Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Page 58
Landvélar ehf í Kópavogi eru með allt sem viðkemur vökva- og loftkerfum
Vörunýjungar og vöruþróun
Fyrirtækið Landvélar ehf í Kópavogi er
löngu landsþekkt fyrir sölu og þjónustu
á drifbúnað af ýmsu tagi og þykir í
fremstu röð á sínu sviði. Fyrirtækið var
stofnað árið 1967 og hefur vaxið og
dafnað síðan. Þar starfa nú 35-40 manns
og hjá Landvélum leggja menn menn
kapp á að bjóða jafnan það besta á mark-
aðinum auk þess sem umfangsmikil vör-
urþróun fer fram innan fyrirtækisins. Við
ræddum við Ásþór Guðmundsson hjá
Landvélum um starfsemina og hér á eftir
fara ýmsar upplýsingar sem fram komu í
spjallinu við Ásþór.
Síðastliðna mánuði hefur verið unnið
að þvi að byggja upp vatnsdæludeild hér
í fyrirtækinu. Markmið okkar varðandi
væntanlega dæludeild er að hún spanni
sem stærst og breiðast svið dælu- og
dælubúnaðar, hvort sem uin er að ræða
dælur til almennrar notkunar, landbún-
aðar, iðnaðar eða til sjós og lands.
Ákveðnir starfsmenn fyrirtækisins hafa
lagst yfir þetta verkefni af alúð og kost-
gæfni með jrað eitt að markmiði að finna
gæðabúnað á sem bestum verðum, við-
skiptamönnum fyrirtækisins til mestra
hagsbóta.
Hefur verið kallað heim óhemju magn
af gögnum frá hinum ýmsu dælufram-
leiðendum, og farið vandlega yfir þetta
og reynt eftir bestu getu að velja þann
framleiðanda sem best hefur fallið að
kröfum okkar varðandi gæði, þjónustu-
stig og verð vörunnar.
Hér er fyrst og fremst um að ræða
smærri dælur frá Flotec á Ítalíu, sem hef-
ur sérhæft sig í handhægum og srnærri
gerðum af dælum til almennar nota.
Má þar helst til nefna:
• Brunn og þróardælur
• 4” borholudælur
• Sjálfvirk dælusett með þrýstikút
• Mótordrifnar (2hp) dælur (bensín)
• Stakar lágþrýstar og háþrýstar dæl-
Asþór Guðmundsson hjá Landvclum.
ur með sjálfvirkum ræsi og topp
búnaði
• Sjálfsjúgandi (self-priming) dælur
• Ýmis dælu stjórnbúnaður
Afrakstur undanfarinnar vinnu við upp-
lýsinga og gangnaöflun varðandi vatns-
dælur og hliðtengdan búnað er nú þegar
orðinn vel merkjanlegur í aukinni vöru-
flóru fyrirtækisins.
Má þar helst nefna dælur frá Flotec á
Ítalíu sem sérhæft hefur framleiðslu sína
að smærri notendum, samanber sumar-
húshúsaeigendum, bændum og öðrum
sem þurfa eða eru sjálfaaflandi um vatn.
Jafnframt þessu hefur fyrirtækið horft
til þess að geta boðið stærri fyrirtækjum,
stofnunum sem sveitarfélögum vatnsdæl-
ur, hvort sem er til dælinga á heitu og
köldu vatni sem þunn og þykk efna dæl-
inga.
Þar tná helst til nefna fyrirtæki sem
SAER sem stofnað var 1951 og Landvélar
hafa gerst umboðsaðillar fyrir hér á
landi. í einum öflugasta vörulista sinnar
tegundar sem kemur frá SAER má finna
yfir 500 gerðir af dælurn og mótorum.
Framleiðslusvið SAER nær yfir flest
svið dæling og breytilegra þarfa, þar á
meðal miðflóttaaflsdælur beint af lager
alt að 115 Kw og borholudælur alt að
12” með 300 Kw. mótorum.
Einna mestri og víðastri dreifingu hafa
þeir hjá SAER náð með borholudælur
sínar sem hafa þótt einstaklega vel smíð-
aðar og vönduð verkfæri á verðum sem
flestir framleiðendur slíkra dæla hafa átt
erfitt með að keppa við.
í dag er merki SAER vel þekkt í yfir 90
löndum, og hefur vegur þess og vel-
gengni vaxið alla tíð frá stofnun fyrirtæk-
isins.
Háþrýstiþvottavélar
Að vísu hafa Landvélar um margra ára
skeið selt dælur og veitt þjónustu til fisk-
, sjávarútvegsfyrirtækja og bænda, helst
hefur verið hér um að ræða snigildælur
frá hinum ýmsu framleiðendum saman-
ber Nova Rotors, Netzsch, Mono og Bell-
in. Nú er stefnt að því að víkka þetta
sölu og þjónustu svið fyrirtækisins veru-
lega samhliða uppbyggingu vatns- dælu-
deildar fyrirtækisins, því þótt hér sé
kannski um ólíkar dæluaðferðir að ræða
annars vegar þar sem vatni er dælt og
hinsvegar ýmsurn þykkni efnum saman-
ber fiskúrgangi og því líkum efnum. Alt
snýr þetta að því að flytja efni frá einum
stað til annars í lokuðum rásum og lögn-
um, og er það einmitt það svið sem
Landvélar hafa lagt að hluta nýsköpun
og vöruþróun sína í.
Jafnframt uppbyggingu almennrar
dæludeildar hjá fyrirtækinu hefur sam-
hliða þróast og aukist verulega úrval og
þekking á háþrýstum vatnsdælubúnaði
lil spúlunar og almennra hreingerninga,
hér er helst lil að nefna að fyrirtækið hef-
ur hafið innflutning á hágæða háþrýsti-
þvottavélum frá Inter Pump, ásamt því
að hafa aukið verulega lager úrval sitt af
allslags tilheyrandi búnaði, sem vatns-
byssur og framlengingum, stökum dýs-
um, slöngukefli, slöngur og öll tengi-
stykki þar að lútandi.
Einnig hefur fyrirtækið þróað og hafið
framleiðslu glussadrifinna sjóþolinna há-
þrýstiþvottavéla, sem er einstaklega
hentug um borð i fiskiskip og i fisk-
vinnslustöðvar.
Allir hlutar dælunnar sem eru í snert-
ingu við dæluvökvann eru úr sjóþolnum
efnum. Háþrýstidælan er knúin af glussa-
mótor 25 - 30 l./mín. við vinnuþrýsting
150 bar. Afköst sjó / vatnsdælu 15 l./mín.
við 200 bar.
Hér er aðeins fátt eitt nefnt af nýjung-
um og vöruþróun sem átt hefur sér stað
innan fyrirtækisins uppá síðkastið. Vöru-
þróun og viðbætur í vörusafn Landvéla
er næstum daglegur þáttur í starfsemi
þess og hefur svo verið frá stofnun þess,
bæði vegna framsækni stjórnenda og
ekki síður starfsmanna fyrirtækisins sem
margir hverjir búa yfir einstakri þverfag-
legri þekkingu á öllum sviðum er víkja
að starfsemi fyrirtækisins.
58 - Sjómannablaðið Víkingur