virkt á sex daga fresti, til að
auka endingartíma rafhlöðunnar. Þann
23. nóvember bárust aftur sendingar
frá hrefnunni sem þá hafði farið tun
700km sunnar og hélt sig á hafsvæðinu
við Azoreyjar. Þann 5. desember bárust
enn sendingar frá dýrinu og var það þá
statt í Kanarístraumnum, um 1000 km
norðvestan við Grænhöfðaeyjar. Hrefn-
an var þá um 3700 km frá merkingar-
staðnum í Faxaflóa.
Þessar sendingar eru talsvert sunnar
og austar en áður hafa borist frá merkt-
um hrefnum. Hafa ber þó í huga að
ekki hefur áður tekist að fylgjast með
ferðunt hrefna svo langt fram á vetur-
inn og ekkert lát var á suðurferð hinna
tveggja hrefnanna þegar síðast bárust
sendingar frá þeiin (8. nóvember 2002
og 8. október 2004). Ekki er ljóst
hvaða leið hrefnan fór á Azoreyjasvæð-
ið, en ekki er úiilokað að hún hafi fylgt
sörnu upphafsstefnu og hinar tvær, þ.e.
SV eftir Reykjaneshrygg en síðan sveigt
til austurs eftir Mið-Atlantshafshryggn-
um til Azoreyjasvæðisins.
Þótl þessar rannsóknir hafi þegar
skilað mikilsverðum upplýsingum um
far hrefnu að hausllagi og vonir standi
til að frekari upplýsingar fáist frá þessu
dýri, er þörf á frekari rannsóknum til
að varpa ljósi á hegðun tegundarinnar
og aðsetur hennar að vetrarlagi.
Fréttfrá Ilafrannsólmastofnuninn
Viðskiptahúsið
FASTEIGNIR • FVRIRTÆKI • SKIP • VEIÐIHEIMILDIR
AUSTURSTRÆT117,4H • 101 REYKJAVÍK • SÍMI: 566 8800 • FAX: 566 8802 • WWW.VIDSKIPTAHUSID.IS
Sjómannablaðið Víkingur - 37