Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Blaðsíða 45
Fjöldi aukahlutaJt NT 602
J|t= HÉÐINN =
Stórás 6*210 Garðabæ
Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101
www.hedinn.is • hedinn@hedinn.is
hættu á slysum/óhöppum og þá sértak-
lega þegar þeir eru við vinnu á seinni
vinnuvaktinni, þar sem þreytan er farin
að gera verulega vart við sig þ.e. á tíma-
bilinu frá 12 til 18.
Mældur var svefn sjómanna á sex
klukkustunda vaktavinnukerfi yfir tveggja
vikna tímabil. Komið er í land í þrjá daga
og skipt af næturvakt yfir á dagvakt á milli
ferða með venjulegum svefntíma í hvíldar-
dögum. Ljóst af þessum niðurstöðum að
eftir því sem líða tekur á vaktavinnutím-
ann verður svefninn verri, syfja og þreyta
hleðst hægt og rólega upp með þeim af-
leiðingum að sjá má verulega andleg sem
og líkamleg álagseinkenni.
Mælingarnar á tímabilinu frá 00.00-
06.00 gefa sterklega til kynna fjölda
“svefngloppa”. Með svefngloppu er átt
við ástand sem kemur upp ef um mikinn
svefnskort er að ræða, þá falla menn í
svefn sem er styttri en svo að þeir skynji
að þeir hafi sofnað. Það gefur augaleið að
líkur á alvarlegum slysum og óhöppum
snarhækka þegar einstaklingur á vakt
þjáist af svefngloppum. Tímabilin sem
þetta kom oftast frarn voru ; Of.39,
02.03, 02.31 og 03.01. Einnig varð þessa
vart á tímabilinu frá 14.00-15.00. Þessar
upplýsingar eru áhugaverðar með tilliti
til slysahættu.
Hjá sjómönnum í sex tíma vaktavinnu-
kerfi kom fram að einstaklingar yfir fer-
tugt eiga við mun meiri svefnvandamál
að stríða með tilheyrandi einkennum líkt
og hjá öðrum stéttum vaktavinnufólks.
Mælt var úrtak stýrimanna, sem ganga
vakt á móti skipstjóranum, þ.e. vinna á
nóttunni frá 24.00 - 12.00. Skoðaðar
voru svefntruflanir og þróun álagsein-
kenna. Tekið er fram að um rnjög fáa
einstaklinga er að ræða eða 5 og ber því
að taka niðurstöðum með fyrirvara. Þær
gefa hins vegar sterkar vísbendingar um,
að verulegar svefntruflanir eru hjá þeiin
með tilheyrandi einkennum, viðvarandi
þreytu, þrekleysi, svefnrofa, kvíðaröskun,
depurð o.s.frv. Mælingarnar sýndu að all-
ir sváfu þeir lengur á rneðan þeir voru í
landi, þ.e. svefninn ruddi sér inn í vöku-
mynstur þeirra. Á mælingunum mátti sjá
stöðugt svefnáreiti, þ.e. hugsanlegar
svefngloppur í kringum ; 02.26, 02.51,
03.04 og 04.39. Hér má því sjá að hættu-
ástand getur auðveldlega skapast.
Mælanlegur munur er á milli einstakra
togara hvað varðar andlegt álag er tengist
hvlld. Það skiptist þannig að 59% vakna
ekki úthvíldir um borð í skipurn sem eru
lengur úti á móti 47% þeirra sem eru
styttra úti í einu. Þessi munur kemur
einnig frarn í syfju og þreytu að degi lil og
í ljós kom að álagið er áberandi mest um
borð í frystitogurunum. Ekki er þó hægt
að fullyrða að úthaldið eitt og sér eigi alla
sök, skoða þarf fleiri þætti í umhverfinu,
s.s. skipting á vaktafyrirkomulagi á milli
veiðiferða, skipting á milli veiðifæra, sam-
skipti urn borð, upplýsingaflæði osfrv.
Lokaorð
í lok skýrslunnar er gerð grein fyrir
heilsufarsmælingum á 74 sjómönnum.
Gerðar voru mælingar á blóðþrýstingi,
kólesteróli, blóðsykri, líkamsfitu og þoli.
í stuttu rnáli voru niðurstöður ekki
nógu góðar, sjómenn voru í rniklum
rneiri hluta of þungir og voru t.d. 56%
með of háan blóðþrýsting. Reykingar og
kaffidrykkja er of mikil, blóðsykur og
líkamsfitustuðull of hár. Þessar niður-
stöður eru alls athygli verðar og til að
valda áhyggjum í ljósi þess hve ótryggt
vinnuumhverfi sjómanna er.
Iðnaðarryksugur /
jjj ■ Án eða meö j
/ ■ tengli fyrir /
I f ^/1 vélar ! 4
NT 361
RAFVER HF
Fyrir blautt og þurrt
SKEIFAN 3E-F - 108 REYKJAVIK
SÍMI 581 2333/581 2415
RAFVERttRAFVER.IS - WWW.RAFVER.IS
Smíði nýrra skipa Samskipa
gengur xel
Krónur og evrur
undir kjölinn!
Vinna við smíði nýrra gámaskipa Sam-
skipa, sem leysa af hólmi Arnarfell og
Helgafell, gengur vel hjá þýsku skipa-
smíðastöðinni J.J.Sietas í Hamborg. Er
gert ráð fyrir að nýju skipin verði bæði
kornin í reglubundnar siglingar fyrir
félagið milli íslands og meginlands
Evrópu fyrir febrúarlok á næsta ári.
Kjölur var lagður að nýja Helgafellinu
um miðjan október og að nýja Arnar-
fellinu um miðjan september. Við það
tækifæri var smámynt, bæði íslenskar
krónur og evrur, lögð undir kjöl skip-
anna. Er það gamall og góður siður og
á að tryggja að skipin verði bæði farsæl
og gjöful! Nýja Arnarfellið á að vera
tilbúið til afliendinga í lok janúar nk..
Sjósetning nýja Helgafellsins er fyrir-
huguð um miðjan desember, og verður
það afhent Samskipum i lok febrúar á
næsta ári.
Sjómannablaðið Víkingur - 45