Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Qupperneq 48
Hilmar Snorrason skipstjóri
Utan úr
heimi
Heiðarleiki borgar sig
Hver man ekki eftir áhrifaríkum myndum af kínverska stórflutn-
ingaskipinu Fu Shan Hai sökkva í Kattegati á síðasta ári. Það var
lítið pólskt gámaskip, Gdynia, sem sigldi á hið fyrrnefnda með
þessum hörmulegu afleiðingum. Pólskur vakthafandi stýrimaður
á Gdynia var nýlega dæmdur af dönskum dómstól fyrir atvikið.
Stýrimaðurinn viðurkenndi strax að hann hefði verið valdur að
árekstrinum með því að sinna ekki skyldum sínum sem skip-
stjórnarmaður. Dönsku dómstólarnir mátu heiðarleika stýri-
mannsins og dæmdu hann til að greiða 35.000 IKR sekt en jafn-
framt hafði hann verið rekinn úr starfi frá útgerð skipsins og
hafði ekki fengið starf frá því slysið varð.
Hvað er hentifáni?
Þessari spurningu er óhætt að fara að velta fyrir sér þar sem nýlega
átti að lýsa danska alþjóðafánann DIS sem hentifána. Samkvæmt
upplýsingum frá ITF hefur komið í ljós að skip sem stunda sigling-
ar milli Bretlands og Irlands eru mörg hver með láglaunasjómenn
við störf. Eru skip þessi undir ýmsum fánum en í siglingum fyrir
bresk fyrirtæki. Á einu skipi kom í ljós að vikulaunin fyrir 48 tíma
vinnu var 58 pund eða eitthvað unt 7.000 krónur. Á öðru skipi
sem fengu úkranískir undirmenn 250 krónur á tímann. Enn ein
útgerð sagðist hugsa vel um áhafnir sínar þegar ITF bar upp á þá
að þeir borguðu léleg laun. Sagði útgerðin að þeir borguðu sjó-
mönnum sínum lágmarkslaun i samræmi við ILO eða 30.000
krónur. Svo eru starfstéttir á íslandi að kvarta undan launum.
Háhraðaferjur í hættu
í kjölfar strands háhraðaferjunnar Katia undan Solent á Suður
Englandi hefur breska sjóslysanefndin lagt til að ekki verði
heimilt að hafa einungis einn mann við stjórn á slíkum skipum.
Aðeins einn skipstjórnarmaður var á stjórnpalli þegar f 'rjan
sigldi á land á 38 mílna hraða en sem betur fer urðu engin slys á
farþegum. Hefur breska sjóslysanefndin beint þeim tilmælum til
Alþjóðasiglingastofnunarinnar, IMO, að settar verði reglur sem
skyldi þessi skip að vera ávallt með tvo skipstjórnarmenn á vakt
í einu og að niðurröðun siglingatækja í brú verði stöðluð á öll-
um skipum sem flokkuð eru sem háhraðaferjur.
Ekki gantast með hlutina
Tyrkneskur skipstjóri stórflutningaskips hefur verið vísað úr landi i
Bandaríkjunum eftir að hann hafði sagt “í gríni” við strandgæsluna
að hann væri með sprengju í lestinni. Skipstjórinn Yildirim Baya-
yer Turner var dreginn fyrir dómstóla fyrir grinið og þrátt fyrir að
lögfræðingurinn reyndi að lýsa honum sem velmenntuðum fjöl-
skyldumanni, sem urðu á mistök í kjölfar ítarlegrar skoðunar
strandgæslunnar á skipi hans, dugði það skammt. Eitthvað varð
skipstjórinn pirraður út i strandgæslustrákanna sem varð til þess
að hann kastaði þessu fram en í staðinn var honum kastað í fang-
elsi, skipið kyrrsett í fleiri daga og ítarleg skoðun til viðbótar fram-
kvæmd á skipinu áður en því var leyft að láta úr höfn. Og ekki nóg
með það heldur líka nýjan skipstjóra um borð. Tumer skipstjóra
var haldið í fangelsi frá því 22. júlí sl. þar til honum var vísað úr
landi um miðjan október. Dómurinn sem hann hlaut var fangelsis-
dómur upp á þá daga sem hann hafði setið í fangelsi og brottvísun
úr landi. Bað Tumer bandarísku þjóðina afsökunar á athæfi sínu.
Dómur í Limburg málinu
Nýlega voru fimm menn dæmdir í 10 ára fangelsi í Yemen fyrir
aðild að árás á franska olíuskipið Limburg fyrir tveimur áram
Stœsta gámaskip til þessa CSCL Asia við afhendingu og nafnagift.
síðan. Einn skipverji og fjöldi annarra slösuðust þegar risaolíu-
skipið varð fyrir því að hraðbát hlöðnum sprengiefni var siglt í
síðu skipsins þar sem það lá fyrir utan höfnina í Yemen í bið
eftir lestun. Mennirnir sem að árásinni stóðu voru A1 Queda
meðlimir og er talið að þeir hefðu fengið innanbúðar upplýsing-
ar um skipið þar sem hraðbáturinn sigldi á eina tank risaskips-
ins sem olía var í.
Ný tegund þjálfunar
Ástralska sjóslysanefndin hefur lagt til að allir yfirmenn skipa
sem búin eru síritum eða svokölluðum svörtum kössum verði
að hljóta ítarlega þjálfun í notkun og meðferð þessa búnaðar.
Leggja þeir þetta fram í kjölfar þess þegar farþegaskipið Astor,
sem oft hefur haft viðkomur hér á landi, strandaði undan
Townsville þar í landi. Þegar átti að fara að skoða gögnin í sírit-
anum kom í ljós að þau höfðu verið þurrkuð út. í ljós kont að
yfirmenn skipsins sem eru Úkraínumenn höfðu ekki þekkingu
að sögn til að taka afrit af gögnum síritans. í ljós kom að áhöfn-
in hafði enga þjálfun fengið í notkun síritans né öðrum mikil-
vægum þáttum í starfsemi skipsins.
Ótti fælir menn frá
Sú staðreynd að skipstjórar og aðrir yfirmenn eru í mikilli
hættu á að verða hnepptir í fangelsi verði þeim á mistök í starfi
hefur gert það að verkum að menn eru farnir að sýna minni á-
huga á að taka við hærri stöðum um borð í skipum. Að meðal-
tali eru 30 til 40 yfirmenn skipa í haldi um allan heirn á hverj-
um degi. Hafa menn haldi því fram að verið sé að beita þessa
menn glæpsamlegri meðferð og virðist sem að varðhald sé að
færast enn í vöxt. Þessi stefna hefur verið við lýði allt frá því að
olíuskipið Exon Valdes strandaði í Alaska fyrir 15 árum síðan.
Það hefur einnig færst í vöxt að strandríki hafi i engu alþjóða-
lög þegar kemur að málaferlum í sjóslysum og breyta þá lands-
lögum þar um. Nú er svo komið að hafnsögu- og björgunar-
menn eru að komast á sama stall og skipstjórnarmenn í þessum
efnum. Ein lengsta kyrrsetning sem um getur er kyrrsetning
gríska skipstjórans á Prestige sem fórst undan strönd Spánar
fyrir rúmum tveimur árum síðan. Honum er haldið í Barcelona
þar sem hann þarf að rnæta hjá lögreglu einu sinni í viku. í síð-
asta mánuði bannaði spænskur dómstóll honum að snúa heirn
til Grikklands.
Alltaf stærri skip
Stöðugt stækka gámaskipin og nýjasta skip Seaspan útgerðar-
48 - Sjómannablaðið Víkingur