Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 10
120
NÁTTÚRUFR.
587 kvarnir, auk margra, sem voru með öllu eyðilagðar.
Það var hægt að ákveða það með fullri vissu, úr hvaða fiski-
tegundum kvarnirnar voru, nokkrar þeirra eru sýndar á
6. mynd.
4. í görnunum var talsvert af mauki, sem ómögulegt var að
ákveða nánar. Svo mikið er víst, að þessi eina langnefja
hefir etið að minnsta kosti 450 seiði, og þar af hafa líklega
150 (40 í kokinu -f 110 í vél. og kirtilm.) verið tekin í
einni máltíð, skömmu áður en hún var skotin. Rannsóknir
á ýmsum svartfuglum við vestanvert Island hafa leitt það
sama í ljós. Aðal-fæðan er þar á vorin og sumrin seiði
nytjafiskanna, þótt einnig geti borið nokkuð á annari fæðu.
Mest ber á seiðum þorskfiskanna, einkum þorsksins, í maga
svartfuglanna.
Samkvæmt rannsóknum, sem W. E. Kollinge hefir gert,
mun það láta nærri, að álkan melti fullkomlega nýjan fisk á
3 eða 314 stundu. Margt bendir á, að meltingin sé enn þá fljótari,
og munu kvarnirnar, sem ekki eru stærri en einn millimeter,
einnig fljótt leysast upp.
Á þeim tíma ársins, þegar svartfuglaskararnir byggja fugla-
björgin, er svo að segja jafnbjart nótt sem dag, svo fuglarnir
borða allan sólarhringinn. Eftir dæminu, sem nefnt var, kem-
ur það í Ijós, að einn fugl getur hæglega borðað 150 fiskaseiði
í einni máltíð, og þar sem meltingin gengur svo fljótt fyrir sig,
er ekkert því til fyrirstöðu, að slík máltíð endurtakist að
minnsta kosti 5 sinnum á sólarhring, og etur þá hver fugl ca.
750 seiði á sólarhring. Eftir rannsóknum mínum að dæma, er
þetta þannig í júlí, þegar hvert þorskseiði vegur að jafnaði
250—400 milligrömm, en í miðjan júní, þegar seiðin vega í
mesta lagi einn 10 hluta af þessum þunga, þarf vitanlega miklu
fleiri til þess að seðja svartfuglinn. Um miðjan júní fara ung-
arnir að koma úr eggjunum, og því er matarþörfin mikil, ein-
mitt um það leyti. Ef gert er ráð fyrir, að í Látrarbjargi einu
séu 50.000 svartfuglar, sem ugglaust er mörgum sinnum of lít-
ið, og hver fugl eti 500 þorsk- og ýsuseiði á dag, þurfa fuglarn-
ir í Látrarbjargi 750 milljónir seiða sér til viðurværis á einum
mánuði. Ef öll þessi seiði hefðu lifað og náð að þroskast til
fimm ára aldurs mun það láta nærri að þau hefðu þá vegið
1500 milljónir kílóa, eða um 6 sinnum meira en allur þorsk-