Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 31

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 31
náttúruffL 141 Hausavíxí á brttnnkíukkum. Maður er nefndur Przibram (nafninu verður að siga, púa og skirpa út úr sér til að ná þeim rétta framburði). Hann er for- stöðumaður líffræðitilraunastofnunarinnar í Vínarborg og víð- kunnur fyrir hugvitsamar tilraunir og óperationir á dýrum, eink- um lægiú dýrum. Lærisveinar hans feta í fótspor hans og hafa birt ýmsar eftirtektarverðar nýjungar í líffræði. Einn þeirra er Walter Finkler. — honum hefir heppnazt að hafa hausaskifti á ýmsum skorkvikindum, einkum bjöllutegundum, eins og t. d. brunnklukkunni; en þó hafa honum lánazt betur ýmsar aðgerðir við ýmsar aðrar tegundir, einkum svonefndan Hydrofilus piceus, sem mætti kalla vatnskött, og er talsvert stærri en brunnklukk- an. Hausnum er þar af náttúrunni svo vel fyrir komið, að hann hvílir líkt og bandhnykill í skál. Hann svæfir dýrin með eter allra snöggvast meðan hann klippir af þeim hausana og skiftir um þá í skálunum. Það þarf sem betur fer engan vandaðan saumaskap né sérstök spengingar- áhöld, heldur nægir, að skella hausnum ofan á strúpann og láta blóðskorpu líma hann þar fastan. En dýrin eru sett í glerpípu, sem skorðar þau nákvæmlega, svo að þau geti sig ekki hreyft; og glerpípurnar eru látnar standa í skál með vatni, svo að loftið sé stöðugt rakt. Eftir 2 mánuði hafa dýrin venjulega jafnað sig og vanizt nýja hausnum. Taugakerfið virðist þá starfa á eðlilegan hátt og melting og allar hreyfingar náttúrlegar. Fyrstu dagana eftir aðgerðina er dýrið alveg eins og stein- sofandi, og hausinn sem dauður. En eftir 2—3 vikur er hausinn ekki einasta orðinn fastgróinn, heldur farinn að hreyfa kjálka og aðra munnparta (eða segjum kjaftana, eins og stendur í Orms þætti Stórólfssonar). Þegar þrjár vikur eru liðnar, er dýrið farið að hreyfa fæt- urna, en með litlu skipulagi og hreyfingarnar krampakenndar. Þá er því sleppt út úr glerpípunni og leyft að synda í vatninu. Sýnist þá bregða fljótt við, eins og vitið komist í samt lag og áður. Hér hefir nú verið gert ráð fyrir, að bæði kvikindin, er skifta um hausa, væri svipuð að stærð og sama kyni. Þá verður niðurstaðan sú, að dýrin mega heita jafn-góð eftir sem áður. Séu hins vegar valin tvö dýr, misjöfn að lit, þá breytist lit- urinn eftir hausavíxlunina þannig, að hver hausinn framkallar

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.